Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2015 | 04:45

PGA: Stenson efstur f. lokahring Arnold Palmer Inv. – Hápunktar 3. dags

Það er nr. 3 á heimslistanum, Henrik Stenson, sem er efstur fyrir lokahring Arnold Palmer Invitational. Stenson er búinn að spila á samtals 16 undir pari, 200 höggum (68 66 66). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir er forystumaður fyrri helming mótsins, Morgan Hoffmann á samtals 14 undir pari, 202 höggum (66 65 71), en hann spilaði 5-6 höggum verr á 3. hring en hann var búinn að gera dagana þar áður og með hring yfir 70 er hann fljótur að missa forystuna! Fjórir kylfingar deila 3. sætinu: Jason Kokrak, Matt-arnir Every og Jones og Ben Martin, en margir vænta margs af Martin, sem talinn er meðal helstu vonarstjarna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2015 | 20:15

GSG: Árni Þór Freysteinsson sigraði í fyrsta mótinu á Kirkjubólsvelli 2015!

Alls luku 78 kylfingar leik á Kirkjubólsvelli í dag í Opnu punktamóti, því fyrsta á árinu 2015. Áætlað er að halda mót aftur eftir viku og má þegar skrá sig í það með því að SMELLA HÉR:  Leikform var punktakeppni.  Sigurvegari í fyrsta móti ársins hjá GSG varð Árni Þór Freysteinsson, GSE en hann var með 35 punkta, líkt og reyndar þeir tveir sem urðu í 2. og 3. sæti en Árni Þór var með flesta punkta á seinni 9 eða 19. Í 2. sæti varð heimamaðurinn Sveinn Hans Gíslason, GSG á 35 punktum (17 á seinni 9) og í 3. sæti Ásgeir Eiríksson, GS á 35 punktum (en með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2015 | 19:00

Evróputúrinn: Joachim Hansen leiðir á Madeira Islands Open – Mótið stytt í 36 holu mót!

Madeira Islands Open hefir verið stytt í 36 holu mót, alveg eins og gerðist í fyrra. Ástæðan er leiðindaveður sem búið er að vera á Madeira, m.a. mikið hvassviðri. Þó hefir tekist að spila 1 hring og eftir hann er það Daninn Joachim B. Hansen sem leiðir. Hansen spilaði á 4 undir pari, 68 glæsihöggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. leikinn hring á Madeira Islands Open SMELLIÐ HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Peter Campbell – 21. mars 2015

Það er bandaríski kylfingurinn Peter Campbell, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann fæddist 21. mars 1985 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Campbell var í  La Costa Canyon High School, þar sem hann spilaði bæði golf og fótbolta. Hann var í  MVP deildinni nokkrum sinnum og  CIF champion lokaárið sitt og var valinn í  San Diego Hall of Champions Athlete of the Year. Campbell spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði UCLA og gerðist atvinnumaður í golfi 2008. Campbell spilaði í fyrsta PGA Tour móti sínu árið  2008 þ.e. á Buick Invitational. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Myra Abigail „Daria“ Pratt (Pankhurst-, Wright-, -Karageorgevich) f. 21. mars 1859 – Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2015 | 12:00

GB: Hamarsvöllur flottur í sólmyrkvanum

Það fór varla á milli mála að það var sólmyrkvi á Íslandi í gær. Það var almyrkvi 70 km. austur af landinu en á Íslandi var verulegur deildarmyrkvi. Í Reykjavík huldi tunglið 97,5% sólar en 99,4% á Austurlandi. Þetta er seinasti almyrkvi á sólu sem sést frá Evrópu til 12. ágúst 2026, en ferill þess sólmyrkva liggur í gegnum Reykjavík. Björgvin Óskar Bjarnason tók meðfylgjandi mynd á Hamarsvelli í Borgarnesi í gærmorgun þegar sólmyrkvinn stóð sem hæst. Heimild: golf.is  


