Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2015 | 01:40

PGA: Jimmy Walker og Patrick Reed í bráðabana í Hawaii

Þeir Jimmy Walker og Patrick Reed leika nú bráðabana um hvor þeirra standi uppi sem sigurvegari á 1. móti ársins á PGA Tour, Hyundai Tournament of Champions, sem fram fer á Plantation golfvellinum í Kapalua á Hawaii. Báðir eru efstir og jafnir efitr hefðbundinn 72 holu leik og verður því annaðhvor þeirra, sem vinnur mótið. Báðir léku á samtals 21 undir pari, 271 höggi; Reed (67 69 68 67) og Walker (67 68 67 69). Það er hin fræga par-5 18. hola sem leikin verður þar til úrslit liggja fyrir. Fylgjast má með bráðabananum með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2015 | 01:00

PGA: Chris Kirk og Jason Day jöfnuðu glæsilega metskor upp á 62 á TOC

Þeir Chris Kirk frá Bandaríkjunum og Ástralinn Jason Day, spiluðu 4. hring á Tournament of Champions á glæsilegum 11 undir pari, 62 höggum!!! Day og Kirk fengu báðir 11 fugla og 7 pör – skiluðu sem sagt skollalausum skorkortum. Jason Day lauk keppni á 20 undir pari og er sem stendur í 2. sæti en Chris Kirk var á samtals 13 undir pari og er sem stendur T-14. Þar með jöfnuðu þeir mótsmet upp á lægsta hring í Tournament of Champions mótinu! Sem stendur (kl. 1:00 þann 13. janúar 2015) er Jimmy Walker efstur á 21 undir pari. Fylgjast má með lokahringnum á Tournament of Champions með því að SMELLA Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Harold Horsefall Hilton – 12. janúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Harold heitni Horsefall Hilton, en hann fæddist í dag, fyrir 146 árum, 1869 og dó 5. mars 1942. Hann varð 2. áhugamaðurinn til þess að sigra Opna breska.  Golf 1 var  stuttu eftir að golfvefurinn fór í loftið með greinaröð um kylfinga 19. aldar. Hér má rifja upp greinina um afmæliskylfinginn: HAROLD HORSEFALL HILTON Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:   Patty Hayes, 12. janúar 1955 (60 ára stórafmæli!!!); Craig Parry, 12. janúar 1966 (ástralski túrinn – 49 ára) ….. og ….. Berglind Richardsdóttir (42 árs) Sigríður Jóhannsdóttir (46 ára) Davíð Viðarsson (36 ára) Eiríkur Svanur Sigfússon (48 ára) Félag Um Jákvæða Sálfræði (25 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 15:00

Asíutúrinn: Íslandsvinur leikmaður ársins 2014

„Íslandsvinurinn“ Anirban Lahiri frá Indlandi var valinn leikmaður ársins á Asíutúrnum, þar sem hann vann tvö mót 2014 og varð í 2. sæti á peningalistanum Mótin sem hann sigraði á Asíutúrnum 2014 voru CIMB Niaga Indonesian Masters, en sigur Lahiri vannst á einkar glæsilegan máta með erni á 72. holu. Annað mótið sem hann vann var the Venetian Macau Open, en með sigri í því móti eru heildarsigrar hans á Asíutúrnum orðnir 5. Hann tapaði hins vegar fyrir Bandaríkjamanninum David Lipsky í baráttunni um að verða í 1. sæti peningalistans, en Lipsky sigraði á einu ábatasamasta móti, sem Asíutúrinn á aðild að; Thaíland Golf Championship. Lahiri sagði eftir að ljóst var að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 14:00

