Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2015 | 07:00

Hvað var í sigurpoka Walker?

Jimmy Walker varði titil sinn á Sony Open á Waialea á Hawaii þann 18. janúar 2015 og er við það kominn í 13. sæti heimslistans. Eftirfarandi verkfæri voru í poka Jimmy Walker:  Dræver: Titleist 915D2 (Aldila Rogue Tour X skaft), 9.5 ° 3-tré: Titleist 915F (Aldila Rogue Tour X skaft), 15° 5-tré: Titleist 915F (Fujikura Motore Speeder VC 8.2 TS X skaft), 18° Járn: Titleist 712U (3-járn; True Temper Dynamic Gold X100 skaft), Titleist MB 714 (4-9; True Temper Dynamic Gold X100 sköft) Wedgear: Titleist Vokey Design SM4 (48-10°; True Temper Dynamic Golf X100 skaft), Titleist Vokey Design SM5 (54-11°, 60-04°; True Temper Dynamic Golf X100 sköft) Pútter: Scotty Cameron Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2015 | 00:01

Afmæliskylfingur dagsins: Silja Rún Gunnlaugsdóttir – 20. janúar 2015

Það er Silja Rún Gunnlaugsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Silja Rún er fædd 20. janúar 1974 og á því 41 árs afmæli í dag!!! Silja Rún er Hafnfirðingur, systir Bjarna Þórs og Kristínar Fjólu og svilkona Rannveigar Sig.  Hún er gift Friðrik Sturlusyni og eiga þau 2 syni. Komast má á facebooksíðu Silju Rún til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Silja Rún Gunnlaugsdóttir (41 árs) Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Tom Carter, 20. janúar 1968 (47 ára); Peter Hedblom, 20. janúar 1970 (45 ára); Fredrik Anderson Hed, 20. janúar 1972 (43 árs); Derek Fathauer, 20. janúar 1986 (28 ára)…. og …… Konráð V. Þorsteinsson    (42 ára) Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir (67 ára) Þórhallur Sigurðsson (68 ára) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 22:00

Caroline Wozniacki: Serena og maraþonið björguðu mér eftir sambandsslitin við Rory

Caroline Wozniacki segir að ákvörðun hennar að taka þátt í  New York maraþoninu hafi hleypt nýjum krafti í tennisferil sinn og hún gerir sér vonir um að vinna fyrsta grand slam titil sinn. Eftir mikla sorg eftir sambandsslitin við Rory McIlroy, sem hún var trúlofuð, rétt eftir að brúðkaupsboðskortin höfðu verið send út, þá hóf Caroline að þjálfa fyrir New York maraþonið Eftir að hún kláraði fyrsta maraþonið sitt – með hjálp Serenu Williams – s.l. nóvember náði hún upp styrk sínum á fleiri veg en einn. „Allt gerist af ákveðinni ástæðu og ég kom út úr þessu (sambandsslitunum) sterkari manneskja“ sagði Caroline. „Þetta gerði mér gott á þessum tíma – Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 21:00

Tönn slegin úr Tiger

Tiger Woods getur bætt við enn einni ástæðu hvers vegna honum er í nöp við ljósmyndara – einn þeirra kostaði hann tönn …. í orðsins fyllstu. Tiger kom kærustu sinni, Lindsey Vonn á óvart þegar hann birtist öllum að óvörum í ítölsku Ölpunum þar sem Lindsey er við keppni að reyna við 63. heimmeistaratitil sinn. Það var hins vegar Tiger sem dró að sér alla athyglina þegar ljósmyndari einn sem tróðst fram til að mynda Lindsey, sló ljósmyndavél sinni í munn Tiger  með þeim afleiðinum að hann missti tönn. „Í þvögu ljósmyndara við sviðið á heimsmeistaraverðlaunapallinum á Ítalíu þá var ljósmyndari með myndavél sína um öxlina  og hann var að troðast Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 17:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Elina Nummenpaa (15/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó. Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku. Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015. Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34. Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 26.-34. sætinu, allar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Elías Björgvin Sigurðsson – 19. janúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Elías Björgvin Sigurðsson. Elías fæddist 19. janúar 1997 og á því 18 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Komast má á facebook síðu Elíasar Björgvins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Elías Björgvin Sigurðsson (18 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mary Mills 19. janúar 1940 (75 ára stórafmæli!!!);  Adele Peterson, 19. janúar 1963 (52 ára); Doug Norman LaBelle II, 19. janúar 1975 (40 ára stórafmæli!!!);  Brian Harman, 19. janúar 1987 (28 ára) ….. og …..   Brynhildur Gunnarsdóttir Angels Love Nails (43 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 15:30

Hvað var í sigurpoka Stal?

