Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 13:15

LPGA: Sei Young Kim sigraði í Pure Silk Bahamas Classic

Það var Sei Young Kim sem stóð uppi sem sigurvegari á LPGA mótinu Pure Silk Bahamas Classic nú í gær, 8. febrúar 2015. Mótið fór fram á Ocean Club golfvellinum á Paradise Island í Bahamas. Kim var jöfn löndu sinni Sun Young Yoo og Ariyu Jutunugarn frá Thaílandi eftir hefðbundnar 72 holur en allar voru þær stöllur á 14 undir pari, 278 höggum. Það varð því að koma til bráðabana og þar sigraði Sei Young Kim strax á 1. holu.  „Þetta er draumur (sem rætist),“ sagði Kim eftir sigurinn. „Ég er virkilega hamingjusöm.“ Ein í 4. sæti var bandaríski kylfingurinn Brittany Lincicome aðeins 1 höggi á eftir forystukonunum og 5. sætinu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 11:23

PGA: Hápunktar 4. dags á Farmers Insurance Open – Myndskeið

Í gær lauk Farmers Insurance Open mótinu, móti vikunnar á PGA mótaröðinni bandarísku. Keppt var sem fyrr á Torrey Pines,  í La Jolla, Kaliforníu. Til þess að sjá hápunktana á lokahring Farmers Insurance Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 10:00

Day og Lahiri með stór stökk upp heimslistann

Sigurvegarar helgarinnar á PGA Tour og Evrópumótaröðinni taka stór stökk upp heimslistann. Jason Day sem sigraði á Farmers Insurance Open eftir 4 manna bráðabana var í 8. sæti heimslistans en fer upp um 4 sæti og er nú 4. besti kylfingur heims, á eftir þeim Rory McIlroy sem er í 1. sæti; Henrik Stenson í 2. sæti og Bubba Watson, sem er í 3. sæti. Íslandsvinurinn og Indverjinn Anirban Lahiri sigraði á Maybank Malaysia Open og fór við það upp um 36 sæti á heimslistanum. Fyrir mótið var Lahiri í 73. sæti en er nú kominn upp í 37. sæti á heimslistanum. Þetta er það hæsta sem bæði Day og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 07:45

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá keppir í Kaliforníu í dag

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State, The Bulldogs, hefja leik í dag á The Golfd Rush. Mótsstaður er Old Ranch CC á Long Beach í Kaliforníu og stendur mótið 9.-10. febrúar 2014. Þátttakendur eru 65 frá 11 háskólum. Guðrún Brá fer út af 1. teig kl. 8.30 að staðartíma Fylgjast má með gengi Guðrúnar Brá með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 01:15

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín hefur leik í dag í Texas

Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette, The Ragin Cajuns, hefja í dag leik á Oak Hills Invitaional. Mótið fer fram í Oak Hills CC, í San Antonio, Texas og er tveggja dagana 9.-10. febrúar 2015. Þátttakendur eru frá 15 háskólum. Fylgjast má með Haraldi Franklín á skortöflu með þvi að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 01:06

PGA: Jason Day sigraði á Farmers Insurance Open e. 4 manna bráðabana

Það var ástralski kylfingurinn Jason Day sem bar sigur úr býtum eftir 4 manna bráðabana á Farmers Insurance Open í La Jolla, Kaliforníu. Sigurinn vannst þegar á 2. holu bráðabanans. Það voru auk Day þeir Harris English, JB Holmes og Scott Stallings sem voru efstir og jafnir eftir hefðbundinn 72 holu leik, allir á 9 undir pari, 279 höggum. Það varð því að koma til bráðabana og var par-5 18. holan spiluð fyrst.  English og Stallings voru á pari meðan Day og Holmes fengu fugl.  Næst var því einvígi milli þeirra tveggja sem eftir voru á par-3 16. holunni.   Þar fékk Day par en Holmes tapaði sigrinum, með skolla. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2015 | 00:30

Billy Casper látinn

Billy Casper, einn af sigursælustu sigurvegurum á PGA Tour og einn besti púttari allra tíma er látinn. Hann lést í Springville, Utah, í fyrradag, 7. febrúar 2015.  Hann varð 83 ára og banamein hans var hjartaáfall. Skv. syni Billy Casper, Bob, var faðir hans í 5 vikur eftir Þakkargjörðarhátiðina (ens.: Thanksgiving) á sjúkrahúsi þar sem hann barðist við lungnabólgu. Hann gat þó verið heima þar sem hann var í endurhæfingu 4 sinnum í viku. Ástand hans versnaði í síðustu viku og voru kona hans Shirley, til 62 ára og fjölskylda hjá honum þegar Billy Caspar lést. Á árunum 1956 og 1975 vann Casper 51 titil á PGA Tour þ.á.m. 3 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2015 | 16:30

Jamega Tour: Fannar með frábært golf – var á 5 undir pari lokahringinn í Portúgal – 68 högg!

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, átti hreint æðislegan lokahring á móti Jamega Algarve Pro Golf Tour, í Morgado, Portúgal í dag. Fimm íslenskir kylfingar tóku þátt  þ.e. þeir Axel Bóasson, núverandi klúbbmeistari GK; Gísli Sveinbergsson, GK; Kristján Þór Einarsson, GM stigameistari GSÍ 2014;Fannar Ingi Steingrímsson, GHG og  Bjarki Pétursson, GB, en mótinu, sem var tveggja daga lauk í dag, 8. febrúar 2015. Þáttakendur voru 72. Fannar Ingi átti stórglæsilegan seinni hring upp á 5 undir pari, 68 högg en Morgado völlurinn er par-73!!! Á hringnum fékk Fannar Ingi 7 fugla og 2 skolla.  Hann var á sama heildarskori og Scott Drummond frá Skotlandi, en hann er sá eini af þátttakendunum, sem sigrað hefir á móti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2015 | 16:15

GH: Hjálmar Bogi nýkjörinn formaður Golfklúbbs Húsavíkur

Miklar breytingar urðu á stjórn Golfklúbbs Húsavíkur á aðalfundi sem haldinn var fimmtudaginn 5.febrúar 2015. Nýr formaður er Hjálmar Bogi Hafliðason, varaformaður Björg Jónsdóttir, gjaldkeri Gunnlaugur Stefánsson, ritari Jóhanna Guðjónsdóttir. Fundurinn var mjög vel sóttur eða um 30 manns. Góður fundur og létt stemmning, fólk farið að hugsa gott til glóðarinnar fyrir sumarið!  


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Paige McKenzie —- 8. febrúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er bandaríski kylfingurinn Paige MacKenzie.  Paige á afmæli 8. febrúar 1983 og á því 32 ára afmæli í dag. Paige MacKenzie fæddist í Yakima, Washington og byrjaði að spila golf 3 ára gömul. Hún segir foreldra sína og bróður Brock (sem spilaði á Nationwide túrnum og var eitt sinn í Walker Cup) hafa haft mest áhrif á að hún byrjaði í golfi.  Meðal áhugamála Paige er að horfa á íþróttir og að lesa. Hún komst á LPGA í fyrstu tilraun og er með góðan styrktarsamning við Nike. Paige MacKenziePaige útskrifaðist 2001 úr Eisenhower High School þar sem hún var  first-team All-Big-9 selection öll 4 ár sín í menntaskóla. Hún var Lesa meira