About: Ragnheiður Jónsdóttir
Recent Posts by Ragnheiður Jónsdóttir
Golfgrín á laugardegi (8/2024)

Spyr einn kylfingur annan: „Hvernig gekk í dag?“ „Ég spilaði á 69 höggum,“ svaraði kylfingurinn. Spyrjandinn opinmynntur „Hva, vá, það er frábært! Eigum við að spila saman á morgun?“ Hinn segir: „Já auðvitað. Ég á alveg eftir að spila hinar 9 holurnar!“
Written on ágúst 31, 2024 at 20:00
Categories: Fréttir
LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni

Þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, tóku báðar þátt í LET Access móti vikunnar, Get Golfing Women´s Championship. Mótsstaður er The Club Mill Green, sem er á milli bæjanna Hatfield og Welwyn Garden, City í Hertfordskíri, Englandi. Staðan þegar þetta er ritað kl. 16:30 að íslenskum tíma er sú að Ragnhildur er úr leik; spilaði á 6 yfir pari, 150 höggum (74 76) og munaði aðeins 1 sárgrætilegu höggi að hún kæmist gegnum niðurskurð. Guðrún Brá er enn út á velli á 6 holur óspilaðar og er sem stendur í 24. sæti. Fylgjast má með Guðrúnu Brá á skortöflu á Get Golfing Women’s Championship með því að Lesa meira
Written on ágúst 31, 2024 at 17:30
Categories: Fréttir
Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024

Það er Elías Kristjánsson, sem er afmæliskylfingur dagsins á Golf 1. Elías er fæddur 31. ágúst 1954 og fagnar því 70 ára merkisafmæli í dag. Hann er í Golfklúbbi Sandgerðis. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Elíasi til hamingju með afmælið hér að neðan: Elías Kristjánsson 70 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: The Hon. Michael Scott, 31. ágúst 1878 – 9. janúar 1959; Isao Aoki, 31. ágúst 1942 (82 ára); Elías Kristjánsson, GSG, 31. ágúst 1954 (70 ára); Ása Ólafsdóttir, 31. ágúst 1952 (62 ára); Snæbjörn Guðni Valtýsson, GS, 31. ágúst 1958 (66 ára); Ólafur Hafsteinsson, Lesa meira
Written on ágúst 31, 2024 at 16:00
Categories: Fréttir
Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024

Afmæliskylfingur dagsins er danski kylfingurinn Amanda Moltke-Leth. Amanda er fædd í Kaupmannahöfn 30. ágúst 1976 og á því 48 ára afmæli í dag. Foreldrar Amöndu voru diplómatar og var hún því á eilífu flandri um heiminn, þegar hún var yngri. Hún byrjaði ung að spila golf og hætti á LET eftir farsælan feril 2011, til þess að gerast lögreglukona. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Francisco Abreu, 30. ágúst 1943 (81 árs); Erling Svanberg Kristinsson, 30. ágúst 1951 (73 ára); Ingibjörg Snorradóttir, 30. ágúst 1951 (73 ára); Beth Bader, 30. ágúst 1973 (51 árs) ….. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga Lesa meira
Written on ágúst 30, 2024 at 16:00
Categories: Fréttir
Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla

Íslandsmót golfklúbba 2024 í 3. deild karla fór fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 16.-18. ágúst sl. Alls voru 8 klúbbar sem tóku þátt. Efsta liðið fór upp í 2. deild og neðsta liðið féll í 4. deild. Golfklúbbur Fjallabyggðar, GFB, og Golfklúbbur Borgarness, GB léku til úrslita um sigurinn. Þar hafði GFB betur, 3-0. Golfklúbbur Byggðarholts, GBE, frá Eskifirði varð í þriðja sæti eftir 2-1 sigur gegn Golfklúbbi Húsavíkur um þriðja sætið. Golfklúbburinn Mostri frá Stykkishólmi féll í 4. deild. Íslandsmeistarasveit karla í 3. deild, á Íslandsmóti golfklúbba 2024, var svo skipuð: Ármann Viðar Sigurðsson; Grímur Þórisson; Kristján Benedikt Sveinsson (klúbbmeistari GFB 2024) og feðgarnir Sigurbjörn Þorgeirsson og Lesa meira
Written on ágúst 30, 2024 at 05:52
Categories: Fréttir
Recent Comments by Ragnheiður Jónsdóttir
No comments by Ragnheiður Jónsdóttir yet.
