Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2015 | 10:00
Ekki það sama Jón og séra Jón – eða Bhavik Patel og Dustin Johnson?

Bhavik Patel er 24 ára atvinnumaður í golfi, sem spilar í 2. deild PGA Tour, þ.e. Web.com mótaröðinni – Hann er nr. 941 á heimslistanum. Patel hefir aldrei spilað á PGA Tour mótaröðinni sjálfri og nú lengist í að honum takist það því hann missir af Web.com Tour finals mótaröðinni á þessu ári og fær ekki að spila á Web.com Hann féll nefnilega nýlega á lyfjaprófi og fékk 1 árs keppnisbann til 7. október 2015. Patel tók lyfið á bannlistanum, því hann var að ná sér af meiðslum. Hann sagði m.a. að þetta hefði verið dómgreindarleysi – hann hefði verið að taka lyfið til að ná sér af meiðslum. Hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2015 | 09:00
PGA: Max Homa með örn á 16. braut á 3. hring Sony Open – Myndskeið

Bandaríski kylfingurinn Max Homa fékk glæsiörn á 16. braut 3. hrings Sony Open. Sextánda brautin á Waialea er par-4 og Homa sló 120 yarda þ.e. 100 metra frá holu. Hann þurfti því aðeins 2 högg á 16. holu! Til þess að sjá örn Max Homa á par-4 16. holu Waialea á 3. hring Sony Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá kynningu Golf 1 á Max Homa SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2015 | 08:00
Jafnvel hundar Dufner-ast!

Bandaríski PGA Tour kylfingurinn DA Points tók meðfylgjandi mynd af hundi að Dufner-ast. Að Dufner-ast er eiginlega sögn sem bundin er við golf. Að Dufner-ast eða á ens.: „Dufnering“ er æði sem hófst í mars 2013 þegar PGA kylfingurinn Jason Dufner heimsótti J. Erik Jonsson Community skólann í Dallas fyrir mót og ljósmyndarar fundu Dufner þar sem honum hundleiddist greinilega inn í skólastofu og hann sat með uppgjafarsvip á gólfinu með krökkunum og hallaði sér upp að vegg skólastofunnar. Þessi pósa vakti kátínu meðal félaga hans á PGA og kepptust allir við að láta taka af sér myndir í sömu stellingu og Jason Dufner. Það að „dufnerast“ eða „dufnering“ eins Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2015 | 05:30
PGA: Walker leiðir fyrir lokahriginn á Hawaii

Það er Jimmy Walker, sem hefir forystuna fyrir lokahringinn á Sony Open á Hawaii. Hann er búinn að spila á samtals 16 undir pari, 194 höggu (66 66 62). í 2. sæti er Matt Kuchar 2 höggum á eftir Walker á amtals 14 undir pari, 196 höggum (65 63 68). Brian Harman og Troy Merritt deila 3. sætinu á amtals 13 undir pari, hvor og Tim Clark og Justin Thomas eru í 5. sæti á 12 undir pari, hvor. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Sony Open á Hawaii SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2015 | 00:45
Evróputúrinn: Kóreanskur nýliði fékk ás á 3. hring í Abu Dhabi HSBC mótinu

Kóreanski nýliðinn An Byeong-hun var í frábæru formi á 3. hring Abu Dhabi HSBC Golf Championship og fór holu í höggi af 147 yarda (134 metra) færi með 9-járni á 15. holu 3, keppnisdag. Þetta var 4. ásinn í þessari viku og allir á sömu holu. Rory McIlroy náði ás á 2. keppnisdegi og Tom Lewis og Miguel Angel Jiménez náðu ásum á 1. hring. An var að vonum ánægður með ásinn. „Ég var að spila vel allan daginn, virkilega stöðugt, setja niður pútt vitið þið. Ég gæti e.t.v. hafa enn púttað betur því ég var svolítið pirraður að missa 4 metra pútt á síðustu holunni,“ sagði An glaður, og bætti við Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2015 | 19:00
Saga kvennagolfs frá Maríu Skotadrottningu (1567) til Ólympíuleikanna (2016)

