Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2015 | 08:00
Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín varð í 20. sæti í Texas – Ragnar Már með góðan endasprett

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese State og Haraldur Franklín Magnús, GR og golflið Louisiana Lafayette, The Ragin Cajuns tóku þátt í Bayou City Collegiate Championship, en mótinu lauk í gær. Mótið fór fram í Golf Club of Houston, Texas og voru þátttakendur 87 frá 15 háskólum. Haraldur Franklín lék á samtals á 217 höggum (75 71 71) og varð T-20 í einstaklingskeppninni. The Ragin Cajuns höfnuðu í 12. sæti í liðakeppninni. Ragnar Már lék samtals á 225 höggum (75 80 70) og bætti sig um 10 högg milli hringja. Hann lauk keppni í T-60 í einstaklingskeppninni og fór upp um 17. sæti frá deginum þar áður. McNeese skólalið Ragnars Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 20:00
GA: Vel heppnuð heimsókn hjá Birgi Leif

Á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar má lesa eftirfarandi frétt: „Um síðustu helgi kom Birgir Leifur Hafþórsson í heimsókn til okkar í Golfhöllina (á Akureyri). Bauð hann upp á golfkennslu og skemmtilega leiki/æfingar fyrir okkar börn/unglinga sem og fyrir aðra GA félaga. Það var fjöldi fólks sem mætti og nýtti sér þetta frábæra tækifæri til að fá leiðsögn frá Íslandsmeistaranum og var mikil ánægja með þessa heimsókn. Það er okkar von að endurtaka þetta aftur í mars ef tími gefst til og verður það þá nánar auglýst síðar. Við þökkum Birgi Leif kærlega fyrir komuna sem og öllum þeim GA félögum sem lögðu leið sýna til okkar í Golfhöllina.“
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 19:00
PGA: Glæsipar Garcia á 3. hring Northern Trust Open – Myndskeið

Sergio Garcia náði því sem golffréttamiðlar vestra hafa talið eitt af glæsilegustu pörum í allri golfsögunni í gær á .3 hring Northern Trust Open. Garcia slæsaði teighöggið sitt svo langt til hægri á par-4 13. holunni í Riviera Country Club að boltinn lenti í flatarglompu …. við 10. holu. Garcia sá ekkert fyrir trjám og sjónvarpsturni og átti fyrir höndum næstum ómögulegt björgunarhögg. Garcia bað dómara um leyfi til að taka niður upphækkað teigbox á 11. holu áður en hann dró 3-járnið úr pokanum og cuttaði höggið lágt milli tveggja trjáa og komst fyrir eitthvert kraftaverk rétt fyrir framan flöt á 13. braut. Eftirleikurinn var auðveldur eitt högg eitt pútt og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 17:50
Ólafur Björn komst ekki gegnum niðurskurð – Munaði 1 höggi!

Ólafur Björn Loftsson, NK, hefir lokið leik á 2. hring Nordic Golf League mótaraðarinnar á Spáni, þ.e. á Nordea Tour Winter Series Lakes Open. Leikið er á velli Lumine golfklúbbsins í Tarragona, Spáni, en mótið stendur 21.-23. febrúar 2015 og lýkur því á morgun. Ólafur Björn spilaði samtals á 6 yfir pari, 149 höggum (73 76). Hann varð í 54.-56. sæti (deildi 54. sætinu með þeim William Adolfson og Johan Wahlqvist frá Svíþjóð ) og komst því miður ekki í gegnum niðurskurð. Það munaði 1 höggi! Sjá má stöðuna á Nordic Golf League mótinu á Spáni eftir 2. dag með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 17:30
Lee Westwood í ræktinni

Flestir af bestu kylfingunum gera sér grein fyrir hversu mikilvægt það er samhliða golfíþróttinni að vera í ræktinni til þess að hafa nóg af styrk í keppnum. Einn þeirra sem gerir sér grein fyrir mikilvægi þess er Lee Westwood, (Westy) 41 árs. Hann varð nú nýlega T-5 í Maybank Malaysia Open og borgar fyrir velgengnina með blóð, svita og tárum í rætkinni og æfingasvæðinu. Westy sýnir ágætis takta í rætkinni í myndskeiðinu hér að neðan þar sem hann tekur vel á! Myndum af öllum æfingum sínum m.a. sumo squats póstar hann síðan á Instagram. Sjá með því að SMELL A HÉR: Sjá má dæmi um átök Lee Westwood í ræktinni með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 16:45
PGA: Hápunktar 3. dags á Northern Trust – Myndskeið

