Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 14:00

Amy Yang enn í forystu f. lokahring US Women´s Open

Amy Yang frá Suður-Kóreu er enn í forystu á Opna bandaríska kvenrisamótinu, US Women´s Opnen. Yang er samtals búin að spila á 8 undir pari, 202 höggum (67 66 69). Hún hefir 3 högga forystu á fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Stacy Lewis sem búin er að spila samtals á 5 undir pari. Í 3. sæti er landa Yang, In Gee Chun á samtals 4 undir pari og í 4. sæti er japönsk stúlka Shio Oyama á samtals 3 undir pari. Sjá má stöðuna á US Women´s Open með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 12:15

GO: Andrea og Rögnvaldur klúbbmeistarar 2015

Golfkennararnir Andrea Ásgrímsdóttir og Rögnvaldur Magnússon endurtóku leikinn frá 2013 og urðu klúbbmeistar GO, nú 2015. Sigurskor Rögnvaldar var 11 yfir pari, 295 högg (74 73 78 70) en sigurskor Andreu 39 yfir pari, 323 högg (88 79 80 76) Innilega til hamingju! Golf 1 verður með nánari fréttir af meistaramóti GO síðar.


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 11:45

NK: Ólafur Björn klúbbmeistari 2015

Ólafur Björn Loftsson er eins og mörg undanfarin ár klúbbmeistari Nesklúbbsins. Hann lék Nesvöll á glæsiskori samtals 14 undir pari,  274  höggum (72 68 66 68). Klúbbmeistari kvenna er Helga Kristín Einarsdóttir á samtals 16 yfir pari. Nú í ár tók Ólafur Björn jafnframt þátt í tveimur meistaramótum og hafnaði í 2. sæti á meistaramóti GKG. Oddur Óli varð í 2. sæti í meistaramótinu í karlaflokki. Frekari fréttir af meistaramóti NK koma hér á Golf1 síðar.


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 11:30

GR: Ragnhildur og Stefán Már klúbbmeistarar 2015

Meistaramóti Golfklúbbs Reykjavíkur 2015 lauk í gær, 11. júlí 2015. Alls tóku 540 félagsmenn þátt í mótinu þetta árið og er þetta langstærsta og fjölmennasta meistaramót landsins. Meistaramótið hófst sunnudaginn 5. júlí. Hjá þeim flokkum sem spiluðu þrjá daga var veðrið með því besta sem gerist á sumrin, sól og hiti. Hið sama verður sagt um verðrið fyrir þá flokka sem hófu leik miðvikudaginn 8. júlí. Mikil barátta var í öllum flokkum og mikil spenna á lokadeginum. Klúbbmeistarar GR 2015 eru þau Stefán Már Stefánsson og Ragnhildur Sigurðardóttir. Stefán Már var að vinna sinn þriðja titil sem klúbbmeistari GR (2004, 2009 og 2015) en Ragnhildur hefir orðið klúbbmeistari alls 19 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 11:15

PGA: Spieth leiðir á John Deere – á besta skori ferils síns á 3. degi – 61 glæsihöggi!!!

Jordan Spieth leiðir á John Deere Classic mótinu eftir stórglæsilegan 3. hring upp á 61 högg. Samtals er Spieth búinn að spila á 17 undir pari, 196 höggum (71 64 61).  Því má ekki gleyma að ekkert leit of vel út í byrjun fyrir Spieth sem var í 101. sæti eftir 1. dag og hefir því unnið sig upp um 100 sæti í það 1. sem hann er í fyrir lokahringinn, sem leikinn verður í kvöld. Skorið á 3. hring í gær upp á 10 undir pari, 61 högg er besta skor á ferli Spieth til þessa. Sigurvegari síðustu viku Danny Lee frá Nýja-Sjálandi, er í 2. sæti,  átti ekki Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 11:00

