Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2015 | 15:15
Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Natalie Sheary (17/45)

Það voru 6 stúlkur sem deildu 28.-33. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Ein þessara 6 var bandaríska stúlkan Natalie Sheary . Natalie Sheary fæddist í30. maí 1989 í West Hartford, Conneticut og er því 25 ára. Hún byrjaði í golfi 12 ára og segir pabba sinn hafa haft mest áhrif á golfferil sinn. Sheary var í bandaríska háskólagolfinu og spilaði með sama golfliði og Ólafía Þórunn okkar Kristinsdóttir, Wake Forest. Hún gerðist síðan atvinnumaður í golfi sama ár og hún útskrifaðist 2011. Áhugamál Natalie er að læra nýja hluti gegnum bækur og kvikmyndir, að horfa á Netflix, kanna nýja staði og fara í ræktina. Natalie komst á LPGA Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2015 | 15:00
Champions Tour: Jiménez og Mediate efstir e. 2. dag á Hawaii

Rocco Mediate og Miguel Ángel Jiménez eru efstir og jafnir á Mitsubishi Electric Championship í Hualalai í Hawaii eftir 1. dag. Jiménez og Mediate eru á samtals 11 undir pari, 133 höggum; Jiménez (69 64) og Mediate (66 67). Í 3. sæti er síðan Olin Browne á samtals 9 undi pari, 2 höggum á eftir forystumönnunum. Til þess að sjá hápunkta 2. dags Mitsubishi Electric Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá stöðuna á Mitsubishi Electric Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2015 | 12:00
Christy Kite látin

Christy, eiginkona frægðarhallarkylfingsins Tom Kite lést s.l. föstudag eftir langa baráttu við krabbamein. Það var forseti Öldungamótaraðar PGA Tour, þ.e. Champions Tour, Greg McLaughlin, sem tvítaði fréttirnar í gær: „The Champions Tour family mourns the passing of Christy Kite last evening. Our thoughts and prayers go to Tom and the entire Kite family.“ (Lausleg þýðing: „Champions Tour harmar andlát Christy Kite í gær. Hugsanir okkar og bænir eru með Tom og allri Kite fjölskyldunni.“ ) Kite ætlaði að taka þátt í fyrsta móti Champions Tour núna um helgina, en hætti við að taka þátt. Jarðaför Christy Kite fer fram n.k. þriðudag í Austin, Texas. McLaughlin staðfesti að svartir borðar ættu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2015 | 09:00
PGA: 4 í forystu fyrir lokahring Humana Challenge – Hápunktar 3. dags

Það eru 4 kylfingar sem leiða fyrir lokahring Humana Challenge mótið sem fram fer á La Quinta: Erik Compton, Michael Putnam, Bill Haas og Justin Thomas. Allir eru þeir búnir að spila á samtals 17 undir pari, 199 höggum. Í 5. sæti, aðeins 1 höggi á eftir á samtals 16 undir pari, 200 höggum eru: Matt Kuchar, Ryan Palmer, Scott Pinkney og Steve Wheatcroft. Til þess að sjá stöðuna á Humana Challenge fyrir lokahringinn SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Humana Challenge SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2015 | 23:57
Nýju stúlkurnar á LET 2015: Carmen Alonso (19/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó. Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku. Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015. Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34. Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 17.-34. sætinu. Næst Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2015 | 23:35
GSG: Aðalfundur verður haldinn 29. janúar n.k.

Aðalfundur Golfklúbbs Sandgerðis verður 29.janúar 2015 kl 20:00 í golfskálanum. Störf aðalfundar eru: Kosning fundarstjóra og fundarritara. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár. Reikningar lagðir fram og skýrðir. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Atkvæðagreiðsla um reikningana. Lagabreytingar. Lögð fram tillaga um gjaldskrá. Kosning formanns. Kosning tveggja stjórnarmanna. Kosning skoðunarmanna reikninga og einn til vara. Önnur mál.. Stjórnin
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2015 | 23:30
Afmæliskylfingur dagsins: Jóhanna Dröfn Kristinsdótitr – 24. janúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir, GO. Hún fæddist 24. janúar 1962. Jóhanna Dröfn hefir átt fast sæti fyrir hönd Golfklúbbsins Odds í kvennasveit GO og hefir tekið þátt í mörgum sveitakeppnum GSÍ á undanförnum árum, var m.a. í sveit GO sem vann 2. deild kvenna 2005. Af mörgu er að taka í golfferli Jóhönnu Dröfn en hún hefir sigrað í mörgum opnum mótum vann m.a. ára-mót GO 2009. Jóhanna Dröfn hefir setið stjórn í GO. Jóhanna er dóttir Kristins Sigurpáls Kristjánssonar og á eina dóttur Lilju Valþórsdóttur. Eins er Jóhanna Dröfn systir Dóru Kristínar í GHD. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kim Saiki Maloney, 24. janúar 1966 (49 ára); Aldilson Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2015 | 23:11
Evróputúrinn: Branden Grace sigraði á Qatar Masters – hápunktar 4. dags

Það var Branden Grace frá Suður-Afríku sem stóð uppi sem sigurvegari í Qatar Masters. Grace var samtals á 19 undir pari, 269 höggum (67 68 68 66). Marc Warren frá Skotlandi varð í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir á samtals 18 undir pari, 270 höggum (71 65 67 67). Í 3. sæti varð síðan Bernd Wiesberger frá Þýskalandi á samtals 17 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna á Qatar Masters SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 4. dags á Qatar Masters SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2015 | 18:47
Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng – 23. janúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins í dag er taíwanski kylfingurinn og 5-faldur sigurvegari risamóta, Yani Tseng (á kínversku: 曾雅妮). Yani fæddist 23. janúar 1989 í Gueishan, Taoyuan í Taíwan og er því 26 ára í dag. Golf 1 hefir áður kynnt afmæliskylfinginn Yani, sem sjá má með því að smella hér: YANI TSENG Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Soffía Margrét Hafþórsdóttir 43 ára afmæli! Valgeir Guðjónsson 63 ára afmæli! Golf 1 óskar afmæliskylfingum dagsins innilega til hamingju með daginn! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2015 | 15:00
Evróputúrinn: 4 leiða eftir 3. dag á Qatar Masters

Branden Grace frá S-Afríku, Mark Warren frá Skotlandi, Emiliano Grillo frá Argentínu og Bernd Wiesberger frá Austurríki eru efstir og jafnir eftir 2. keppnisdag Qatar Masters í Doha, Qatar. Samtals eru þeir félagar allir búnir að spila á 13 undir pari, 203 höggum; Grace (67 68 68); Grillo (67 69 67); Warren (71 65 67) og Wiesberger (69 66 68). Cañizares, Coetzee og Pepperell deila 5. sætinu allir á 11 undir pari, þ.e. 2 höggum á efti forystufereykinu. Sjá má hápunkta 3. keppnisdags Qatar Masters með því að SMELLA HÉR: Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Qatar Masters SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

