Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2015 | 10:00
Ef Tiger tekur ekki þátt í Masters söknum við hans?

Nafnið á fyrirsögninni er það sem prýðir grein eina í USA Today. Í greininni segir m.a. að frétt þess efnis að Tiger ætli ekki að taka þátt í Arnold Palmer Inv. sem hefst á Bay Hill í dag, hafi næstum verið ekki frétt hjá því sem menn fóru þá þegar að velta fyrir sér hvort Tiger yrði nógu hress til að spila á Masters risamótinu sem hefst í næsta mánuði. Í greininni er því gert í skóna að Tiger muni ekki taka þátt í Masters fyrst hann tekur ekki þátt í einu af uppáhaldsmótum sínum hjá þeim kylfingi, Arnold Palmer, sem hann dáist einna mest að. Hann muni ekkert snúa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2015 | 08:00
Dýr á golfvöllum: Gamalt myndskeið um dýr á PGA Tour mótum!

Nú nýlega hafa borist fréttir frá Flórída af gríðarstórum krókódíl sem tafði leik kylfinga – Sjá frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR: Eins varð maður nýlega var við slöngu í golfbolla nokkum og gekk myndin af slöngunni, sem föst var í bollanum eins og eldur í sinu um golffréttaheima. Myndina má sjá hér að neðan: Golf 1 birti fyrir jólin 2014 skemmtilegt myndskeið, þar sem klippt höfðu verið saman 10 atvik, þar sem dýr tefja leik á PGA Tour mótum – Sjá þessa gömlu frétt Golf 1 með því að SMELLA HÉR: – Alltaf gaman að rifja um gömul myndskeið af dýrum á golfvöllum!
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2015 | 07:00
Evróputúrinn: Fylgist með Madeira Islands Open!

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er Madeira Islands Open. Mótið fer fram í Clube do Golf do Santo de Serra, á Madeira í Portúgal, dagana 19.-22. mars. Meðal keppenda er heimamaðurinn snjalli Ricardo Santos, Skotinn Elliot Saltman, Norður-Írinn Gareth Maybin. Fáir frægustu kylfinga heims eru þátttakendur í mótinu, en margir þeirra sem komust í gegn í Q-school Evrópumótaraðarinnar fá að spreyta sig í mótinu. Fylgjast má með á skortöflu með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2015 | 01:00
10 bestu linksarar Írlands

Á Írlandi er gnægð gullfallegra strandvalla m.ö.o. linksara. Hér má sjá yfirlit yfir 10 best að mati yourgolftravel.com SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Einar Aðalbergsson – 18. mars 2015

Það er Einar Aðalbergsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Helgi er fæddur 18. mars 1960 og á því 55 ára afmæli í dag!!! Einar er í Golfklúbbi Suðurnesja (GSKomast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Einar Aðalbergsson (55 ára – Innilega til hamingju með afmælið) Aðrir frægir sem afmæli eiga í dag eru: Macdonald „Mac“ Smith,f. 18. mars 1892 – d. 31. ágúst 1949; Adele Bannermann (áströlsk), 18. mars 1976 (39 ára); Bri Vega, 18. mars 1982 (33 ára); Marousa Polias (áströlsk), 18. mars 1983 (32 árs) …. og ….. Helgi Hólm (74 ára) F. 18. mars 1941 Soffía Björnsdóttir (59 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2015 | 14:10
GSG: Opið mót laugardaginn n.k. á Kirkjubólsvelli

Fyrsta opna golfmót ársins 2015 fer fram um helgina, nánar tiltekið laugardaginn 21. mars n.k. á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Það er greinilegt að íslenskir kylfingar hafa beðið með eftirvæntingu eftir því að fá að spreyta sig í keppnisgolfi. Tæplega 80 manns eru nú þegar skráðir í mótið. Keppnisfyrirkomulagið er punktakeppni og samkvæmt veðurspá helgarinnar verður hitastigið á bilinu 5-8 stig. Til þess að skrá sig í mótið SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2015 | 14:00
Bushnell, Bollé og Cobra í samvinnu við PGA EuroPro Tour

Bushnell, sem er #1 í fjarlægðamælum, Bollé gleraugnaframleiðandinn og Cobra golfvöruframleiðandinn hafa gengið til samvinnu við PGA EuroPro Tour, í viðleitni til að bæta árangur kylfinga á æðsta stigi golgsins. EuroPro golfmótaröðin er sú fyrsta sem heimilar notkun DMD (skammstöfun fyrir Distance Measuring Devices) þ.e. fjarlægðarmæla í mótum sínum. Það eru u.þ.b. 97% kylfinga á PGA Tour og 90% á Evrópumótaröðinni sem nota Bushnell fjarlægðarmæla. EuroPro gengur skrefinu lengra því mótaröðin beinlínis hvetur keppendur að nota fjarlægðarmæla í mótum sínum. Andrew Grose, framkvæmdastjóri Bushnell í Bretlandi, skýrði út samvinnuna: „Við erum afar ánægðir með að vera í samvinnu við svona framsýna mótaröð sem styður þróun ungra, metnaðargjarnra kylfinga sem vilja verða Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2015 | 12:00
Bandaríska háskólagolfið: Dagur og Catawba luku leik í 12. sæti á Hargett Memorial Inv.

Dagur Ebenezersson, GM, og lið hans Catawba luku leik í gær á Hargett Memorial boðsmótinu. Mótið fór fram á Monroe golfvellinum í Norður-Karólínu og voru þátttakendur 84 frá 15 háskólum. Mótinu lauk í gær en það stóð dagana 16.-17. mars 2015. Dagur varð T-66, þ.e. lauk keppni á 27 yfir pari, 243 höggum (84 78 81). Til þess að sjá lokastöðuna á Hargett mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2015 | 10:00
Rory tekur milljarða auglýsingasamning af Tiger

Rory McIlroy er nú nr. 1 á heimslistanum s.s. flestir kylfingar vita; sæti sem áður var fastasæti Tiger Woods. Nú er Rory kominn með enn eitt sem áður tilheyrði Tiger – hann verður framan á golfvídeó tölvuleik, sem mun færa honum jafnvel enn meiri milljónir dala. Tölvuleikjaframleiðandinn Electronic Arts Inc tilkynnti nefnilega á dögunum að Rory myndi vera „nýja andlit“ nýju golfleikja fyrirtækisins. EA Sports Rory McIlroy PGA Tour leikurinn kemur á markað í júní. Og auðvitað fær Rory hluta af allri sölu leikjanna á heimsvísu – en samningurinn er $7 milljóna dala virði ( þ.e. £4.75milljóna sem er svo mikið sem tæpur milljarður íslenskra króna ) Þetta er auglýsingasamingur sem Tiger er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2015 | 08:00
LPGA: JTBC Founders Cup hefst á morgun

Það er JTBC Founders Cup sem er mót vikunnar á LPGA mótaröðinni. Mótið hefst á morgun og stendur dagana 19.-22. mars í Phoenix Arizona. Margir helstu kvenkylfingar heims taka þátt. Þeirra á meðal eru Stacy Lewis, Lydia Ko, Yani Tseng, Michelle Wie og Karrie Webb. Það er einmitt ástralska golfdrottningin Webb, sem á titil að verja í mótinu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

