Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2015 | 11:30
Glæsilegur árangur 11 ára stráks – Böðvars B. Pálssonar á 1. maí mótinu á Hellu!

Böðvar Bragi Gunnarsson, GR, er aðeins 11 ára, en verður 12, 28. maí n.k. Hann er sonur Gunnars Páls Pálssonar, en þeir feðgar ásamt vini Böðvars Braga, Tómasi Eiríkssyni, tóku einmitt þátt í 1. maí móti GHR og Grillbúðarinnar í gær. Skráðir í mótið voru 213, og þeir sem luku mótinu 208. Þar af varð Böðvar Bragi, sem var langyngsti keppandinn (f. 2003) í 25. sæti í höggleik ÁN forgjafar, á 11 yfir pari (ekki margir sem spila árafjölda sinn yfir pari og eru samt á góðu skori!) Aðeins 27, eða minna en 13% þátttakenda spiluðu á 11 yfir pari eða betur. Elsti keppandinn á Hellu í gær var úr Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2015 | 08:45
WGC: Bradley og Jiménez rifust – Myndskeið

Svona á ekki að sjást á heimsmóti. Tvær stórstjörnur golfsins að hnakkrífast! Keegan Bradley og Miguel Ángel Jiménez. Vissulega eru menn skapheitir og oft talið að ákveðinn karakter þurfi til þess að komast áfram í golfinu. En come´on! Sjá má myndskeið af rifrildi Keegan Bradley/kylfusveinsins Pepsi annars vegar og Miguel Ángel Jiménez hins vegar á Cadillac heimsmótinu í holukeppni með því að SMELLA HÉR: Það sem gerir þetta líka grátbroslegt er að hvorugur átti sjéns á sæti í 16 manna riðlinum – báðir með úrslitin 0-2 í fyrstu umferðunum. Breytti engu! Þeir hnakkrifust í gær á 18. holu TPC Harding Park í San Francisco, þar sem Cadillac heimsmótið í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2015 | 00:36
GHR: Andri Már og Eggert Páll sigruðu á 1. maí móti GHR og Grillbúðarinnar

Úrslit úr 1. maí-móti GHR og Grillbúðarinnar má sjá í heild sinni með því að SMELLA HÉR: Golf 1 var á staðnum og má sjá myndaseríu frá 1. maí móti GHR og Grillbúðarinnar með því að SMELLA HÉR: Helstu úrslit urðu annars þessi: Þeir sem spiluðu á 82 eða betur án forgjafar 1. sæti Andri Már Óskarsson GHR á 2 undir pari 68 höggum 2. sæti Haukur Már Ólafsson GKG á 2 yfir pari 72 höggum 3. sæti Henning Darri Þórðarson GK á 2 yfir pari 72 höggum 4 Eggert Kristján Kristmundsson GR 1 F 38 35 73 3 73 73 3 5 Jón Haukur Guðlaugsson GR 0 F 38 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2015 | 22:15
GM: Kristján Þór (-4!!!) og Björn Steinbekk sigruðu á Opna 1. maí móti GM og ECCO

Stigameistarinn okkar Kristján Þór Einarsson, GM sigraði á Opna 1. maí GM og ECCO mótinu. Hann lék heimavöllinn á glæsilegum 4 undir pari, 68 höggum!!! Á hringnum fékk Kristján Þór 8 fugla og 4 skolla!!! Það gerir enginn betur. Stórglæsilegt hjá Kristjáni Þór!!! Aðeins 10 léku á 80 eða þar undir af þeim 190, sem luku leik á Hliðavelli í dag en það voru eftirfarandi kylfingar: 1 Kristján Þór Einarsson GM -5 F 32 36 68 -4 68 68 -4 2 Björn Steinbekk Kristjánsson GR 3 F 35 36 71 -1 71 71 -1 3 Sigurður Bjarki Blumenstein GR 4 F 38 37 75 3 75 75 3 4 Viktor Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Guðmundsdóttir – 1. maí 2015

Það er Ingibjörg Guðmundsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ingibjörg er fædd 1. maí 1964. Hún er eigandi golfvefverslunarinnar Hissa.is, þar sem margt skemmtilegt fyrir kylfinginn fæst m.a. hinir vinsælu SeeMore pútterar, japönsku Miura kylfurnar og SNAG golfkennsluútbúnaðurinn. Auk þess eru margir eigulegir smáhlutir sem fást s.s. tí, boltamerki, birdiepelar o.m.fl. Hægt er að smella á auglýsingu Hissa.is hér á síðunni til þess að sjá úrvalið. Ingibjörg er gift Magnúsi Birgissyni (Magga Birgis) golfkennara og eiga þau tvo stráka Pétur og Birgi Björn. Komast má á facebooksíðu Ingibjargar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Ingibjörg Guðmundsdóttir (Innilega til hamingju með stórafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2015 | 14:00
Náungi nær „selfie“ af sér m/Reed

