Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2014 | 02:45
Asíutúrinn: Darren Clarke á 64 fyrir lokahringinn á Dubaí Open

Darren Clarke, sem margir telja að muni verða næsti fyrirliði liðs Evrópu í Rydernum 2016, tekur þátt í móti á Asíutúrnum, Dubaí Open, en þetta er í fyrsta sinn sem mótið fer fram. Hann átti glæsi 3. hring og er í góðri stöðu fyrir lokahringinn, sem leikinn verður á morgun. Samtals er Clarke á 9 undir pari, 207 höggum (72 71 64) og deilir 5. sætinu í mótinu ásamt 5 öðrum kylfingum, en allir eru þeir aðeins 1 höggi á eftir forystumönnunum í 1. sæti þ.e. þeim: Jbe Kruger frá Suður-Afríku, Wang Jeung-Hun frá Kína og Shiv Kapur og Arjun Atwal frá Indlandi. Sigri Clarke í dag verður þetta fyrsti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 21. 2014 | 01:00
Gísli náði ekki niðurskurði

Gísli Sveinbergsson, GK, tók þátt í South Beach International Amateur í Miami, Flórída en hann hefir nú lokið keppni þar sem hann náði ekki niðurskurði. Leikið er í Miami Beach golfklúbbnum og Normandy Shores golfklúbbnum og stendur mótið dagana 17.-22. desember 2014 og lýkur á morgun. Gísli lék á samtals 145 höggum (71 74) og var aðeins 1 höggi frá því að komast í gegnum niðurskurð, en skorið var niður eftir 2. hringi. Efstur eftir 2. dag er Englendingurinn Richard James, en hann hefir samtals leikið á 131 höggi (65 66). Til þess að sjá stöðuna á South Beach International Amateur SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 21:55
Skrítnar og fyndnar golfmyndir

Golf Digest hefir tekið saman golfmyndir, sem eru vægast sagt skrítnar ef spáð er í því. Sumar fyndnar. T.a.m. náunginn sem er að slá golfboltum full/spariklæddur niður á strönd – þægilegt eða hvað? Hann horfir á eftir boltanum eins og hann hafi náð svaka höggi …. nema hvað hann er með pútter í höndunum!!! Þessa og fleiri svona skrítnar og skemmtilegar golfmyndir má sjá með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 21:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Joakim Lagergren (12/27)

Sænski kylfingurinn Joakim Lagergren varð í 16. sæti á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, sem fram fór á PGA Catalunya, í Girona á Spáni og lauk 20. nóvember s.l. Lagergren er því aftur kominn með kortið sitt á Evrópumótaröðina Joakim Lagergren fæddist 15. nóvember 1991 og er því 23 ára. Hann á sama afmælisdag og ekki ófrægari kylfingar og Lorena Ochoa og Ottó „okkar“ Sigurðsson. Joakim byrjaði að spila golf 6 ára þegar stjúpfaðir hans, Ola Eliasson, varð fjölskyldumeðlimur. Hann hlaut innblástur með því að fylgja Eliasson eftir á golfvellinum á mótum og ákvað að hann ætlaði að verða eins og stjúpi sinn, en hann er enn þjálfari Joakim. Lagergren gerðist atvinnumaður 2010 og byrjaði ferilinn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 20:30
Rory talar um sigur sinn á Rickie Fowler á lokadegi Rydersins

Rory McIlroy sagði í nýlegu viðtali að sjálfstraust og þörfin á að byrja vel hafi verið nauðsynleg í eftirminnilegum sigri sínum á Rickie Fowler. Rory vann Rickie Fowler eftirminnilega í tvímenningsleik þeirra á lokadegi Ryder bikars mótsins, þ.e. á sunnudeginum 5&4. Þessi sigur Rory á vini sínum er einn sá glæsilegasti í sögu Ryder bikarsins. Nr. 1 á heimslistanum (Rory) fékk fjóra fugla og örn á fyrstu 6 holunum og Rickie átti í raun aldrei neinn sjéns. „Þetta snerist allt um sjálfstraust,“ sagði Rory í viðtalinu. „Ég hafði verið að spila vel, sveiflan mín var í góðu standi og ég vissi að ég þurfti að ná sigri á skortöfluna – að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 20:00
Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Katy Harris (3/45)

