Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 10:00

Hver er kylfingurinn: Scott Langley?

Það er bandaríski kylfingurinn Scott Langley, sem leiðir á Greenbriar Classic, en það er mót vikunnar á LPGA og hófst í gær, 2. júlí 2015. Scott Langley er e.t.v. ekki þekktasti kylfingurinn á PGA Tour, en hann komst fyrst á mótaröð þeirra bestu (PGA Tour) árið 2013 og hefir verið að baxa við að festa sig í sessi þar. Hann leiddi m.a. á Travelers í hálfleik nú fyrr á árinu, en annars hefir hann sjaldnast verið í golffyrirsögnunum og því ekki nema von að nokkrir spyrji: Hver er kylfingurinn: Scott Langley?  Því verður reynt að svara í stuttu máli hér á eftir: Scott Langley fæddist í Barrington, Illinois, annaðhvort 18. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 09:30

Brelluhögg Söndru Gal í hælaháum og míníkjól

Þýski kylfingurinn Sandra Gal, sem spilar á LPGA kom fram í morgungolfþættinum Morning Drive á dögunum. Þar var sýnt myndskeið þar sem hún var á ferð um New York ásamt nokkrum golfbrelluhöggslistamönnum, sem að sögn Gal hafa tennisbakgrunn. Gal var látin slá brelluhögg í hælaháum skóm og í míníkjól – frekar erfiður útbúnaður, enda sagðist Gal í viðtalinu oft hafa þurft að fara úr hælaháu skónum í ferð sinni um New York. Hún sagði jafnframt að hún hefði tekið þátt í gerð myndskeiðsins til þess að höfða til yngri kynslóðarinnar í þeim tilgangi að laða fleiri að golfíþróttinni. Nokkur falleg brelluhögg og skemmtiatriði með Gal í NY má sjá í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 08:45

GHÓ: Árni og Signý sigruðu á Hamingjumótinu!

Hamingjumót GHÓ, þ.e. Golfklúbbs Hólmavíkur fór fram 26. júní s.l. Það er mikið fagnaðarefni en Hamingjumótið fór ekki fram á s.l. ári þ.e. 2014. Í ár voru þátttakendur 12 og var keppt á fallegum Skeljavíkurvelli þeirra Hólmvíkinga. Mótið var hluti af Hamingjudögum og ættu fleiri að skella sér til Hólmavíkur á Hamingjudaga en mikið er um girnilegar kræsingar á Hamingjudögum sbr. meðfylgjandi mynd hér að neðan og hátíðin skemmtileg í alla staði. Það var Árni Brynjólfsson, GKG, sem var á besta skorinu 78 höggum en í  punktakeppninni sigraði heimakonan Signý Ólafsdóttir, GHÓ en hún var á 38 glæsipunktum. Sjá má heildarúrslitin í punktakeppninni hér að neðan: 1 Signý Ólafsdóttir GHÓ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 08:30

LET Access: Fylgist með Ólafíu Þórunni og Valdísi Þóru í Svíþjóð!!!

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL eru við keppni á móti vikunnar á LET Access í Svíþjóð. Mótið er jafnframt hluti af Nordea túrnum. Mótið heitir Borås Ladies Open og fer fram í  Borås golfklúbbnum í Svíþjóð.  Það stendur dagana 3.-5. júlí 2015. Ólafía er þegar farin út en Valdís Þóra á rástíma kl. 12:30 þ.e. kl. 10:30 að okkar tíma hér heima á Íslandi. Fylgjast má með stöðunni hjá þeim Ólafíu og Valdísi með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 08:15

PGA: Langley leiðir á Greenbriar Classic – Hápunktar 1. dags

Það er Bandaríkjamaðurinn Scott Langley, sem leiðir eftir 1. dag Greenbriar Classic. Langley lék 1. hring á The Old White TPC í White Sulphur Springs í Vestur-Virginíu, þar sem mótið fer fram á glæsilegum 8 undir pari, 62 höggum. Tveir deila 2. sætinu Danny Lee frá Ástralíu og Bandaríkjamaðurinn Jonathan Byrd; báðir á 7 undir pari, 63 höggum. Fjórða sætinu deila síðan Englendingurinn Brian Davis og Japaninn Ryo Ishikawa, báðir á 6 undir pari, 64 höggum. Sex eru síðan jafnir í 6. sæti þ.á.m. Bandaríkjamaðurinn með mörgu vöggin Kevin Na; en allir í þeim hóp léku á 5 undir pari, 65 höggum. Tiger Woods er síðan einn af 15 sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 07:55

