Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Þór Bjarkason – 17. febrúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Bjarki Þór Bjarkason. Hann er fæddur 17. febrúar 1964 og á því 51 árs afmæli í dag. Bjarki er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og er með 22,1 í forgjöf. Bjarki er trúlofaður Ingibjörgu Magneu og þau eiga 4 syni. Komast má á facebook síðu Bjarka til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan Bjarki Bjarkason (51 árs afmæli – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Michael Hoke Austin, f. 17. febrúar 1910 – d. 23. nóvember 2005; Michael Jordan, 17. febrúar 1963 (52 árs); Ignacio Elvira, 17. febrúar 1987 (28 ára) ….. og ….. Aron Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2015 | 14:30
Champions Tour: Lee Janzen vann ACE Group Classic mótið!

Lee Janzen vann um helgina fyrsta titil sinn á Champions Tour. Það gerði hann á ACE Group Classic mótinu, sem fram fór í Twin Eagles golfklúbbnum í Naples, Flórída. Eftir hefðbundinn 72 holu leik voru þeir Janzen og Bart Bryant efstir og jafnir báðir búnir að spila á samtals 16 undir pari, 200 höggum hvor; Janzen (68 65 67) og Bryant (70 68 62). Það varð því að koma til bráðabana og var par-4 18. hola Twin Eagles Talon vallarins spiluð og þar sigraði Janzen með pari, en Bryant datt strax úr leik á 1. holu með skolla. Í 3. sæti varð Esteban Toledo á samtals 14 undir pari og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2015 | 13:00
GB: Mótaskráin komin inn á golf.is

Mótaskrá GB er komin inn á golf.is Vorið hefst hjá GB með glæsilegu vormóti 9. maí 2015. Meistaramót GB í ár hefst 1. júlí og svo eru ýmsir fastir liðir á dagskrá eins og Opna Gevalíamótið 16. maí 2015 og Opna Icealandair Hotels 18. júlí n.k. Síðan fer fram eitt mót á Íslandsbankamótaröðinni þ.e. 5. mótið en það fer fram 22. ágúst 2015. Sjá má mótaskránna í heild með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2015 | 11:00
Fékk hús í verðlaun fyrir ás!

Verðlaun í golfi fyrir ása eru venjulega ansi frábær. Hér á landi jafnvel þekkist að í verðlaun séu utanlandsferðir, eða bílar en heldur óvenjulegra var að í verðlaun væri naut eins og a.m.k. 1 dæmi er um á Norðurlandi. Erlendis þekkjast geimferðir í verðlaun og nú bætast enn ein glæsiverðlaunin sem sögur fara af við; en á True Thailand Classic s.l. helgi (14.-15. febrúar 2015) var í verðlaun heilt hús fyrir að fara holu í höggi á par-3 14. holunni sem er 192 yardar (175 metra). Heimamaðurinn Panuphol Pittayarat var kominn 5 yfir par þegar hann náði draumahögginu, sem ekki bara bætti skor hans til muna heldur er þessi 22 ára Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2015 | 09:00
Hvorum tekst að halda boltanum uppi lengur GMac eða Robbie Keane? Myndskeið

Fyrirliði írska landsliðsins í fótbolta Robbie Keane og nr. 20 á heimlistanum í golfi Graeme McDowell (GMac) fóru nú um daginn í keppni um hvor þeirra gæti lengur haldið uppi bolta – Keane, fótbolta og GMac golfbolta. Líklegast gæti keppnin hafa staðið yfir dögum saman ef þeir hefðu viljað. Spurning hvor þeirra hafði betur? Hér má sjá myndskeið af þeim Keane og GMac SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2015 | 08:00
GR: Þorrablóti aflýst vegna dræmrar þátttöku

Þorrablóti Golfklúbbs Reykjavíkur sem fara átti fram laugardagskvöldið 21. febrúar hefur verið aflýst vegna dræmrar þátttöku. Menn missa þar með af frábærum skemmtiatriðum en m.a. ætlaði Guðni Ágústsson að mæta og segja gaman- sögur. Þeir aðilar sem gengið hafa frá greiðslu við skráningu eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu í síma 585-0200.
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2015 | 07:15
Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Nontaya Srisawang (21/45)

Það voru 3 stúlkur sem deildu 25.-27. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Ein þessara 3 var tælenska stúlkan Nontaya Srisawang. Nontaya Srisawang fæddist 15. desember 1987 í Chiang Mai, Thailandi og er því 27 ára. Nontaya byrjaði að spila golf 12 ára og það var pabbi hennar sem kenndi henni. Hún er góð vinkonu Titiyu Plucksataporn, fyrsta thaílenska kylfingnum á LET. Í janúar árið 2006 gerðist Nontaya atvinnumaður í golfi. Nontayu finnst gaman að hlusta á músík, horfa á kvikmyndir og taka ljósmyndir. Hún lærði Golf Management í Ramkhamhang University Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2015 | 07:00
Davis Love III fyrirliði Ryder bikars liðs Bandaríkjanna í 2. sinn

Skv. óstaðfestum fréttum frá mönnum kunnugum öllum hnútum innanbúða hjá PGA of America hafa ráðamenn þar þegar valið Davis Love III sem fyrirliða liðs Bandaríkjanna í Rydernum á næsta ári, 2016. Golf Channel var fyrst með fréttina. Ryderinn 2016 mun fara fram í Bandaríkjunum. Sagt er að tilkynna eigi formlega um valið 24. febrúar þegar Honda Classic fer fram í höfuðstöðvum PGA í Palm Beach Gardens, Flórida. Love var fyrirliði þegar Evrópu sigraði í „Kraftaverkinu í Medinah 2012″ í Chicago 2012. Lið Bandaríkjanna hefir aðeins sigrað í 1 af s.l. 7 viðeignum heimsálfanna í Ryder bikarnum. Búist er við að lið Evrópu tilnefni Darren Clarke sem fyrirliða sinn í Rydernum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Stacy Lewis —— 16. febrúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er nr. 3 á Rolex-heimslista kvenna og fyrrum nr. 1 – Stacy Lewis. Stacy er fædd 16. febrúar 1985 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Peter Corsar Anderson, f. 16. febrúar 1871 – d. 26. ágúst 1955; Donald Ray Seachrest, f. 16. febrúar 1933 – d. 20. janúar 2006; Marlene Hagge. f. 16. febrúar 1934 (81 árs); Stephen McAllister, 16. febrúar 1962 (53 ára); Ana Belén Sánchez, 16. febrúar 1976 (39 ára); Stacy Lewis, 16. febrúar 1985 (30 ára); Hjörleifur G. Bergsteinsson, GK, 16. febrúar 1992 (23 ára) ……og ….. Ragnar Ágúst Ragnarsson GK, (22 ára) Skemmti Síða Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2015 | 14:00
Nýju stúlkurnar á LET 2015: Kelsey MacDonald (29/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó. Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku. Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015. Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34. Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 8.-34. sætinu. Næst Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