CNN hefir tekið saman á skemmtilegan hátt „sögu kvennagolfsins“ frá Maríu Skotadrottningu, sem olli hneykslun 1567-1568 þegar hún spilaði golf aðeins nokkrum dögum eftir andlát eiginmanns síns Lord Darnley. Fólk hefir eflaust ekki vitað það þá, að golfið er eitt besta ráð við áföllum lífsins og stressi. Það sem vakti meiri hneykslun en annað var að María Skotadrottning spilaði golfið við ástmann sinn. CNN stiklar á stóru í sögu kvennagolfsins í gegnum tíðina, en minnist þó á einhverjar þær bestu m.a. Baba Zaharias og Anniku Sörenstam. Hér má sjá skemmtilega samantekt CNN um sögu kvennagolfs frá Maríu Skotadrotningu (1567) til Ólympíuleikanna (2016) SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2015 | 18:00
Golfútbúnaður: 10 bestu járnin 2015 – Myndskeið

Rick Shiels kynnir hér í þessu myndskeiði 10 bestu járnin á árinu 2015. Til þess að sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2015 | 17:30
Þáttur á FOX um Gullna Björninn á morgun – Myndskeið

Jack Nicklaus eða m.ö.o. „Gullni Björninn“ hafði yfirburði í golfinu í áratugi og setti á þeim tíma met sem kannski verða aldrei slegin. Þann 21. janúar n.k. verður Nicklaus 75 ára. Í tilefni af þessu stórafmæli og til að halda upp á feril Jack hefir USGA, þ.e. bandaríska golfsambandið í samvinnu við Rolex gert þátt sem ber nafnið „Nicklaus: The Making of a Champion“ og verður hann sýndur á FOX sjónvarpsstöðinni á morgun í Bandaríkjunum, sunnudaginn 18. janúar kl. 12:00 EST þ.e. á austurstrandar tíma. Í þættinum kemur m.a. Tiger Woods fram og hefir vakið athygli að hann segir á einum stað að enginn hafi gert það eins vel og Jack Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jimmy Powell ——- 17. janúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Jimmy Powell. Powell er fæddur 17. janúar 1935 og á því 80 ára stórafmæli í dag. Powell fæddist í Dallas, Texas og spilaði 4 ár í bandaríska háskólagolfinu með golfliði North Texas State University. Hann gerðist atvinnumaður 1959 og á 8. áratug síðustu aldar var hann golfkennari á Stevens Park golfvellinum í Dallas. Hátindur ferils hans var á Öldungamótaröð PGA þar sem hann vann 4 titla. Besti árangur Powell í risamóti var að vera jafn öðrum í 33. sæti á PGA Championship risamótinu 1975. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmælí í dag eru: Olin Dutra, f. 17. janúar 1901 – d. 5. maí 1983; Nina Muehl, 17. janúar 1987 (28 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2015 | 13:15
Snilldarpar Kaymer á 10. braut í Abu Dhabi golfklúbbnum – Myndskeið

Martin Kaymer er efstur í Abu Dhabi HSBC Golf Championship fyrir lokahringinn sem spilaður verður á morgun. Hann fékk hvorki fleiri né færri en 7 glæsifugla á hring sínum upp í dag og 65 högg því það sem skrifað var á skorkortið. En högg dagsins hjá Kaymer og líklega í öllu mótinu er parið sem hann fékk á 10. braut golfvallar Abu Dhabi golfklúbbsins. Eftir teighögg sló Kaymer 2. höggið sitt í glompu og úr glompunni yfir í flatarglompu og þaðan …… beint ofan í holu! Svona gera bara snillingar!!!! Til þess að sjá myndskeið af snilldarpari Kaymer á 10. braut Abu Dhabi golfklúbbsins SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