GKB: Brynhildur og Hjalti klúbbmeistarar 2015

Brynhildur Sigursteinsdóttir varð klúbbmeistari GKB annað árið í röð, en keppni lauk á Kiðjabergsvelli í gær, 11. júlí 2015 en meistaramót GKB stóð dagana 8.-11. júlí 2015.  Þátttakendur í ár voru 74. Hjalti Atlason sigraði í karlaflokki, var fjórum höggum á undan meistaranum frá síðasta ári, Rúnari Óla Einarssyni og Birni Þór Hilmarssyni. Rúnar og Björn fóru í bráðabana um annað sætið og vann Björn á fyrstu holu í bráðabana og hreppti því annað sætið. Brynhildur var með forystu í kvennaflokki frá fyrsta hring og sýndi mikið öryggi í leik sínum og vann með 12 högga mun. Grétar Viðar Grétarsson sigraði í forgjafarflokki karla (7,6-14,4). Gunnar Þorláksson, sem var með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 10:30

GHD: Arnór Snær og Ólöf María klúbbmeistarar 2015

Meistaramót GHD fór fram dagana 6.-11. júlí s.l.  Þátttakendur í ár voru 33. Klúbbmeistarar GHD 2015 eru Arnór Snær Guðmundsson og Ólöf María Einarsdóttir. Arnór Snær lék á samtals 9 yfir pari, 289 höggum (73 70 74 72). Sigurskor Ólafar Maríu var 27 yfir pari, 307 höggum (78 70 81 78). Sjá má heildarúrslitin í meistaramóti GHD hér að neðan: Meistaraflokkur karla: 1 Arnór Snær Guðmundsson GHD -2 F 35 37 72 2 73 70 74 72 289 9 2 Andri Geir Viðarsson GHD 4 F 41 38 79 9 84 77 84 79 324 44 3 Sigurður Jörgen Óskarsson GHD 10 F 40 37 77 7 83 83 83 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 08:30

GK: Benedikt og Tinna klúbbmeistarar 2015

Meistaramót Keilis fór fram dagana 5.-11. júlí 2015. Klúbbmeistarar Keilis eru Benedikt Sveinsson og Tinna Jóhannsdóttir, en þetta er 2. árið í röð sem Tinna verður klúbmeistari. Sigurskor Benedikts var samtals slétt par pari, 284 högg (67 76 75 66) og fór Benedikt m.a. holu í höggi.  Tinna lék á samtals 5 yfir pari, 289 höggum ( 71 76 73 69). Þátttakendur í meistaramóti Keilis í ár voru 321. Heildarúrslit í meistaramóti Keilis urðu eftirfarandi: Meistaraflokkur karla 1 Benedikt Sveinsson GK 2 F 33 33 66 -5 67 76 75 66 284 0 2 Sigurþór Jónsson GK 2 F 35 34 69 -2 72 72 72 69 285 1 3 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2015 | 07:00

GOS: Ástmundur fékk ás!

Ástmundur Sigmarsson fór holu í höggi á 3. hring í Meistaramóti GOS. Ásinn kom á 4. holu Svarfhólsvallar, sem er par-3 153 m af gulum teigum, en þetta var á seinni 9 hjá Ástmundi þannig að í raun kom ásinn á 13. holu. Golf 1 óskar Ástmundi til hamingju með draumahöggið!  


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 11. 2015 | 23:45

GHR: Mæðgin meistarar 2. árið í röð!!!

Meistaramót GHR fór fram dagana.  Þátttakendur í ár voru 26. Andri Már Óskarsson er klúbbmeistari GHR 2015 Andri Már spilaði hringina 4 á  samtals 3 yfir pari, 283 höggum (71-72-67-73).  Móðir hans, Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir, varð klúbbmeistari í kvennaflokki, en hún lék Strandarvöll á samtals 357 höggum (93-92-85-87).  Þetta er 2. árið í röð, sem þau mæðgin verða klúbbmeistarar GHR!!! Heildarúrslitin eru eftirfarandi:  Meistaraflokkur karla: 1 Andri Már Óskarsson GHR 0 F 35 38 73 3 71 72 67 73 283 3 2 Óskar Pálsson GHR 4 F 42 39 81 11 76 76 80 81 313 33 1. flokkur kvenna 1 Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir GHR 13 F 44 43 Lesa meira