Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Betsy Rawls – 4. maí 2023

Afmæliskylfingur dagsins er  Betsy Rawls. Hún fæddist 4. maí 1928 í Spartanburg, S-Karólínu og á því 95 ára merkisafmæli í dag. Rawls sigraði í 55 LPGA mótum og á 8 risamótum kvennagolfsins og var vígð í heimsfrægðarhöll kylfinga 1960. Árið 1996 hlaut Rawls Bob Jones Award sem er æðsta viðurkenning veitt af bandaríska golfsambandinu. Sjá má eldri greinar um Rawls hér á Golf 1 með því að  SMELLA HÉR:  og með því að SMELLA HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Charles Ross „Sandy“ Somerville, f. 4. maí 1903 – d. 17. maí 1991; Betsy Rawls, 4. maí 1928 (95 ára MERKISAFMÆLI!!!); Guðrún Ösp Þórgnýsdóttir, GK, 4. maí 1959 (64 ára); Jyoti Randhawa, 4. maí 1972 (51 árs– Indverskur); Rory McIlroy, 4. maí 1989 (34 ára); Örvar Samúelsson, GA, 4. maí 1991 (32 ára); Bryndís María Ragnarsdóttir, GK 4. maí 1995 (28 ára);  Halldór Jóhann Sævar Jósefsson, 4. maí 1996 (27 ára); Kristján Benedikt Sveinsson, GA, 4. maí 1999 (24 ára) …. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is