Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 11:50

GM: Gunnar Árnason efstur í laugardagspúttinu

Það var góð mæting í laugardagspúttið síðasta dag janúarmánuðar, 31. janúar 2015,  en 43 félagsmenn í GM mættu og púttuðu fram og tilbaka. Eins og svo oft áður var skor jafnt og stutt á milli efstu manna. Úrslit urðu annars: 1. Gunnar Árnason 24 pútt 2. Jakob Ragnarsson 26 pútt 3. Jónas H Baldursson 27 pútt (eftir bráðabana) 4. Bjarnþór Erlendsson 27 pútt (eftir bráðabana) 5-8. Sæmundur Guðmundsson 28 pútt 5-8. Kjartan Ólafsson 28 pútt 5-8. Magnús Hjartarson 28 pútt 5-8. Karl E Loftsson 28 pútt


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 11:44

GR: Böðvar Páls, Ingvar Andri, Patrekur Ragnars og Ragnar Baldurs efstir á Púttmótaröð barna og unglinga og … foreldra

Það var frábær mæting á annan dag Púttmótaraðar barna-og unglinga og…foreldra í GR, sunnudaginn 1. febrúar 2015. Flott skor þar sem Böðvar Páls, Ingvar Andri og Patrekur Ragnars eru á toppnum, hver í sínum aldursflokki en í foreldrahópnum leiðir Raggi Bald á besta skori dagsins, 25 höggum. Mjótt er á munum í öllum flokkum og alveg ljóst að keppnin verður hörð og spennandi. Það er alls ekki of seint að hefja leik. Fjórir bestu hringirnir telja og enn eru 6 skipti eftir og foreldrarnir með líka. Sjáumst hress næsta sunnudag! Sjá má stöðuna eftir 2 umferðir í púttmótaröð barna og unglinga í GR: Púttmótaröð barna og unglinga – foreldrar Púttmótaröð Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 11:15

Hvað var í sigurpoka Koepka?

Brooks Koepka sigraði á Waste Management Phoenix Open með glæsilokahring upp á 5-undir pari 66 högg og tryggði þar með fyrsta PGA Tour titil sinn. Hinn 24 ára Koepka er sá síðasti til að sigra með nýja 2015 Titleist Pro V1x boltanum, en hann notaði boltann í fyrsta sinn á TPC Scottsdale. „Ég fékk tækifæri til að æfa mikið með nýja boltanum þegar ég var heima s.l. mánuði og ég er fullur sjálfstrausts,“ sagði Koepka. „Það sem mér finnst best við hann er árangurinn sem ég næ af 60 yarda færi með honum og hann er mýkri en fyrri Titleist boltar. Lengd af járnunum er svipuð en ég elska það sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 10:45

PGA: Högg 4. dags á Phoenix Open – Örn Koepka – Myndskeið

Högg lokadagsins á Waste Management Phoenix Open var arnarpitch sigurvegarans Brooks Koepka á par-5 15. holu TPC Scottsdale. Það var á þessu andartaki sem Koepka deildi efsta sætinu og sigraði að lokum í mótinu. Til þess að sjá glæsilegan örn Brooks Koepka SMELLIÐ HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 10:00

Hver er kylfingurinn: Brooks Koepka?

Brooks Koepka sigraði í gær í fyrsta sinn á PGA Tour móti þ.e. á Waste Management Phoenix Open, sem fram fór á TPC Scottsdale í Arizona. En hver er kylfingurinn? Koepka fæddist í Wellington, Flórída 3. maí 1990 og er því 24 ára. Hann spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Florida State University þar sem hann vann 3 sinnum einstaklingskeppnir og varð þrisvar All-American. Koepka spilaði á Opna bandaríska risamótinu 2012 meðan hann var enn áhugamaður,  en reyndar er besti árangur hans í risamótum glæsilegur T-4 árangur á Opna bandaríska 2014. Eftir að hafa ekki náð niðurskurði á Opna bandaríska 2012 gerðist Koepka atvinnumaður í golfi og spilaði fyrst á Áskorendamótaröðinni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 09:00

