Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2015 | 16:00
LET Access: Valdís Þóra lauk keppni í 35. sæti á Dinard mótinu

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL lauk keppni á Open Generali de Dinard mótinu í dag. Hún lék á 10 yfir pari, 217 höggum (74 71 72) og hafnaði í 35. sæti af þeim 53 sem komust í gegnum niðurskurðinn. Frábær árangur hjá Valdísi Þóru, sem þarna er að keppa við margar sterka keppendur, þær bestu í Evrópu sem hafa spilað á LET. Hvernig svo sem gengið hefir verið þá er þetta frábær reynsla!!! Á lokahringnum, sem Valdís Þóra lék á 3 yfir pari, 72 höggum en Dinard völlurinn er par-69; fékk Valdís Þóra 4 fugla, 3 skolla og 2 skramba. Sigurvegari í mótinu varð heimakonan Sophie Giquel-Bettan og í 2. sæti varð Virginia Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2015 | 14:00
Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már og McNeese urðu í 6. sæti í N-Karólínu

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese luku keppni á Irish Creek Collegiate, en mótið fór fram þann 11.-12. apríl s.l. í Kannapolis, Norður-Karólínu. Þátttakendur voru 82 frá 15 háskólum. Ragnar Már lék á samtals 7 undir pari, 209 höggum (71 68 70) og átti m.a. glæsihring, á seinni hring fyrri dags þegar hann lék á 4 undir pari, 68 höggum!!! Ragnar Már varð T-20 þ.e. deildi 20. sætinu m.a. með liðsfélaga sínum, Martin Erikson, en þeir léku báðir á 216 höggum; Ragnar Már (74 72 70) og Erikson á (75 70 71) McNeese lauk keppni í 6. sæti í liðakeppninni og áttu Erikson og Ragnar Már aðallega heiðurinn af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2015 | 12:00
Faxið sem sent var þegar Tiger réði Steve Williams

Fyrir u.þ.b. 16 árum nánar tiltekið 8. mars 1999 var eftirfarandi fréttatilkynning send á fjölmiðla, þar sem tilkynnt var um að Tiger hefði ráðið fyrrum kylfubera Raymond Floyd, Steve Williams. Kylfusveinn Tiger á þeim tíma var Mike „Fluff“ McCowan og sagðist Tiger í tilkynningunni að þeir hefðu skilið í góðu. Um þetta leyti voru þeir Tiger og Williams að leggja golfheiminn að fótum sér. Hér má sjá fréttatilkynninguna, en í þá daga var enn notast við fax-tækið en ekki skannað eins og tíðkast í dag! Sjá má faxið hér að neðan:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2015 | 10:00
LPGA: Sei Young Kim leiðir fyrir lokahringinn á LOTTE Championship

Það er suður-kóreanski kylfingurinn Sei Young Kim, sem leiðir fyrir lokahringinn á LOTTE Championship, sem fram fer á Ko Olina, á Oahu eyju á Hawaii. Kim er búin að spila á samtals 12 undir pari, 204 högg (67 67 70). Á hæla Kim er landa hennar IK Kim samtals 11 undir pari og í 3. sæti er fyrrum nr. 1 á heimslistanum Inbee Park, á samtals 10 undir pari; allt kylfingar frá Suður-Kóreu. Keppnin virðist standa milli þessara þriggja kylfinga, sem skipst hafa á um að vera í efstu sætum. Í 4. og 5. sæti eru enn kylfingar frá Suður-Kóreu í 4. sæti er Jenny Shin og í 5. sæti er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2015 | 08:00
PGA: Troy Merritt efstur í hálfleik RBC Heritage – jafnaði vallarmet!

Bandaríski kylfingurinn Troy Merritt er efstur eftir 2. dag RBC Heritage. Hann átti lægsta skor á 2. degi, 61 glæsihögg og er samtals búinn að spila á 12 undir pari, 130 höggum (69 61) og fór úr T-8 í 1. sætið milli hringja! Merritt á 4 högg á þá sem næstir koma en það eru Matt Kuchar og John Merrick sem báðir eru búnir að spila á samtal 8 undir pari, hvor. Merritt jafnaði vallarmet; sem og mótsmet, sem David Frost setti fyrir 21 ári, þ.e. 1994. Jafnframt á Merrit ásamt þeim Ryan Palmer (PGA West (Nicklaus) Humana Challenge in partnership with the Clinton Foundation) og Justin Thomas (Waialee Country Club Sony Open Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2015 | 21:00
GK: Frítt fyrir krakka 4-10 ára á SNAG námskeið kl. 10 á morgun!