Evróputúrinn: 4 leiða e. 1. dag Alstom Open de France

Það eru 4 sem eru efstir og jafnir á Alstom Open de France. Það eru heimamaðurinn Victor Dubuisson, Kanarí-eyingurinn Rafa Cabrera-Bello; Bernd Wiesberger frá Austurríki og Jaco Van Zyl frá Suður-Afríku. Allir léku fjórmenningarnir 1. hring á 3 undir pari, 68 höggum. Sjö manna hópur kylfinga er síðan T-5 eftir 1. dag en þ.á.m. eru m.a. Martin Kaymer, Grégory Bourdy og indverski Íslandsvinurinn Anirban Lahiri.  Allir léku sjömenningarnir 1. hring á 2 undir pari 69 höggum Sjá má hápunkta 1. dags á Alstom Open de France með því að SMELLA HÉR:  Til þess að sjá stöðuna á Alstom Open de France en 2. hringur er þegar byrjaður SMELLIÐ HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 3. 2015 | 07:30

LET: Fylgist með 2. hring ISPS Handa Ladies European Masters – Úrslit 1. dags

Kvenkylfingarnir á ISPS Handa Ladies European Masters sem er mót vikunnar á LET og fer fram í Buckinghamshire golfklúbbnum á Englandi eru allir mjög jafnir. Eftir 1. dag er franski kylfingurinn Sophie Giquel-Bettan efst; lék á 6 undir pari, 66 höggum. Fast á hæla hennar eru Josephine Janson frá Svíþjóð, Nontaya Srisawang frá Thailandi og Ashleigh Simon frá Suður-Afríku á 67 höggum og síðan koma stórir hópar kylfinga sem eru á 68 og 69 og því stefnir í spennandi og jafna keppni. Heimakonan Charley Hull er t.a.m. ein af 7 sem spilaði á 68 og er T-5 eftir 1. dag og Leona Maguire, annar írsku golfsnillings- tvíburanna er ein af 10 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2015 | 19:00

PGA: Tiger á 4 undir pari, 66 höggum e. 1. hring Greenbriar Classic

Mót vikunnar á PGA Tour er Greenbriar Classic. Tiger Woods byrjar vel í mótinu en hann var á 4 undir pari, 66 höggum 1. hringinn á The Greenbriar Classic. Það hjálpaði aðeins til að það rigndi í morgun á mótsstaðnum, the Old White TPC í Vestur-Virginíu, en við það mýktist völlurinn. Þetta er lægsti hringur Tiger í langan tíma og aðeins í 4 sinn af 21 hringjum sem hann hefir skilað skori upp á 60 og eitthvað. Fyrir tveimur vikum skilaði Tiger inn hæsta skori sínu á 36 holum þ.e. á Opna bandaríska en þá lék hann á samtals 156 höggum. Hann byrjaði á seinni 9 í dag og hristi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2015 | 18:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur á +3 e. 1. dag í Þýskalandi

Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í golfi 2014, hefur keppni í dag á móti á Áskorendamótaröð Evrópu. Birgir fékk boð um að taka þátt með skömmum fyrirvara þar sem hann hefur styrkt stöðu sína á styrkleikalista næst sterkustu atvinnumótaraðar Evrópu að undanförnu. Mótið fer fram á Hartl golfsvæðinu í Þýskalandi sem er stærsta golfvallasvæði í Evrópu Birgir Leifur er í 97. sæti á peningalista Áskorendamótaraðarinnar en það er að miklu að keppa fyrir GKG kylfinginn að bæta stöðu sína á þeim lista. Birgir hefur aðeins leikið á þremur mótum á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni. Hann varð áttundi á KPMG mótinu í Hollandi en hann endaði í 58., og 42. sæti á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 2. 2015 | 17:00

Styrktarmót fyrir landsliðsfólk Íslands á skíðum 4. júlí nk. að Jaðri

Skíðasamband Íslands stendur fyrir glæsilegu golfmóti þann 4. júlí að Jaðri hjá Golfklúbbi Akureyrar og verður leikfyrirkomulagið Texas Scramble. Mótið er styrktarmót fyrir landsliðsfólk Íslands á skíðum og mun ágóðinn af mótinu renna óskiptur til þeirra. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir 6 efstu sætin en þar á meðal verður veglegur ferðavinnigur frá Icelandair og úttekir hjá 66°Norður. 1.sæti – 2x 80.000 kr gjafabréf frá Icelandair 2.sæti – 2x Snæfell jakki frá 66°Norður 3.sæti – 2x Dolce Gusto kaffivél 4.sæti – 2x Setberg golfjakki frá 66°Norður 5.sæti – 2x Grettir golfjakki frá 66°Norður 6.sæti – 2x Árskort í Hlíðarfjall veturinn 2015/2016 Einnig verða nándarverðlaun á öllum par þrjú holum vallarins Lesa meira