Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Douglas & Zeta-Jones,Van der Walt og Jón Halldór Guðmundsson – 25. september 2019

Afmæliskylfingar dagsins eru leikarahjónin og áhugakylfingarnir Michael Douglas og Catherine Zeta Jones, sem eiga sama afmælisdag, 25. september; Michael er fæddur 1944 og á 75 ára stórafmæli og Catherine er fædd 1969 og er 50 ára, í dag. Michael Douglas hóar árlega saman stjörnuliði kylfinga og rennur ágóðinn af golfmóti hans til góðgerðarmála. Catherine hóf að spila golf eftir að hún giftist Michael. Þau hjón hafa skv. allskyns slúðurblöðum átt ansi erfitt, sem m.a. reiknast á maníu-depressívu Catherine. Þau eiga tvö börn Carys og Dylan. Sagt er að þau haldi í hjúskap sinn eftir fremur erfiða tíma.

Annar afmæliskylfingur dagsins er Tjaart Van der Walt, frá Suður-Afríku, sem fæddur er 25. september 1974 og á því 45 ára afmæli í dag. Sjá má grein Golf 1 um Van der Walt með því að SMELLA HÉR:

Fjórði afmæliskylfingurinn hér á Golf1 í dag er Jón Halldór Guðmundsson, sem fæddur er 1954 og á því 65 ára afmæli í dag. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið!

Jon Halldor Gudmundsson (65 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar eru: Ystiklettur Veiðifélag, 25. september 1955 (64 ára); Heather Locklear, 25. september 1961 (58 ára); Speshandverk Lillaogmagga (53 ára; Catherine Zeta Jones, 25. september 1969 (50 ára); Skúli Már Gunnarsson, 25. september 1971 (48 ára);  Jodie Kidd, 25. september 1978 (41 árs); John Mallinger, 25. september 1979 (40 ára STÓRAFMÆLI!!!); Belen Mozo, 25. september 1988 (31 árs); Aron Atli Bergmann (21 árs) …. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingunnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is