Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2015 | 16:30
EPD: Þórður Rafn varð T-21 í Marokkó

Þórður Rafn Gissurarson, GR, varð T-21 þ.e. deildi 21. sætinu ásamt 6 öðrum á Open Royal Anfa Mohammedia, sem fram fór í Royal Mohammedia golfklúbbnum, í Mohammédia, Marokkó, dagana 20.-22. apríl, en mótinu lauk í gær. Þórður Rafn lék samtals á 5 yfir pari, 215 höggum (73 69 73) og hlaut €391,57 fyrir 21. sætið sem er tæpar 60.000 íslenskar krónur. Alls voru 46 sem komust í gegnum niðurskurð. Sigurvegari í mótinu varð Englendingurinn Ben Parker, en hann hafði nokkra sérstöðu lék á samtals 10 undir pari, 200 höggum (68 66 66) og átti 5 högg á þá sem næst komu Til þess að sjá lokastöðuna á Open Royal Anfa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Óttar Helgi Einarsson – 23. apríl 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Óttar Helgi Einarsson, GKG. Hann er fæddur 23. apríl 1985 og er því 30 ára stórafmæli í dag!!! Óttar Helgi er með 6,6 í forgjöf. Hann hefir m.a. farið holu í höggi en það gerðist 21. maí 2012 á 2. braut Leirdalsvallar sem er 185 m af öftustu teigum. Komast má á facebook síðu Óttars Helga til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan Óttar Helgi Einarsson, GKG F. 23. apríl 1992 (30 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Don Ray Massengale, 23. apríl 1937 – d. 2. janúar 2007; Ramón Sota Ocejo 23. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2015 | 11:30
Pétur Freyr og Alexander Aron taka þátt í nýjum bandarískum golfþætti – „Altered Course“

Íslensku afrekskylfingarnir Pétur Freyr Pétursson og Alexander Aron Gylfason taka þátt í nýjum raunveruleikagolfþætti sem frumsýndur verður á bandarísku golfstöðinni, Golf Channel, 15. júní n.k. GR-ingarnir sáu auglýsingu í fyrrahaust þar sem óskað var eftir umsóknum og komust þeir í gegnum síuna en mörg hundruð umsóknir bárust. Þátturinn er nýr og hefur aldrei slíkt verið gert áður. Átta tveggja manna lið keppa um sigurinn í „Altered Course” eins og þátturinn er nefndur. Þar leika keppendur á óvenjulegum brautum þar sem ýmsar hindranir voru í veginum – og er markmiðið að ljúka leik á sem stystum tíma og á sem fæstum höggum. Það má því segja að þátturinn sé blanda af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2015 | 10:55
LPGA: Lydia Ko er ekki að verja titil á LPGA í fyrsta sinn

Lydia Ko á titil að verja í Swinging Skirts LPGA Classic mótinu, sem fram fer í Lake Merced golfklúbbnum í San Francisco nú um helgina, þ.e. 23.-26. apríl 2015. Þetta er í fyrsta sinn sem hún á færi á að verja titil á LPGA sem atvinnumaður, en henni var búið að takast að sigra á LPGA móti og verja titil á LPGA þegar hún var aðeins 16 ára. Það var á CN Canadian Women´s Open, sem er fyrsta LPGA mótið sem Ko tókst að sigra á en þá var hún aðeins 15 ára áhugamaður, sem gerir hana að þeirri yngstu til þess að sigra á LPGA. Árið eftir 2013, nánar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2015 | 08:00
Gleðilegt sumar!