Þriðji hringur Northern Trust Open mótsins fór fram í Riviera golfklúbbnum í Pacific Palisades, í Kaliforníu í gær. Hér má sjá hápunkta 3. dags á Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR: Lokahringurinn verður spilaður í kvöld og spennandi að sjá hvort Retief Goosen frá Suður-Afríku tekst að sigra eftir að hafa verið meira og minna í forystu allt mótið!
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 16:20
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og Rúnar við keppni í Puerto Rico

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Rúnar Arnórsson, GK eru nú við keppni á Puerto Rico Classic, í Puerto Rico. Þátttakendur í mótinu eru 75 frá 15 háskólaliðum. Sem stendur eru báðir Guðmundur Ágúst og Rúnar fyrir miðju skortöflunnar, en þeir eiga báðir eftir að ljúka 4-5 holum. ETSU, skólalið Guðmundar er sem stendur í 5. sæti í liðakeppninni (þegar þetta er ritað kl. 16:00) og lið Rúnars (The Gophers, lið Minnesota háskóla) er T-8, en þetta getur enn allt breyst. Til þess að fylgjast með stöðunni SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Vijay Singh ———- 22. febrúar 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Vijay Singh. Hann er aldeilis búinn að standa sig vel á Northern Trust Open, sem er mót vikunnar á PGA Tour. Vijay var mikið í fréttum fyrir tæpum 2 árum (2013) vegna notkunar á hjartarhornsspreyi, sem inniheldur ólögleg efni, sem eru á bannlista PGA. Vijay Singh fæddist 22. febrúar 1963 á Lautoka á Fídji og á því 52 ára afmæli í dag!!!! Hann ólst upp í Nadi. Í dag býr hann á Ponte Vedra Beach í Flórída. Um barnæsku sína sagði Vijay eitt sinn við blaðamenn: “Þegar ég var krakki höfðum við ekki efni á golfboltum og við urðum að spila með kókoshnetum. Faðir minn sagði: “Vijay Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 12:00
Evróputúrinn: Íslandsvinurinn Lahiri sigraði á Hero Indian Open

Úrslit á Hero Indian Open, sem er samtarfsverkefni Evrópumótaraðarinnar og Asíutúrsins réðist í bráðabana. Og það indverskum!!! Það voru tveir indverskir kylfingar sem bitust um sigurinn á heimavelli þ.e. í Delhi golfklúbbnum í Nýju-Delhi, höfuðborg Indlands í morgun: Íslandsvinurinn Anirban Lahiri, sem hafði betur og SSP Chawrasia. Báðir voru þeir efstir og jafnir eftir 72 spilaðar holur; báðir á 7 undir pari, 277 höggum. Það varð því að koma til bráðabana og þar fékk Lahiri fugl á par-5 18. holuna og vann þar með mótið!!! Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Anirban Lahiri með því að SMELLA HÉR: Til þess að sjá lokastöðuna á Hero Indian Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2015 | 11:00
Ólafur í 29. sæti á Spáni e. 1. dag

Ólafur Björn Loftsson , NK, hóf keppni á 1. móti Nordic Golf League mótaraðarinnar á Spáni í gær, þ.e. á Nordea Tour Winter Series Lakes Open. Leikið er á velli Lumine golfklúbbsins í Tarragona, Spáni, en mótið stendur 21.-23. febrúar 2015. Ólafur Björn lék 1. hring á 1 yfir pari, 73 höggum og er í 29. sæti eftir 1. dag. Simon Gundorph frá Kokkedal golfklúbbnum í Danmörku er í 1. sæti e. 1. dag á 6 undir pari, 66 höggum. Sjá má stöðuna á Nordic League mótinu á Spáni með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