PGA: Brooks Koepka sigraði á Phoenix Open – Hápunktar 4. dags

Það var bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka, sem stóð uppi sem sigurvegari á Waste Management Phoenix Open í gærkvöldi. Koepka spilaði á samtals 15 undir pari, 269 höggum (71 68 64 66) og átti 1 högg á þá sem næstir komu, en það voru Bubba Watson, Ryan Palmer og Hideki Matsuyama, en allir voru þeir samtals á 14 undir pari, hver. Áhugamaðurinn Jon Rahm og skoski kylfingurinn Martin Laird, sem leiddi fyrir lokahringinn deildu 5. sætinu, á samtals 12 undir pari, hvor. Litið er á Koepka sem eina af rísandi stjörnum bandarískra kylfinga, en hann spilaði m.a. á Evróputúrnum á s.l. keppnistímabili og var valinn nýliði ársins þar. Til þess að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 08:00

PGA: Örn Luke Guthrie á 4. degi á Phoenix Open – Myndskeið

Bandaríski kylfingurinn Luke Guthrie átti flott 300 metra dræv, á 17. holu á 4. degi Waste Management Phoenix Open …. sem næstum fór ofan í holu fyrir ási. Par-4, 17. brautin er 322 yardar eða 294 metrar og var dræv Guthrie því vel yfir 300 metra. A.m.k. sleikti boltinn stöngina, en höggið var of kraftmikið og fór fram yfir grín í átt að nokkrum fuglum sem þar voru og stukku upp. Guthrie átti síðan ekki síður flott pitch fyrir erninum, u.þ.b. 9 metrum frá holu, sem fór beint ofan í. Þó ekki hafi ásinn orðið að veruleika skreytti flottur örn skorkort Guthrie í gær. Deginum þar áður varð Guthrie 25 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2015 | 07:00

Ás Paulu Creamer

Paula Creamer fór holu í höggi á 2. hring Coates Golf Championship, sem fram fór í Ocala í Flórída nú um helgina. Paula segir að hún virðist hafa sérstakt lag á að fara holu í höggi á holum þar sem engin verðlaun eru. En hún segir það ekki skipta máli þetta sé eftir sem áður 1 á skorkortinu. Paula lauk keppni í Coates Golf Championship í T-53, þ.e. deildi 53. sætinu ásamt 5 öðrum á samtals 4 yfir pari, 292 höggum (72 70 77 73). Eins og sjá má var 2. hringurinn hennar besti hringur Til þess að sjá ásinn og viðtal við Paulu um hann SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2015 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR. Hildur Kristín fæddist 1. febrúar 1992 og á því 23 ára afmæli í dag. Hildur Kristín Þorvarðardóttir, GR. Mynd: Golf 1 Hildur Kristín byrjaði að spila golf 15 ára og er því aðeins búin að spila golf í 8 ár. Hún spilaði  m.a. á Eimskipsmótaröðinni sumarið 2011 og 2012. Hildur varð m.a. í 2. sæti á Íslandsmóti unglinga í holukeppni; hún sigraði 1. flokk á meistaramóti GR, 2009 og sigraði bæði sveitakeppni 1. deildar kvenna kvenna og stúkna 18 ára og yngri 2010. Eins var hún í sveit GR kvenna, sem urðu Íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ, 2011. Hildur Kristín er dóttir Ragnhildar Sigurðardóttur, GR, golfdrottningar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 1. 2015 | 12:55

Evróputúrinn: Rory sigraði í Dubaí

Það kom víst engum á óvart að það var nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy frá N-Írlandi, sem stóð uppi sem sigurvegari á Omega Dubaí Desert Classic, en hann var búinn að leiða frá 2. keppnisdegi í mótinu. Rory spilaði á samtals 22 undir pari, 266 höggum (66 64 66 70) og er þetta fyrsti sigur hans á árinu 2015. Þetta er 10. sigur Rory á Evrópumótaröðinni og sá fyrsti frá 10. ágúst á síðasta ári, 2014, þegar Rory sigraði á PGA Championship risamótinu. Þetta er í 2. skiptið sem Rory sigrar á Omega Dubaí Desert Classic, en fyrra skiptið kom sigurinn 1. febrúar 2009 nákvæmlega fyrir 6 árum og Lesa meira