Í dag er frídagur, Sumardagurinn fyrsti og og því miður ekkert um opin golfmót, enda veturinn búinn að vera óvenjuharður og sumarið virðist fara seint af stað. Aðeins var auglýst eitt opið mót hjá GM, en því hefir verið frestað. Í fréttatilkynningu frá GM sagði: „Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður Sumardagsmót GM, sem fram átti að fara á morgun sumardaginn fyrsta á Hlíðavelli, vegna veðurspár. Ljóst er að veðuraðstæður til golfiðkunar verða ekki ákjósanlegar á morgun. Þar sem veðurspá fyrir helgina er ekki hagstæð er ljóst að mótið verður ekki flutt til að þessu sinni.“ Í fyrra, 2014 fóru fram 5 golfmót Sumardaginn fyrsta, en það má Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2015 | 07:07
Vonn elskar golf – Myndskeið

Skíðadrottningin Lindsey Vonn var í viðtali hjá bandaríska sjónvarpsþáttastjórnandanum Seth Meyers og var þar m.a. spurð að því hvernig henni líkaði við golf og hvort hún hefði horft á golf áður en hún byrjaði með Tiger. Lindsey svaraði ekki spurningunni heldur sagði: „Ég elska golf“ Nokkuð fyndið svar, þar sem hún sneiddi hjá því að svara því sem spurt var um og …. þegar Meyers hjó enn frekar eftir svari við spurningu sinni, svaraði Vonn aftur: „Ég elska golf“‘… nú aðeins meira hikandi. Hvort hún virkilega geri það eða sé bara góð kærasta? Seinni part spurningarinnar lagði Seth Meyers fyrir Vonn sem svaraði : „Ég er góð kærasta.“ Viðtal Meyers við Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2015 | 05:00
Evróputúrinn: Hendry og Dredge í forystu snemma dags á Volvo China Open

Í nótt hófst Volvo China Open, samstarfsverkefni Evrópumótaraðarinnar og Asíumótaraðarinnar. Leikið er í Tomson China Pudong golfklúbbnum í Shanghaí, Kína. Snemma dags eru það Bradley Dredge frá Wales og Michael Hendry frá Nýja-Sjálandi, sem leiða, en þeir eru báðir búnir að spila á 4 undir pari, 68 höggum. Margir eiga eftir að fara út og margir eiga eftir að ljúka hringjum sínum þannig að staðan getur breyst. – Stöðufrétt verður á Golf1 síðar í dag. Til þess að fylgjast með stöðunni á Volvo China Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2015 | 23:00
Creamer vill Masters fyrir kvenkylfinga

Paula Creamer myndi gjarnan vilja sjá konur keppa á sínu eigin Masters móti á Augusta National í framtíðinni. Creamer lét í ljós þessa ósk sína á Twitter fyrr í mánuðnum og var beðin um beðin um nánari útskýringar á þessari hugmynd sinni á blaðamannafundi fyrir Swinging Skirts LPGA Classic í Kaliforníu, en það er mót vikunnar. Hún sagðist sjá fyrir sér að kvenkylfingar myndu keppa vikuna á eftir körlunum. „Ég hef komið þangað; ég hef spilað þarna og verið í Butler’s Cabin.“ sagði Creamer,sem sigraði á US Women’s Open árið 2010. „Ég átt frábæran tíma þar. Mér finnst að áhorfendur og allir myndu elska að hafa þetta 2 vikna viðburð, tvö mót. Af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jóna Bjarnadóttir – 22. apríl 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Jóna Bjarnadóttir. Hún er fædd 22. apríl 1951 og er því 64 ára. Jóna er í Golfklúbbnum á Vatnsleysuströnd (GVS). Hún er gift og á 3 börn: Bjarna Þór, Láru Þyrí og Hrafnhildi. Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Jónu til hamingju hér fyrir neðan: Jona Bjarnadottir Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Deane R. Beman 22. apríl 1938 (77 ára); Eric Allen Axley, 22. apríl 1974 (41 árs) …. og ….. Valmar Väljaots Anna Lárusdóttir F. 22. apríl 1958 Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2015 | 15:59
Bergur Konráðs fékk ás!

Bergur Konráðsson, landskunnur kírópraktor og meðlimur í GKG, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á fyrstu braut græna vallarins á La Sella á Spáni. Bergur var þarna í foreldrahópi afrekskylfinga GKG og náði draumahögginu á þessari erfiðu braut með 3-járni. Höggið var slegið af 175 metra færi, uppí móti og á móti smá golu. Golf 1 óskar Bergi til hamingju með ásinn!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