Katy Harris var ein af 3 stúlkum sem varð í 43.-45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA. Henni þykir svipa svolítið til spænska kylfingsins Beatriz Recari Katy er fædd 15. ágúst 1979 og er því 35 ára. Harris byrjaði að spila golf 3 ára og segir foreldra sína hafa haft mestu áhrif á golfferil sinn. Harris spilaði golf með golfliði Louisiana State University þar sem hún átti 20 topp-10 árangra og var 2001 NGCA All-American First Team selection. Harris vann Indiana Women’s PGA Open Championship 1997 og 1998 Indiana Women’s Amateur Championship. Árið 2010 gerðist Harris atvinnumaður í golfi og lauk keppni T-39 í Q-school LPGA og hlaut takmarkaðan spilarétt. Hún spilaði á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 18:00
Pádraig Harrington hlaut PGA Recognition Award

Þrefaldi risamótssigurvegarinn Pádraig Harrington hlaut PGA Recognition Award fyrir frábært framlag hans til golfíþróttarinnar. Dublin-búinn Harrington, sem sneri aftur á sigurpall nú nýlega þegar hann sigraði á Indonesian Open, hlaut viðurkenninguna á styrktarfundinum PGA Lunch í Grosvenor House Hotel í London. Harrington hefir verið meðal fremstu kylfinga, en hápunktur ferils hans er án nokkurs vafa árin 2007 og 2008, þegar hann vann Opna breska, fyrst á Carnoustie og svo á Royal Birkdale ári síðar – þ.e. sama risamótið tvö ár í röð. Harrington varðist líka Sergio Garcia, sem gerði atlögu á PGA Championship risatitlinum í Oakland Hills árið 2008 tog varð fyrsti Evrópubúinn til þess að sigra tvö risamót í röð. Harrington hafði þar áður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jennifer Song ——- 20. desember 2014

Það er Jennifer Song sem er afmæliskylfingur dagins. Hún fæddist 20. desember 1989 í Ann Arbor, í Michigan og er því 25 ára í dag. Hún komst á LPGA í gegnum góðan árangur sinn á Futures Tour 2010 og var 2011 því fyrsta árið hennar á túrnum. Árið 2009 sigraði hún bæði í US Women´s Amateur Public Links og US Women´s Amateur. Hún er 4. kylfingurinn í sögunni til þess að sigra bæði mótin og aðeins önnur af 2 kylfingum til þess að sigra bæði mót sama árið. Song ólst upp í Suður-Kóreu en fluttist með foreldrum sínum til Bandaríkjanna og er í dag með tvöfaldan ríkisborgararétt. Í Kóreu var hún í Taejon Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 11:00
Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Colt Knost (45/50)

Colt Knost varð í 6. sæti á Web.com Tour Finals í september s.l. og var því einn af 50 sem hlaut kortið sitt á PGA Tour, keppnistímabilið 2014-2015. Colt Knost fæddist 26. júní 1985 í Garrettville, Ohio og er því 29 ára. Hann ólst upp í Pilot Point, Texas. Colt var Class 3A ríkismeistari á lokaári sínu í menntaskóla 2003. Colt útskrifaðist síðan frá Southern Methodist University (skammst.: SMU), árið 2007. Meðan hann var í SMU var hann all-conference og all-region. Hann var líka útnefndur Western Athletic nýliði ársins 2004. Colt sigraði í 3 mótum á vegum bandaríska golfsambandsins (United States Golf Association) árið 2007 og er eini kylfingurinn fyrir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 10:00
Lítur ekki út fyrir að íslensku stúlkurnar nái niðurskurði í Marokkó

Staðan er orðin heldur erfið fyrir þær Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, GR og Valdísi Þóru Jónsdóttur, GL á Samanah Al Maaden golfvöllunum í Marokkó, en þar eru þær meðal 133 keppanda sem keppa um eitt af efstu 30 sætunum, sem veita kortið á Evrópumótaröð kvenna (LET = Ladies European Tour). Leiknir eru 4 hringir og þá er skorið niður og aðeins 60 halda áfram og efstu 30 af þessum 60 hljóta fullan keppnisrétt á LET eftir 90 holu leik. Ólafía Þórunn lék í gær á 5 yfir pari, 77 höggum, sem er heldur mikið og er hún komin 3 högg undir niðurskurðarlínuna eins og hún lítur út núna. Samtals er Ólafía Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

