Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2015 | 11:15
LET Access: Ólafía Þórunn við keppni á Spáni

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, er í þessum rituðu orðum að hefja keppni á Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open, sem er mót á LET Access mótaröðinni. Þáttakendur eru 107, þ.á.m. Valdís Þóra Jónsdóttir, sem fór út fyrr í morgun og er að gera góða hluti; er á parinu eftir 15 spilaðar holur og í 7. sæti í mótinu, sem stendur!!! Ólafía Þórunn á rástíma kl. 12:45 að staðartíma (þ.e. kl. 10:45 að íslenskum tíma og fór út fyrir 1/2 tíma). Það er vonandi að Ólafíu Þórunni gangi sem allra best!!! Fylgjast má með Ólafíu Þórunni með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2015 | 11:10
Nordic Golf League: Birgir Leifur og Ólafur Björn við keppni í Danmörku

Þeir Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Ólafur Björn Loftsson, GKG, eru við keppni á móti Nordic Golf League mótaraðarinnar, þ.e. Bravo Tours Open by Visit Tønder mótinu. Þátttakendur eru 156 og mótið stendur 29. apríl til 1. maí 2015. Ólafur fór Björn út snemma og þegar þetta er ritað hefir hann lokið leik á 14 holum er 1 yfir pari og T-11. Sú staða á þó líklega eftir að breytast því margir eiga eftir að ljúka leik og jafnvel fara út. Birgir Leifur fer út kl. 13:10 að staðartíma (þ.e. akkúrat á birtingatíma þessarar fréttar kl. 11:10 að íslenskum tíma). Til þess að fylgjast með stöðunni á Bravo Tours Open – by Visit Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2015 | 10:00
EPD: Þórður Rafn lauk leik í 10. sæti í Marokkó

Þórður Rafn Gissurarson, GR, lauk leik í 10. sæti á Open Madaef atvinnumótinu í Pullman El Jadida Royal Golf & Spa, í El Jadida í Marokkó. Mótið stóð frá 26.-28. apríl 2015 og lauk því í gær. Þórður Rafn lék á samtals 4 yfir pari, 220 höggum (68 75 77). Margir þekktir kylfingar hafa leikið á EPD mótaröðinn t.a.m Þjóðverjarnir Martin Kaymer, Marcel Siem og Bernd Ritthammer, en sá síðastnefndi er nú nýlega farinn að spila á Evrópumótaröðinni. Til þess að sjá lokastöðuna á Open Madaef mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2015 | 07:20
LET Access: Fylgist með Valdísi Þóru í Lugo!

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL er í þessum skrifuðu orðum að hefja leik á Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open, sem er mót á LET Access mótaröðinni. Mótið fer fram í Lugo á Spáni og sagði Valdís Þóra á facebook síðu sinni að staðurinn væri fjarri allri menningu og völlurinn stórfurðulegur! Valdís Þóra átti rástíma kl. 9:20 að staðartíma (þ.e. kl. 7:20 að íslenskum tíma) og var því að fara út nú. Það er vonandi að henni gangi sem allra best!!! Hér má fylgjast með stöðunni í Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2015 | 06:59
USGA veldur úlfúð vegna fyrirhugaðra teigmerkja á Opna bandaríska

Mike Davis, framkvæmdastjóri USGA þ.e. bandaríska golfsambandsins olli úlfúð á árlegum fréttamannafundi út af fyrirhuguðum teigmerkingum á Opna bandaríska risamótinu nú í sumar. Þessi fréttamannafundur sambandins er árlegur viðburður þar sem farið er yfir hverju megi búast við á einum af 4 stærstu golfviðburðum ársins, Opna bandaríska risamótinu. Í ár fer mótið fram á Chambers Bay í Washington, í fyrsta sinn, þannig að það er margt sem ekki er vitað um völlinn. Davis lét falla orð sem höfðu sprengiáhrif þegar hann sagði eftirfarandi um völlinn þ.e. að hann: „gefur okkur færi á að hafa teigmerki þar sem við viljum. Í sumum tilvikum gætum við endað á að setja teigmerkin í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2015 | 06:39
Brooke Henderson komst gegnum úrtökumót inn í 1,3 milljóna LPGA mót

Kanadíska golfnýstirnið Brooke Henderson, 17 ára, tók þátt í úrtökumóti fyrir Volunteers of America North Texas Shootout golfmótið, í gær, en mótið er á LPGA mótaröðinni og verðlaunafé þar 1,3 milljóna bandaríkjadala. Henderson vakti athygli á sér í Swinging Skirts mótinu þar sem hún landaði 3. sætinu s.l. helgi. Henderson sem er frá Smith Falls í Ontario Kanada tryggði sér sæti í mótinu eftir 4 stúlkna bráðabana um 2. sætið og þar með farmiða á LPGA mótið Heather Bowie Young vann úrtökumótið með skor upp á 68 högg. Henderson varð s.s. áður segir T-2 ásamt þeim Nicole Jeray, Erica Popson og Portland Rosen og því varð að koma til bráðabana milli þeirra, þar sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2015 | 06:20
GA: Samstarfssamningur gerður við Lex Lögmenn

Á dögunum undirrituðu Lex lögmenn og Golfklúbbur Akureyrar undir samstarfssamning til eins árs. Er þetta í fyrsta sinn sem Lex lögmenn koma inn sem stuðningsaðilar hjá GA. GA býður þá hjá Lex hjartanlega velkomna. Það er mikill fengur í því að hafa öfluga og góða samstarfsaðila. Mikil tilhlökkun er hjá GA með samstarfið.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2015 | 05:38
Dofri og Guðjón Öfjörð með ása

Íslendingar eru að fá ása í golfleik sínum beggja vegna Atlantsála. Hann Dofri fór þannig holu í höggi á Celebration í Flórída. Eins fór Guðjón Öfjörð, GOS, holu í höggi á Lingfield Park í Englandi. Golf 1 óskar báðum til hamingju með draumahöggin!
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2015 | 17:00
Afmæliskylfingur dagsins: Þór Ríkharðsson – 28. apríl 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Þór Ríkharðsson, en hann er fæddur 28. apríl 1985 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Þór er í Golfklúbbi Sandgerðis (GSG). Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið, hér fyrir neðan: Þór Ríkharðsson (Þór t.v. – Kannast e-hv við þennan hægra meginn?) 28. apríl 1985 (30 ára stórafmæli – Innilega til hamingju Þór!!!) Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a. Sven Tumba Johannsson, f, 28. ágúst 1931 – d. 1. október 2011; Þorsteinn R. Þórsson, 28. apríl 1960 (55 ára); Stephen Michael Ames 28. apríl 1964 (51 árs); John Daly 28. apríl 1966 (49 ára); Elliði Vignisson, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2015 | 15:00
Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Sakura Yokomine (31/45)

Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 18.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Þrjár (þ.e. þær í 18.-20. sæti) með fullan spilarétt eftir 7 manna bráðabana og hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt. Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Sjö kylfingar deildu 11. -17. sætinu, en þær léku allar á samtals 5 undir pari, hver. Þetta eru þær: frænka Tiger: Cheyenne Woods, Therese Koelbaek frá Danmörku, franski kylfingurinn Perrine Delacour, SooBin Kim frá Suður-Kóreu, Sakura Yokomine frá Japan, Sophia Popov frá Þýskalandi og Ju Young Park, frá Suður-Kóreu. Ju Young Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

