Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2015 | 10:00

LPGA: Kerr sigurvegari Kia Classic

Það var bandaríski kylfingurinn Cristie Kerr, sem stóð uppi sem sigurvegari á Kia Classic móti vikunnar á LPGA. Cristie lék á samtals 20 undir pari, 268 höggum (67 68 68 65) en það var einkum glæsilokahringur hennar upp á 65 högg sem tryggði henni sigurinn. Í 2. sæti varð Mirim Lee, sem búin var að leiða mestallt mótið en hún lék á samtals 18 undir pari, og nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Lydia Ko varð í 3. sæti á samtals 17 undir pari. Nýliðinn Alison Lee varð í 4. sæti á samtals 16 undir pari og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna Inbee Park í 5. sæti á samtals 15 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2015 | 08:00

PGA: Jimmy Walker sigraði á Valero Texas Open – Hápunktar 4. dags

Bandaríski kylfingurinn Jimmy Walker sigraði á Valero Texas Open í gær. Hann lék JW Marriott TPC San Antonio á samtals 11 undir pari, 277 höggum (71 67 69 70). Í 2. sæti 4 höggum á eftir Walker varð heimamaðurinn ungi Jordan Spieth á samtals 7 undir pari, 281 höggi (71 69 71 70). Í 3. sæti varð svo Billy Horschel á samtals 4 undir pari.   Allt Bandaríkjamenn í efstu 3 sætunum! Til þess að sjá lokastöðuna á Valero Texas Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta lokahringsins þ.e. 4. dags á Valero Texas Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2015 | 19:30

Afmæliskylfingur dagsins: Gerina Piller ——— 29. mars 2015

Afmæliskylfingur dagsins er bandaríski kylfingurinn Gerina Piller, en hún er fædd 29. mars 1985 og á því 30 ára stór-afmæli í dag!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ernest Joseph (E. J.) „Dutch“ Harrison f. 29. mars 1910 – 19. júní 1982; Sue Fogleman, 29. mars 1956 (59 ára) spilaði á LPGA; Gunnar Páll Þórisson GKG, 29. mars 1961 (54 ára); Kirk Allan Triplett, 29. mars 1962 (53 ára); Lori Atsedes 29. mars 1964 (51 árs); …. og …. Toggi Bjöss F. 29. mars 1944 (71 árs) Gudrun Þórs F. 29. mars 1972 (43 ára) Ingimar Kr Jónsson F. 29. mars 1970 (45 ára) Golf 1 óskar öllum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2015 | 19:00

Evróputúrinn: Ramsay sigurvegari í Marokkó – Hápunktar 4. dags

Skotinn Richie Ramsay sigraði á  Hassan Trophée II mótinu, sem fram fór í Agadír, Marokkó, en mótið var mót vikunnar á Evróputúrnum. Ramsay lék á samtals 10 undir pari, 278 höggum (72 66 71 69). Á dramatískum lokahring fékk Ramsay 4 fugla í röð á 3.-6. holu og var kominn 3 högg í forystu. Hann eyddi þeirri forystu á næstu 2 holum þar sem hann fékk fyrst skolla og svo skramba. Þarna var hann kominn 2 höggum á eftir Romain Wattel frá Frakklandi. En þá var komið að seinni fuglaröð Ramsay sem hann fékk á 12.-14. holu og vann Wattel með 1 höggi. Þetta er 3. sigur Ramsay á Evrópumótaröðinni en Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2015 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Rúnar og Minnesota luku leik í Kaliforníu í 17. sæti

Rúnar Arnórsson, GK og golflið Minnesota tóku þátt í The Goodwin, bandarísku háskólamóti, sem fram fór á Stanford golfvellinum í Kaliforníu. Mótið stóð dagana 26.-28. mars og lauk í gær. Þetta var stórt mót; keppendur voru 132 frá 24 háskólum. Rúnar lauk leik T-50 í einstaklingskeppninni var á samtals 4 yfir pari, 214 höggum (70 75 69). Hann var á 2.  besta heildarskori Minnesota. Golflið Minnesota State varð í 17. sæti. Sjá má lokastöðuna á The Goodwin með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Rúnars og golfliðs Minnesota verður í Phoenix, Arizona þann 3. apríl n.k.