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2015 | 07:30

PGA: Hoffmann heldur forystu í hálfleik Arnold Palmer Inv – Rory T-6

Hinn lítt kunni, bandaríski kylfingur Morgan Hoffmann heldur enn forystu í hálfleik á Arnold Palmer Invitational og er búinn að breikka bilið milli sín og þeirra sem næstir koma í 3 högg. Hoffmann er búinn að spila á samtals 13 undir pari,  131 höggi (66 65). Í 2. sæti eru þeir Henrik Stenson, Harris English og Matt Every; allir 3 höggum á eftir Hoffmann á samtals 10 undir pari, 134 höggum; allir á (68 66). Einn í 5. sæti er síðan Ben Martin á samtals 9 undir pari og fjórir kylfingar, þ.á.m. Rory McIlroy deila 6. sæti á samtals 8 undir pari, hver. Til þess að sjá stöðuna í hálfleik á Arnold Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2015 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Charley Hull —— 20. mars 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Charley Hull. Charley fæddist 20. mars 1996 og er því 19 ára í dag. Charley er einn alefnilegasti kylfingur Bretlands. Hún komst fyrst í fréttirnar fyrir u.þ.b. 3 árum, þar sem hún fékk ekki að taka þátt í Curtis Cup vegna þess að hún þáði boð um að keppa á Kraft Nabisco risamótinu í lok þessa mánaðar og komst þ.a.l. ekki á æfingu með liði Breta&Íra. Sjá nánar nýlega frétt Golf 1 þar um, SMELLIÐ HÉR: Charley var yngst í sigurliði Solheim Cup 2013 og lagði þar sitt lóð á vogarskálarnar. Hún var líka í fréttum nú fyrir nokkrum dögum þegar hún sigraði í fyrsta móti sínu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2015 | 14:45

LPGA: Ko meðal efstu snemma 1. dags á JTBC Founders Cup

Það eru 4 sem eru efstar og jafnar snemma 1. dags á JTBC Founders Cup, en ekki hefir tekist að ljúka 1. hring vegna mikilla rigninga. Þetta eru nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Lydia Ko og eins þýski kylfingurinn Sophia Popov og bandarísku kylfingarnir Tiffany Joh og Kim Kaufman, sem eru efstar og jafnar snemma dags, en reynt verður að framhalda leik í dag. Þær 3 sem deila forystunni með Ko eru fremur óþekktar en engu að síðu hefir Golf 1 kynnt þær Popov sjá með því að SMELLA HÉR: og Tiffany Joh – Sjá með því að SMELLA HÉR: Sjá má kynningarmyndskeið með hinni fremur óþekktu Kim Kaufman með því Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2015 | 14:15

Bjarki við keppni á Sardiníu

Bjarki Pétursson, afrekskylfingur í GB er sem stendur við keppni á Sardiníu. Mótið sem Bjarki tekur þátt í ber nafnið: Campionato Internazionale D´Italia Maschile og fer fram á Circolo Golf Is Molas, á Sardiníu.  (Ísmola-vellinum 🙂 Mótið stendur 19.-21. mars 2015 og þátttakendur 132. Á facebook síðu sína skrifaði Bjarki: „Erfiður dagur í dag, spilaði á Is molas vellinum í Sardiníu (Italíu). Síðasta vika fór í að breyta nokkrum áhersluatriðum í leiknum mínum og hefur það gengið mjög vel. Aftur á móti náði ég því ekki út á völlinn í dag og niðurstaðann 76 (+4) högg. Völlurinn sjalfur er að spilast erfiður og sýnir það sig þegar maður spilar illa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2015 | 12:30

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Julie Yang (25/45)

Það voru 7 stúlkur sem deildu 18.-24. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á  LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Aðeins 20 stúlkur fengu fullan spilarétt á LPGA 2015 og því varð að fara fram bráðabani milli þessa 7 stúlkna og komust 3 áfram og fengu fullan spilarétt þ.e.: Laetitia Beck, Garrett Phillips og Karlin Beck en hinar 4 fengu aðeins takmarkaðan spilarétt þ.e.: Julie Yang, Jacqui Concolino, Stephanie Meadow og Casey Grice. Byrjað verður að kynna þær 4 óheppnu sem töpuðu í bráðabananum um fullan keppnisrétt á LPGA og eru því líkt og hinar 22 sem Lesa meira