Nú er um að gera fyrir foreldra að nýta sér þetta góða sumartilboð Golfklúbbsins Keilis! Næstu tvo laugardaga verður frítt fyrir alla krakka á aldrinu 4-10 á SNAG námskeið í Hraunkoti. Áhugasamir eru hvattir til að mæta í Hraunkot klukkan 10 á morgun og svo aftur næsta laugardag. Tilvalið til að kanna áhuga yngstu kynslóðarinnar á golfíþróttinni. SNAG (Starting New At Golf) er reyndar nokkuð sem allir aldurshópar hafa gaman af – Sjá má og kaupa SNAG golfútbúnað hjá Hissa.is – en allt sem þarf að gera til þess að virða fyrir sér SNAG útbúnaðinn er að SMELLA HÉR eða á bláu auglýsingu á forsíðu Golf1.is
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2015 | 20:45
Evróputúrinn: Uihlein efstur e. 2. dag á Shenzhen International

Það er bandaríski kylfingurinn Peter Uihlein, sem tekið hefir forystu á Shenzhen International en mótið er samtarfsverkefni Evróputúrsins og Asíumótaraðarinnar. Mótið fer fram í Genzon golfklúbbnum í Shenzhen, Kína. Meðal hæst rönkuðu þátttakenda er Masters meistarinn 2012 og 2014, Bubba Watson, en honum hefir ekkert gengið sérlega vel; er sem stendur T-42 á sléttu pari (70 74). Uihlein er búinn að spila frábært golf, er á 9 undir pari í hálfleik 135 höggum (67 68). Í 2. sæti, fast á hæla honum er thaílenski kylfingurinn Kiradech Aphibarnrat á 136 höggum (67 69). Til þess að sjá stöðuna í Shenzhen í hálfleik SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2015 | 20:30
Skemmtilegt Mercedes myndskeið með Kaymer og Langer

Fyrir Masters risamótið var meðfylgjandi myndskeið tekið af Martin Kaymer og landa hans Bernhard Langer. Þar hrósa þeir hvor öðrum í hástert. Myndskeiðið er e.t.v. fyndið að horfa á núna því hvorugur þeirra Kaymer og Langer komst í gegnum niðurskurð á síðasta Masters móti. Það var Mercedes Benz sem báðir kylfingar eru á samningi hjá, sem styrtki gerð myndskeiðsins. Þó ekki hafi gengið vel á síðasta Masters móti þá er eins víst að þýska stálið; Kaymer og Langer munu láta til sín taka á þessu ári! Hér má sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2015 | 20:15
LET: Sei Young Kim og IK Kim efstar og jafnar í hálfleik LOTTE Championship

Það eru tvær stúlkur frá S-Kóreu, Sei Young Kim og IK Kim sem eru efstar og jafnar í hálfleik á LOTTE Championship. Mótið fer fram í Ko Olina, á Oahu eyju á Hawaii og er mót vikunnar á LPGA mótaröðinni. Þær Sei Young og IK eru báðar búnar að spila á samtals 10 undir pari, hvor; Sei Young (67 67) og IK (65 69). Ein í 3. sæti er fyrrum nr. 1 á heimslistanum Inbee Park á samtals 7 undir pari, 3 höggum á eftir forystukonunum. Það er Michelle Wie, sem á titil að verja. Til þess að sjá stöðuna á LOTTE Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2015 | 20:00
Evróputúrinn: Keith Pelley skipaður framkvæmdastjóri

Keith Pelley hefir verið skipaður framkvæmdastjóri European Tour (ísl: Evróputúrsins) og tekur hann við stöðunni úr hendi George O´Grady, sem gengt hefir stöðunni á undanförnum misserum og stundum ekki alveg gagnrýnislaust. Pelley er fæddur 11. janúar 1964 – er kvæntur og á 2 börn, Jason og Hope. Pelley hefir átt einstaklega góðan starfsferil en hann er sem stendur forseti Rogers Media, sem er fjölmiðlasamsteypa í Kanada og er þar í forsvari fyrir m.a. 51 útvarpsstöð, 56 útgáfur, 12 sjónvarpsstöðvar og er með ábyrgð allra viðskipta fjölmiðlarisans sem m.a. á Toronto Blue Jays, sem er eina alvöru hafnaboltalið Kanada Pelley er sem stendur félagi í Lambton Golf and Country Club, og Goodwood Golf Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