Upprifjun á sigri Kaymer í Abu Dhabi 2011

Nú í vikunni hefst Abu Dhabi HSBC Golf Championship, en það er mót vikunnar á Evróputúrnum. Förum aftur til mótsins 4 ár aftur í tímann.  Það ár varð Þjóðverjinn Martin Kaymer sá fyrsti til þess að sigra í mótinu ár eftir ár, en það ár, 2011, vann hann í Abu Dhabi í 3. skipti og 2. árið í röð. Meðal keppenda þá var Lee Westwood, sem þá var nr. 1 á heimslistanum. Nánasti keppninautur unga Þjóðverjans (Kaymer) var hins vegar Rory McIlroy, sem þó varð heilum 8 höggum á eftir Kaymer, sem þá var á undraverðu metheildarskori upp á 24 undir pari, 264 högg. Kaymer velti með sigrinum 2011 Tiger Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 13:00

GKG: viðurkenningar veittar fyrir afrek ársins 2014

Um helgina voru íþróttamönnum Garðabæjar veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu 2014. Í þeirra hópi margir kylfingar úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Ingi Rúnar Birgisson fékk viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil í höggleik hjá strákum 14 ára og yngri. Sigurður Arnar Garðarsson fékk svo viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni stráka 14 ára og yngri. Einnig var liði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar sem sigraði sveitakeppni GSÍ í flokki Pilta 18 ára og yngri veitt viðurkenning fyrir frábæran árangur. Ragnar Már Garðarsson fékk viðurkenningu fyrir þátttöku sína í í verkefnum A-landsliðsins.  Heimild: golf.is


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 12:00

GBE: Dugnaðarforkar á Eskifirði!

Laugardaginn 10. janúar 2015 voru 4 félagar í Golfklúbbi Byggðarholts á Eskifirði sem tóku til hendinni í klúbbhúsi golfklúbbsins á Byggðarholtsvelli. Dugnaðarforkar það! Hér má sjá nokkrar myndir frá tiltektinni, en allt var rifið að innan:


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 11:30

Bubba gefur Birdies for the Brave fallegan fornbíl

Hæst rankaði bandaríski kylfingurinn á heimslistanum (nr. 4),  Bubba Watson og sá sem nýlega var valinn best klæddi kylfingurinn á PGA Tour af Golf.com gaf nýlega fornbíl til góðgerðarmála. Bubba ákvað að gefa „Birdies for the Brace“ góðgerðarsjóðnum, Cadillac LaSalle C-Hawk Custom Roadster, bifreið sína, árgerð 1939. „Birdies for the Brave“ styrkir fátæka hermenn og fjölskyldur þeirra. Það voru Amy og Phil Mickelson sem stofnuðu sjóðinn. Frá árinu 2006 hafa 1,5 milljarðar króna safnast.


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 11:00

Afreks- og framtíðarhópar leggja hart að sér fyrir næsta keppnistímabil

Okkar fremstu kylfingar leggja hart að sér við æfingar þó snjór þekji alla golfvelli landsins enda styttist í keppnistímabilið. Um helgina tóku 40 kylfingar úr afreks- og framtíðarhópum GSÍ tóku þátt í golfæfingum og þolprófum í Kórnum. Umdanfarnar vikur hafa kylfingarnir farið í líkamsmælingar hjá Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara þar sem styrkur, liðleiki og jafnvægi er sérstaklega skoðað og metið. Dr. Viðar Halldórsson var með afar fróðlegan og gagnlegan fyrirlestur fyrir kylfingana og aðstandendur um hugarþjálfun. Hugarþjálfun er vanmetinn þáttur í þjálfun og fengu allir gagnleg ráð og verkefni í hendurnar til að vinna með í vetur. Heimild: golf.is


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2015 | 10:30

Birgir Leifur og Norma Dögg íþróttamenn ársins 2014 í Kópavogi

Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG og Norma Dögg Róbertsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2014. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Reiðhöll Spretts  8. janúar. Fengu þauað launum farandbikar og eignarbikar jafnframt því sem Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti þeim hvoru um sig 150 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni frá Kópavogsbæ. Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG og Norma Dögg Róbertsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2014. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Reiðhöll Spretts  8. janúar. Fengu þau að launum farandbikar og eignarbikar jafnframt því sem Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti þeim Lesa meira