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2015 | 03:00

PGA: Walker leiðir e. 3.dag Valero Texas Open – Hápunktar 3. dags

Jimmy Walker er enn í forystu á Valero Texas Open e. 3. keppnisdag. Hann hefir nú fjögurra högga forystu á þann sem er í 2. sæti, en það er Jordan Spieth. Walker er búinn að spila á samtals 9 undir pari, 207 höggum (71 67 69). Spieth er á samtals 5 undir pari, 211 höggum (71 69 71). Í 3. sæti er Billy Horschel á samtals 3 undir pari. Til þess að sjá stöðuna á Valero Texas Open eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Valero Texas Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Liebelei Elena Lawrence – 28. mars 2015

Afmæliskylfingur dagsins er grísk-lúxembúrgíski kylfingurinn Liebelei Elena Lawerence, en hún er fædd 28. mars 1986 og því 29 ára í dag. Liebelei fluttist frá Aþenu til Lúxembourg, þegar hún var 3 ára gömul. Hún byrjaði að spila golf 10 ára gömul og er í dag með 1,6 í forgjöf. Gríska stúlkan með fallega nafnið spilar í dag á Evrópumótaröð kvenna (LET). Liebelei Lawrence Liebelei var í Vanderbilt University í Nashville Tennessee á golfstyrk, þar sem hún spilaði golf í 4 ár (2004-2008). Öll árin var hún „Letter Winner“ og spilaði á 2. „teem All-Sec“ á lokaári sínu í háskóla. Hún varð í 19. sæti á lokaúrtökumóti LET, sem fram fór Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2015 | 14:00

Fyndin golfmistök þeirra bestu – Myndskeið

Það gera allir mistök í golfi. Líka þeir bestu. Hér má sjá myndskeið þar sem golfstjörnunum verður á út á velli SMELLIÐ HÉR:  Jafnvel þó myndskeiðið er gamalt er það alltaf jafngott fyrir því!


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2015 | 11:05

Evróputúrinn: Richie Ramsay meðal 4 sem leiða í hálfleik Hassan Trophée

Skoski kylfingurinn Richie Ramsay leiðir á Hassan Trophée mótinu í Marokkó í hálfleik, en mótið er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni. Ramsay deilir forystunni ásamt 3 öðrum þ.e. þeim Rafael Cabrera-Bello og Richard Green. Oliver Farr virtist ætla að næla sér í toppsætið í hálfleik einn, en gerði mistök á 18. og er nú efstur og jafn þessum 3 framangreindum. Sjá má hápunkta 2. dags á Hassan Trophée með því að SMELLA HÉR: Þriðji hringurinn er þegar hafinn og má fylgjast með gangi mála á skortöflu með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2015 | 11:00

LPGA: Morgan Pressel og Mirim Lee efstar í hálfleik Kia Classic

Morgan Pressel jafnaði vallarmetið á golfvelli Aviara golfklúbbsins í gær; með glæsispili upp á 8 undir pari, 64 högg og leiðir nú í hálfleik (70 64) Kia Classic ásamt Mirim Lee frá Suður-Kóreu (65 69). Báðar eru þær búnar að spila á samtals 10 undir pari, hvor og eiga 1 högg á  Cristie Kerr (67 68) og nýliðann Alison Lee (69 66). Fjórir kylfingar eru síðan T-5 á samtals 8 undir pari; þ.e. sigurvegari s.l. viku Hyo Joo Kim,Brittany Lang frá Bandaríkjunum, Maria Hernandez frá Spáni og Sakura Yokomine frá Japan. Nr. 1 á Rolex heimslista kvenna, Lydia Ko er T-8 ásamt nr. 3 á kvenkylfingsheimslistanum, Stacy Lewis, og Alison Walshe, en þær Lesa meira