Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2015 | 16:00
Sextíu sekúndna viðtal við Rory

Hafið þið nokkru sinni velt fyrir ykkur með hverjum nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy myndi vilja spila golf; hver sé nánasti vinur hans á PGA Tour og hverjum hann myndi treysta fyrir að setja niður 10 feta fuglapútt, öðrum en sjálfum sér til þess, fyrir vinningsfjárhæðinni í því sem lagt hefir verið undir í sunnudags vinagolfhring? Einn golffréttamiðillinn lagði 8 spurningar fyrir Rory og hér koma 8 svör hans: Sp: Rory, hvern myndir þú vilja borga fyrir að sjá keppa í móti? Svar Rory: Bubba Watson. Sp: Hverjir myndir þú segja að séu bestu vinir þínir á PGA Tour? Svar Rory: Justin Thomas og Rickie Fowler og mér kemur vel saman Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2015 | 14:00
Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Garrett Phillips (27/45)

Það voru 7 stúlkur sem deildu 18.-24. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Aðeins 20 stúlkur fengu fullan spilarétt á LPGA 2015 og því varð að fara fram bráðabani milli þessa 7 stúlkna og komust 3 áfram og fengu fullan spilarétt þ.e.: Laetitia Beck, Garrett Phillips og Karlin Beck en hinar 4 fengu aðeins takmarkaðan spilarétt þ.e.: Julie Yang, Jacqui Concolino, Stephanie Meadow og Casey Grice. Garrett Phillips var ein af þeim 3 heppnu sem unnu bráðabanann og er með fullan spilarétt á LPGA keppnis-tímabilið 2015. Laetitia Beck hefir þegar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2015 | 08:30
Massaður Rory verður að passa sig

Í Business Insider er ágætis grein um Rory og alla þá áherslu sem hann leggur á að vera „fitt“ þ.e. í formi og í ræktinni. Nú þegar Rory reynir í næstu viku að verða aðeins 6. kylfingur heims til þess að klára Grand Slam á ferli sínum (ens. Career Grand Slam) þá verður ekki litið hjá því hversu mikla vinnu hann hefir sett í að verða massaður í rætkinni. Rory var þannig m.a. nýlega á forsíðu „Men´s Health“ þar sem hann ræddi um æfingaprógramm sitt, sem hann hefir m.a. gert myndskeið um fyrir Nike. Skv. Brian Wacker á PGATour.com hefir Rory minnkað líkamsfitu sína úr 24% í 10% á aðeins Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2015 | 06:55
Ko missti af tækifærinu að slá met Sörenstam

Lydia Ko átti „hræðilegan“ 2. hring á ANA Inspiration mótinu á Rancho Mirage í Kaliforníu, þar sem allt gekk á afturfótunum. Hún lék á 1 yfir pari, 73 höggum og varð því af tækifærinu að slá met Anniku Sörenstam um flesta leikna hringi undir pari í röð á LPGA mótaröðinni. Á fimmtudaginn s.l. jafnaði Ko met Anniku upp á 29 hringi í röð undir pari, en klúðraði því að slá met Anniku í gær. „Ég var bara ekki að hitta brautirnar og þá verður þetta lítið gaman,“ sagði Ko eftir hringinn. „Það er gaman vegna þess að maður var að reyna að húkka og slá lág högg út úr trjánum. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2015 | 05:45
LPGA: Sei Young Kim leiðir í hálfleik ANA Inspiration

