Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2015 | 12:00
Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá T-9 á stóru móti í Texas – lék 1. hring á 2 undir pari!

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og The Bulldogs golflið Fresno State eru sem stendur að keppa á stóru háskólamóti í Texas, þar sem gestgjafinn er University of Denver. Alls eru þátttakendur 99 frá 18 háskólum. Mótið stendur 9.-11. október 2015. Eftir 1. dag er Guðrún Brá T-9; lék á 2 undir pari, 70 höggum. Fresno State er í 9. sæti í liðakeppninni. Fylgjast má með gengi Guðrúnar Brá og Fresno State með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2015 | 11:00
LET Access: Hörkubyrjun hjá Valdísi Þóru á 3. hring

Þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL taka þátt í síðasta mótinu á LET Access mótaröðinni í ár, sem fram fer á Nayland Hotel Golf & Spa í Englandi og ber heitið WPGA International Challenge. Þriðji þ.e. lokahringurinn er hafinn og Valdís Þóra er í augnablikinu að spila hreint ótrúlega flott golf!!! Á fyrstu 5 holunum er hún 5 undir pari, búin að fá 1 örn á par-5 4. holunni og 3 fugla. Glæsilegt hjá Valdísí Þóru og vonandi að framhald verði á!!! Valdís Þóra er sem stendur í 4. sæti og vonandi að hún verði áfram í fuglasöngnum og fari alla leið á toppinn!!! Sem stendur er Ólafía Þórunn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2015 | 10:00
Forsetabikarinn: USA 9 1/2 – Alþjóðaliðið 8 1/2

Nú er fjórmennings og fjórboltaleikjum Forsetabikarsins lokið og einungis tvímenningsleikir sunnudagsins (þ.e. morgundagsins) eftir. Forsetabikarinn er í raun með Ryder bikars fyrirkomulagi og margir spenntir fyrir hvernig tvímenningsviðureignirnar fara. Leikið er á golfvelli Jack Nicklaus golfklúbbnum í Songdo, Incheon í Kóreu. Fjórboltaleikir laugardagsins fóru eftirfarandi (sigurliðið feitletrað): J.B. Holmes og Bubba Watson g. Louis Oosthuizen og Branden Grace 1&0 Phil Mickelson og Zach Johnson g. Adam Scott og Anirban Lahiri 3&2 Jimmy Walker og Chris Kirk g. Sangmoon Bae og Hideki Matsuyama 6&5 (rassskelling!) Patrick Reed Jordan Spieth g. Jason Day Charl Schwartzel 3 & 2 Munurinn á liðunum er lítill – aðeins 1 vinningur skilur að! Sjá má stöðuna í Forsetabikarnum með því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2015 | 19:30
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst hefur leik í dag í Tennessee

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR hóf í dag leik í Bank of Tennessee mótinu í Blackthorn at the Ridges golfvellinum í Tennessee. Fylgjast má með gengi hans og félögum í ETSU Bucs með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2015 | 19:15
Forsetabikarinn: USA 5 1/5 – Alþjóðaliðið 4 1/2

Staðan í Forsetabikarnum í gær var 4-1 liði Bandaríkjanna í vil. Í dag mætti Alþjóðliðið ákveðið til leiks og vann 3 leiki og jafnt var á mönnum í einum fjórboltaleikjum föstudagsins. Bandaríkjamenn unnu aðeins einn leik. Hér má sjá úrslit dagsins í dag (sigurliðin feitletruð): Dustin Johnson Jordan Spieth – Louis Oosthuizen Branden Grace 4 & 3 Rickie Fowler Jimmy Walker – Danny Lee Sangmoon Bae 1&0 Zach Johnson Phil Mickelson – Adam Scott Jason Day A/S Allt jafnt J.B. Holmes Bubba Watson – Marc Leishman Steven Bowditch 2&0 Bill Haas Chris Kirk – Thongchai Jaidee Charl Schwartzel 2&1 Til þess að sjá stöðuna í heild í Forsetabikarnum SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2015 | 18:00
LET Access: Ólafía T-8 og Valdís í 11. sæti e. 2. dag í Englandi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL taka þátt í síðasta mótinu á LET Access mótaröðinni í ár. Mótið fer fram á Nayland Hotel Golf & Spa í Englandi. Ólafía lék á 74 höggum í dag og við það fór hún niður í 8. sætið sem hún deilir með öðrum keppanda, s.s. T-8. Valdís lék aftur á 72 höggum í dag og er ein í 11. sæti. Stórglæsilegur árangur hjá stúlkunum okkar! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. hring WPGA International Challenge SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur B. Sveinsson – 9. október 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Guðlaugur B. Sveinsson, læknir. Guðlaugur er fæddur 9. október 1959 og er því 56 ára í dag. Guðlaugur er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og duglegur að taka þátt í opnum mótum. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Panton f. 9. október 1916 – d. 24. júlí 2009; Sigríður Elín Þórðardóttir, GSS, 9. október 1960; Annika Sörenstam, 9. október 1970. Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2015 | 14:00
44 fyndnustu augnablik í golfinu (16/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.” Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð. Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2015 | 12:00
GB: Bændaglíma á morgun

Á vef Golfklúbbs Borgarness mátti sjá eftirfarandi auglýsingu um Bændaglímu golfklúbbsins: Á morgun (10.10) heldur GB sína Bændaglímu, sem er síðasta mót þessa sumars. Við í GB þökkum öllum þeim sem sóttu okkur heim í sumar fyrir komuna og viðkynninguna. Vonandi sjáumst við næsta sumar. Ómar Örn (GB) tók þessa myndasönnun um að hausti hallar á Hamarsvelli.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2015 | 12:00
Luke Donald „rekinn“ af kaddýnum sínum

S.l. 6 ár hefir Johnny ‘Long Socks’ McLaren verið með u.þ.b. £300,000 í árslaun sem kylfuberi Luke Donald og hann segist halda að vinnuveitandi hans (þ.e. Luke Donald) muni brátt verða aftur nr. 1 á heimslistanum. Þrátt fyrir það tilkynnti „Long Socks“ að hann vildi ekki gegna starfi kaddýs lengur fyrir Luke Donald, þrátt fyrir að hafa engan nýjan poka til að bera. Uppsögn „Long Socks“ McLaren er heldr leyndardómsfull. Sögusagnir voru á kreiki að hann hefði verið ráðinn af Adam Scott en McLaren kæfði þær sögur þegar í fæðingu. Eftir að hafa verið á 67 höggum eftir 1. hring British Masters þá segist Luke Donald sjálfur vera hissa. „Í lok síðasta Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

