Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2015 | 20:00

WGC: Rory hendir kylfu í vatn í reiðikasti á 2. hring Cadillac heimsmótsins – Myndskeið

Nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy henti kylfu sinni í vatn í reiðikasti vegna slæms gengis á vellinum á 2. hring Cadillac heimsmótsins í gær. Þessi viðbrögð komu eftir að hann hafði slegið bolta sínum í vatn … Rory lét kylfuna fylgja á eftir. Sjá má atvikið m.a. með því að SMELLA HÉR:  „Tilfinningin var góð þarna,“ sagði Rory og skiptist á brandara við leikfélaga sinn, Henrik Stenson, sem þekktur er fyrir skapbræði á vellinum. „Ég myndi ekki hvetja neinn til þess að gera þetta; sérstaklega ef það eru börn að horfa á heima. Í fyrsta lagi er þetta dýrt og í öðru lagi ætti maður ekki að vera að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2015 | 18:00

GR: Skemmtikvöld GR-kvenna 2015

Á heimasíðu Golfklúbbs Reykjavíkur má lesa eftirfarandi frétt: „Það er komið að því að krýna púttmeistara ársins 2015 í Cross-púttmótaröðinni. Við höfum sýnt að við erum til alls líklegar. Nú þéttum við hópinn enn frekar, eigum góða stund saman, borðum góðan mat, skálum og gleðjumst og mætum óvæntum uppákomum. Tímasetning: föstudagur 13.mars 2015 Staðsetning: Golfskálinn Grafarholti Húsið opnar kl.19:00 með fordrykk Glæsilegur þriggja rétta málsverður a la Sigrún og hennar frábæra fólk: Fordrykkur að hætti hússins Forréttur Djúpsteiktur camenbert með rifsberjahlaupi, fersku salati og hunangshnetum Aðalréttur Lambahryggsvöðvi með rótarmusse, graskersstrimlum og pipargljáa Eftirréttur Volg súkkulaðikaka með karamellu og þeyttum rjóma kaffi / te … og dagskráin er glæsileg að vanda: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jesper Parnevik og Þorbjörn Guðjónsson – 7. mars 2015

Það eru sænski kyflingurinn Jesper Parnevik og Þorbjörn Guðjónsson, GR sem eru afmæliskylfingar dagsins. Þeir eru báðir  fæddir 7. mars 1965 og eiga því báðir 50 ára stórafmæli í dag! Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Homero Blancas, 7. mars 1938 (77 ára); Tom Lehman, 7. mars 1959 (56 ára); Vilhjálmur Steinar Einarsson, GSG, 7. mars 1961 (54 ára); Alena Sharp, 7. mars 1981 (34 ára) ….. og ….. Þórir Einarsson Long  F. 7. mars 1989 (26 ára) Hlín Einarsdóttir F. 7. mars 1977 (38 ára) Alejandro Pedroza F. 7. mars 1975 (40 ára – Happy B-day Alejandro!!!) Alfreð G Maríusson F. 7. mars 1962 (53 ára) Elín Soffía Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2015 | 10:00

Hver er kylfingurinn: JB Holmes? (1/2)

Bandaríski kylfingurinn JB Holmes er búinn að leiða á WGC Cadillac heimsmótinu, fyrstu tvo keppnisdagana. Það er kunnara en í frásögur sé færandi að Holmes er snjall kylfingur; en han hefir aldrei verið meðal þeirra allra fremstu og hefir aldrei verið eins eins vinsæll og landar hans Rickie Fowler, Bubba  Watson eða Dustin Johnson. En hver er kylfingurinn JB Holmes? JB heitir fullu nafni John Bradley Holmes og fæddist hann 28. apríl 1982 í Cambellsville, Kentucky og er því 33 ára.  Hann byrjaði að spila með golfliði Taylor County High School í Campbellsville þegar hann var í 3. bekk. Hann þjáðist af mildri lesblindu þegar hann var í skóla. Æskuvinur Holmes, Brandon Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2015 | 05:01