Patrick Reed er einn af umdeildustu ungu nýstirnunum í golfinu. Eftirminnileg eru atvik eins og þegar hann sussaði á áhorfendur á Ryder Cup á Gleneagles 2014. Svo kallaði hann sig eitt sinn einn af 5 bestu kylfingum heims þegar hann var í raun – tæknilega – aðeins einn af 20 bestu kylfingum heims. Síðan voru ásakanir á hann um að hann hefði svindlað og stolið eign samstúdenta sinna meðan hann var enn í háskóla. Hann var ásamt Bubba Watson valinn einn þeirra kylfinga, meðal félaga sinna á PGA Tour, sem þeir myndu síst hjálpa ef hann lenti í vandræðum á bílastæði utan við klúbbhús keppnisstaðar ….. og svona mætti lengi telja. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2015 | 12:20
Nordic Golf League: Góður árangur hjá Birgi Leif (T-5) og Ólafi Birni (T-11) í Danmörku

Birgir Leifur Hafþórsson endaði í 5.–9. sæti á Bravo Tours Open sem fram fór fram á Rømø vellinum rétt við bæinn Tønder syðst á Jótlandi. Ólafur Björn Loftsson, sem er úr GKG líkt og Birgir, endaði í 11.–13. sæti. Birgir lék lokahringinn á pari vallar og lék hringina þrjá á +2 samtals (79-67-72). Ólafur Björn lék á +4 samtals (73-76-71) en hann lék á einu höggi undir pari í dag á lokahringnum. Mótið er hluti af Nordic Golf League, eða ECCO atvinnumótaröðinni. Daniel Lökke frá Danmörku stóð uppi sem sigurvegari á -7 samtals en aðeins tveir kylfingar léku undir pari samtals á þessu móti. Þetta er þriðja mótið sem Ólafur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2015 | 12:15
LET Access: Valdís T-12 og Ólafía T-23 eftir lokadaginn á Spáni

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, hafa báðar lokið 3. hring á Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open mótinu á Spáni. Mótið fór fram dagana 29. apríl – 1. maí 2015 og lauk því í dag. Valdís Þóra varð T-12 þ.e. deildi 12. sætinu með 3 öðrum kylfingum en hún lék hringinn í dag á sléttu pari, 70 höggum. Samtals lék Valdís Þóra á 3 undir pari, 213 höggum (70 73 70). Ólafía Þórunn hélt uppteknum hætti, lék á 2 yfir pari, 72 höggum líkt og fyrri tvo hringi sína. Hún lék samtals á 6 yfir pari, 216 höggum (72 72 72) og varð Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2015 | 12:00
WGC: Staðan e. 2. umferð Cadillac heimsmótsins í holukeppni

Hér má sjá úrslitin eftir 2. umferð World Golf Championships-Cadillac Match Play, m.ö.o. 2. umferð Cadillac heimsmótsins í holukeppni SMELLIÐ HÉR: Og hér eru hápunktar 2. umferðar Cadillac heimsmótsins í holukeppni SMELLIÐ HÉR: Mörg óvænt úrslit urðu eins oft vill verða í holukeppnum, hvað þá heimsmótum. T.a.m. töpuðu eftirfarandi frábærir kylfingar sínum viðureignum: Adam Scott, Martin Kaymer, Sergio Garcia, Victor Dubuisson, Ian Poulter, Jason Day og Dustin Johnson. Aðrir áttu í vandræðum með sína andstæðinga eins og nr. 1 á heimslistanum Rory, honum rétt tókst að hafa betur gegn Snedeker. Annað var viðbúið eins og t.d. að Jordan Spieth, Henrik Stenson og Justin Rose ynnu sínar viðureignir. Þetta sýnir bara hið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2015 | 11:00
Kíkið á Golfdaga í Kringlunni! – Dagskrá

Golfdagar í Kringlunni hófust í gær 30. apríl 2015 og standa til sunnudagsins 3. maí n.k. Fjölmörg fyrirtæki bjóða golfvörur með afslætti og mikið er af golfuppákomum. Má þar t.a.m. nefna púttkeppni, nándarkeppni, keppni um lengsta drævið. Síðan er bryddað upp á nýmæli í golfkeppnum en keppt verður um hverjum tekst að halda golfbolta lengst á lofti. Til þess að sjá dagskránna á Golfdögum í Kringlunni SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