Ungi franski kylfingurinn Gary Stal sem sigraði Abu Dhabi HSBC Golf Championship 18. janúar 2015 var með eftirfarandi verkfæri í pokanum, en á upptalningu sést að hann er „Titleist-maður“: Bolti:  Titleist, Pro V1x Skór:  FootJoy (sjá kynnningu Golf 1 á skóm Stal með því að SMELLA HÉR: ) Dræver:  Titleist, 915 D2 – 8.5° Brautartré:  Titleist, 915 F – 13.5° Blendingur:   Titleist, 915 H-D – 17.5° 1 járn:  Titleist, 712 U – (3) 4 – 9 járn:   Titleist, 714 MB Sand Wedge:  Titleist, Vokey SM5 – 08 F 52° Lob Wedge:   Titleist, Vokey SM5 – 08 M 58° Pútter:  Odyssey, Versa BWB 7 Ein besta kylfa í poka Gary Stal Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 14:30

Fólk á félagsmiðlum dregur í efa mannráns/líkamsárásarsögu Allanby – FBI rannsakar málið ekki

Eftir að fréttir bárust af því að ástralska kylfingnum Robert Allanby hafi verið rænt, hann orðið fyrir líkamsárás af völdum ránsmanna sinna þannig að hann missti meðvitund og þeir hafi síðan stolið öllu sem hann var með á sér af verðmæti, hafa ýmsir orðið til þess að draga í efa sögu Allanby á félagsmiðlunum. Þar virðast menn þeirrar skoðunar að Allanby hafi sett allt á svið til að hljóta athygli, en ýmislegt í frásögn hans stangast á og sumt er hreint ekki rétt. T.a.m. sagði Allanby í viðtölum (m.a. myndskeiðinu hér að neðan á 1:25 mínútu) að FBI færi með rannsókn málsins. Vá, hann er svo mikilvægur og þekktur kylfingur að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 14:00

Evróputúrinn: Rickie Fowler lauk keppni T-66 í Abu Dhabi

Ein skærasta ungstjarna Bandaríkjanna í golfinu, Nr. 10 á heimslistanum, Rickie Fowler fann sig ekki í fyrsta skiptið, sem hann tók þátt í Abu Dhabi HSBC Golf Championship. Eftir byrjun sem lofaði góðu, 67 höggum, hrundi Rickie niður skortöfluna. Hann lauk keppni í 66. sæti, sem hann deildi með þeim David Drysdale frá Skotlandi og Englendingnum Simon Khan. Heildarskor Rickie var 2 undir pari, 286 högg (67 75 73 71) og því var nr. 10 á heimslistanum eiginlega búinn að spila sig úr öllum sigurlíkum á 2. degi, a.m.k. var skorið næstu 2 daga lítið betra; allt yfir 70. Það munaði 17 höggum á heildarskori Rickie og sigurvegarans unga frá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 13:00

Hver er kylfingurinn: Jimmy Walker?

Fyrir aðeins 2 árum, 2013,  voru ekki margir sem könnuðust við kylfinginn Jimmy Walker.  Nú eru fleiri og fleiri sem vita um hvílíkur snilldarkylfingur er annars vegar þar sem Jimmy Walker fer.  Honum tókst á stórkostlegan hátt að verja titil sinn á Sony Open, átti heil 9 högg á næsta mann, Scott Piercy, þann 18. janúar 2015. Það hefir allt verið upp á við fyrir Walker frá því hann vann fyrsta mótið sitt Frys.com Open, 13. október 2013.  Sigurinn var hans fyrsti sigur á PGA Tour. Síðan þá hefir Walker sigrað í 3 öðrum PGA Tour mótum og verið í Ryder bikars liði Bandaríkjanna 2014. En, hver er kylfingurinn, Jimmy Walker? Jimmy Lesa meira