LPGA: Ciganda og Park efstar e. 2. hring í Singapore – Aza í 3. sæti

Það eru þær Carlota Ciganda frá Spáni og Inbee Park sem eru efstar og jafnar eftir 2. hring HSBC Women´s Champions í Singapore. Báðar léku á 9 undir pari; 135 höggum;  Ciganda (69 66) og Park (66 69). Í 3. sæti er spænski kylfingurinn Azahara Muñoz á samtals 7 undir pari, 137 höggum (70 67). Fjórða sætinu deila síðan Lydia Ko, Stacy Lewis, Karrie Webb og Jenny Shin. 3. hringurinn er þegar hafinn og má fylgjast með genginu á HSBC Women´s Champions með því að SMELLA HÉR:  


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2015 | 05:00

WGC: JB Holmes enn efstur e. 2. hring á Cadillac mótinu

Bandaríski kylfingurinn JB Holmes heldur enn forystu sinni á Cadillac heimsmótinu á Bláa Skrímslinu í Flórída. Eftir 2. hringi er Holmes búinn að spila á samtals 9 undir pari, 135 höggum (62 73). Í 2. sæti 2 höggum á eftir Holmes, (á samtals 7 undir pari) er enn bandaríski kylfingurinn Ryan Moore og í 3. sæti er Adam Scott með nýja, stutta pútterinn sinn á samtals 6 undir pari (70 68). Fjórða sætinu deila síðan Bubba Watson og Henrik Stenson á samtals 4 undir pari, hvor. Nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy, fikrar sig hægt upp skortöfluna en hann bætti sig um 3 högg frá fyrsta hring (73 70) og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2015 | 04:00

Evróputúrinn: Matt Ford efstur í hálfleik Africa Open – Hápunktar 2. dags

Það er Englendingurinn Matt Ford sem leiðir í hálfleik Africa Open. Ford er búinn að spila East London völlinn á Eastern Cape, S-Afríku á samtals 11 undir pari, 133 höggum (67 66). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir er Spánverjinn Edoardo De La Riva (68 66). Í 3. sæti eru 3 kylfingar: Frakkinn Grégory Bourdy og heimamennirnir Jaco Van Zyl og Erik Van Rooyen. Til þess að sjá stöðuna efitr 2. dag á Africa Open SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Africa Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 6. 2015 | 19:30

Adam Scott heitur með nýja stutta pútternum – Myndskeið!

Hér má sjá myndskeið af Adam Scott með nýja, stutta White Ice Core #7 pútter nú í morgun fyrir hring hans SMELLIÐ HÉR:  


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 6. 2015 | 18:00

WGC: Fuglapútt Matt Kuchar á 2. hring Cadillac mótsins

Bandaríski kylfingurinn Matt Kuchar setti niður frábært fuglapútt á 2. hring Cadillac heimsmótsins, en 2. hringur er einmitt leikinn þessa stundina. Fuglinn fékk Kuchar á hina frægu par-4 17. holu Bláa Skrímslisins. Sem stendur er bandaríski kylfingurinn Brandon Hagy Sjá má fuglapútt Kuchar með því að SMELLA HÉR:  Fylgjast má með Cadillac mótinu á skortöflu Með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 6. 2015 | 16:00

Harrison Ford slasaður eftir nauðlendingu á golfvelli

Bandaríski leikarinn, Harrison Ford, er slasaður eftir að flugvél sem hann var í lenti á golfvelli í Los Angeles. Ford var sjálfur undir stýri, en hér má hlusta á samtal hans við flugturninn rétt áður en vél hans fór niður SMELLIÐ HÉR:  Þar segir Ford m.a. frá því að um vélarbilun hjá sér hafi verið að ræða og biður um lendingarleyfi. Talið er að hann hafi bjargað fjölda mannslífa með því að lenda á golfvellinum, sem var skammt frá flugvellinum. Harrison Ford er mikið slasaður en hér má sjá frásögn TMZ af því SMELLIÐ HÉR