Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2015 | 08:00
Michelle Wie ljóshærð

Michelle Wie er orðin ljóshærð og auðvitað þurfti hún að láta alla aðdáendur sína vita af því á Twitter. Þar skrifaði hún: „Loksins búið! Það tók meir en 8 tíma að lita og tóna. Takk mamma fyrir að hjálpa mér @olaplex fyrir að passa upp á hárið @guy_tang fyrir frábæra kennslu á youtube #SalonWiezy #Hairtransformation #BlondeWiezy“ Auk þess birti Wie meðfylgjandi mynd af sér sem sönnun um ljósu lokkana…. sem troðfyllir alla golffréttamiðla í dag. Sem kunnugt eiga ljóskur að skemmta sér meira. Kannski Wie sé í þörf fyrir það? …. en hún hefir líkt og margir aðrir atvinnukylfingar verið hrjáð af meiðslum þetta árið; þurfti m.a. að draga sig úr Opna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2015 | 07:00
LET: Fylgist m/ Tipsport hér!

Í dag hefst mót vikunnar á LET þ.e. Evrópumótaröð kvenna og fer það fram í Plzen í Tékklandi. Mótið nefnist Tipsport Golf Masters. Fylgjast má með stöðunni með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2015 | 02:10
WGC: Lee efstur e. 1. dag Bridgestone Inv.

Danny Lee, frá Nýja-Sjálandi er efstur eftir 1. dag Bridgestone heimsmótsins, sem hófst í gær 6. ágúst 2015. Lee lék á 5 undir pari, 65 höggum. Í 2. sæti eru Graeme McDowell og Jim Furyk, 1 höggi á eftir þ.e. á 4 undir pari. Rickie Fowler og Justin Rose deila síðan 4. sætinu á 3 undir pari, hvor. Til þess að sjá stöðuna á Bridgestone Inv. SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2015 | 02:00
Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur T-38 e. 1. dag á Írlandi

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf í gær leik á Northern Ireland Open in Association with Sphere Global and Ulster Bank mótinu á Norður-Írlandi. Leikið er á Galgorm kastalavellinum – sjá má heimasíðu vallarins með því að SMELLA HÉR: Birgir Leifur lék á 2 undir pari, 69 höggum og er T-38 e. 1. dag. Fimm kylfingar deila efsta sæti þ.á.m. Bandaríkjamaðurinn John Hahn en allir hafa toppmennirnir leikið á 6 undir pari, 65 höggum. Til þess að sjá stöðuna á Northern Ireland Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2015 | 01:45
Viðtal GW v/ Guðmund Ágúst

Golfing World tók stutt viðtal við Guðmund Ágúst Kristjánsson, GR, eftir góðan árangur hans á Evrópumóti áhugamanna á 2. keppnisdegi mótsins. Guðmundur Ágúst var lengi vel í 1. sæti eftir 2. hring mótsins, en er nú T-2, þ.e. deilir 2. sætinu, í lok 2. dags. Sjá má myndskeið af viðtali GW við Guðmund Ágúst með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2015 | 01:00
Guðmundur Ágúst T-2 e. 2. dag EM áhugamanna

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR er í öðru sæti þegar keppni er hálfnuð á Evrópumeistaramóti einstaklinga sem fram fer í Slóvakíu. Guðmundur er á -12 samtals eftir að hafa leikið á 67 og 65 höggum en Jamie Bower frá Englandi er efstur á -13 samtals. Félagi hans úr GR, Haraldur Franklín Magnús, er einnig í toppbaráttunni en hann lék á 71 höggi í dag og er á -9 samtals (64-71). Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: Alls eru sex íslenskir kylfingar á meðal keppenda á þessu sterka áhugamannamóti. Sigurvegarinn fær keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu á næsta ári en mótið er eitt af fjórum sterkustu áhugamannamótum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2015 | 00:01
LET Access: Ólafía T-5 e. 2. dag í Svíþjóð

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, tekur þátt í Norrporten Ladies Open í Sundsvall, Svíþjóð. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni Ólafía Þórunn er flogin í gegnum niðurskurð eftir að hafa leikið fyrstu tvo hringina á samtals 1 yfir pari, 143 höggum (71 72) og er T-5 þ.e. deilir 5. sætinu með þeim Oonu Varitainen frá Finnlandi og Nataliu Escoriola Martinez frá Spáni. Efst e. 2. dag er finnska stúlkan Krista Bakker á samtals 5 undir pari. Til þess að sjá stöðuna á Norrporten Ladies Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2015 | 20:00
Bjór-pong golfbrelluhögg

Tveir kappar sýna golfbrelluhögg í meðfylgjandi myndskeiði. Sjá má myndskeiðið með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2015 | 18:00
Ökklinn á Rory

Rory McIlroy er að taka hraðari framförum af ökklameiðslum en áður var talið. Hann póstaði myndir af ökkla sér á Instagram; aðra tekna fyrir 4 1/2 viku og þá sést að ökklinn er verulega bólginn og síðan allur marinn og í sárum fyrir 3 1/2 viku. Fótboltaleikurinn sem Rory tók þátt í með vinum sínum er búinn að kosta hann milljónir og e.t.v. nokkra titla a.m.k gat hann ekki verið með á Opna breska og enn óvíst hvort hann verður með á síðasta risamóti ársins, PGA Championship. Af myndunum að dæma er erfitt að trúa að hann sé að snúa aftur, en myndskeið sem Rory birti í gær sýnir hversu langt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Auður Elísabet Jóhannsdóttir – 6. ágúst 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Auður Elísabet Jóhannsdóttir, en hún fæddist 6. ágúst 1968 og á því 47 ára afmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Auður Elísabet Jóhannsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Doug Ford, 6. ágúst 1922 (93 ára); Bert Yancey, f. 6. ágúst 1938 – d. 26. ágúst 1994; Pétur Steinar Jóhannesson, 6. ágúst 1942 (73 ára) Tom Inskeep, 6. ágúst 1955 (60 ára stórafmæli) – lék á kandadíska PGA; Indíana Fanndal, 6. ágúst 1960 (55 ára)Michel Besancenay, 6. ágúst 1962 (53 ára); Lauren Cowan, 6. ágúst Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