Það er Sei Young Kim, frá Suður-Kóreu, sem leiðir í hálfleik á ANA Inspiration í Kaliforníu. Kim lék á 7 undir pari, 137 höggum (72 65). Hin 22 ára Kim vann fyrsta LPGA Tour titil sinn í febrúar á Bahamas. Hún er fimmfaldur sigurvegari á kóreanska LPGA og er að spila í 13. sinn á bandarísku LPGA mótaröðinni. Í 2. sæti, 2 höggum á eftir Kim er forystukona 1. dags Morgan Pressel á 5 undir pari, 139 höggum (67 72). Í 3. sæti eru síðan skoska golfdrottningin Catriona Matthew, bandaríski kylfingurinn Brittany Lincicome og Jenny Shin, frá S-Kóreu, allar á samtals 4 undir pari, hver. Til þess að sjá stöðuna á ANA Inspiration í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2015 | 05:30
PGA: Andrew Putnam leiðir í hálfleik Shell Houston – Mickelson í 2. sæti – Hápunktar 2. dags

Það er Andrew Putnam, sem leiðir í hálfleik á Shell Houston Open, á 12 undir pari. Sjá má kynningu Golf 1 á Andrew Putnam með því að SMELLA HÉR: Í 2. sæti eru Phil Mickelson og Austin Cook aðeins 1 höggi á eftir og fjórða sætinu deila þeir Luke Guthrie og Graham DaLaet, enn öðru höggi á eftir þ.e. á samtals 10 undir pari, hvor. Það sem heillar fyrir utan hátt verðlaunaféð á Shell Houston er boðsmiðinn á The Masters risamótið, sem sigurvegarinn hlýtur. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Shell Houston Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Shell Houston Open SMELLIÐ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2015 | 22:45
Staðfest: Tiger tekur þátt á Masters!!!

Kannski það hafi verið æfingahringur Tiger Woods á Augusta sem sannfærði hann um að taka þátt á fyrsta risamóti ársins The Masters; en nú er allaveganna orðið opinbert að Tiger verður meðal keppenda á Masters í næstu viku. Tiger snýr því aftur til keppnisgolfsins. Í fréttatilkynningu frá Tiger sagði: „Það er mér augljóslega mjög mikilvægt og ég vil vera þarna. Ég hef unnið mikið í leik mínum og ég hlakka til að keppa. Ég hlakka til að keppa á Augusta og ég er þakklátur fyrir stuðning allra.“ Tiger keppti síðast á The Masters 2013 þegar mikið uppnám varð vegna „ólögmæts dropps hans“, sem síðan kom í ljós að ekkert ólögmætt var Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2015 | 20:00
GBE: Lagfæringar á Byggðarholtsvelli

Í dag, föstudaginn langa, fór hann Siggi og að dytta að ýmsu á golfvellinum hjá Golfklúbbi Eskifjarðar, þ.e. Byggðarholtsvelli. Eins og sjá má er enn snjór yfir öllu, föstudaginn langa, 3. apríl 2015, á Eskifirði. Við þetta tækifæri voru meðfylgjandi myndir teknar:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2015 | 16:09
Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá við keppni í Mississippi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State taka þátt í Rebel Intercollegiate en mótið hófst í dag og stendur til 5. apríl 2015. Þátttakendur eru 96 frá 18 háskólum. Guðrún hóf leik kl. 8:15 að staðartíma (kl. 13:15 að íslenskum tíma) af 8. teig. Þegar Guðrún Brá er búin að spila 9 holur er hún T-11 þ.e. deilir 11. sæti með nokkrum öðrum keppendum. Til þess að fylgjast með Guðrúnu Brá og Fresno State í Mississippi SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Alexander Pétur Kristjánsson – 3. apríl 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Alexander Pétur Kristjánsson. Alexander er fæddur 3. apríl 1997 og er því 18 ára í dag. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Komast má á facebook síðu afmæliskylingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið Alexander Pétur Kristjánsson F. 3. apríl 1997 (18 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Joseph Henry Kirkwood, Sr. f. 3. april 1897 – d. 29. október 1970; Dorothy Germain Porter, f. 3. apríl 1924 – d. 20. júlí 2012); Marlon Brando, f. 3. apríl 1924- d. 1. júlí 2004; Rod Funseth, (f. 3. apríl 1933 – d. 9. september 1985); Sandra Spuzich, f. 3. Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

