Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Aron Snær Júlíusson – 29. nóvember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Aron Snær Júlíusson, GKG. Aron Snær fæddist 29. nóvember 1996 og á því 25 ára afmæli í dag.

Hann spilaði í bandaríska háskólagolfinu, með liði Louisiana Lafayette, The Ragin Cajuns og stóð sig vel.

Af einstökum afrekum Aron Snæs mætti sem dæmi nefna að hann varð klúbbmeistari GKG 2015 og sigraði í Einvíginu á Nesinu 2015; hann setti vallarmet á Jaðrinum 2014 – 67 högg; hann varð stigameistari GSÍ á Íslandsbankamótaröðinni 2013 í piltaflokki tók m.a. þátt í Duke of York mótinu 2013 og sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ, árið 2012 og þá er fátt eitt talið.

Allt frá árinu 2017 hefir Aron Snær fyrir sér í úrtökumótum fyrir Evróputúrinn. Í ár, líkt og undanfarin ár, spilaði Aron Snær á Mótaröð hinna bestu. Í fyrra varð hann Íslandsmeistari í höggleik! Nú í ár, 2022 varð Aron Snær klúbbmeistari karla í GKG.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Aron Snæ með því að SMELLA HÉR:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: K Snæfells Kjartansson, 29. nóvember 1954 (68 ára); Santiago Luna, 29. nóvember 1962 (60 ára MERKISAFMÆLI!!!); Perry Parker, 29. nóvember 1964 (58 ára); Rósa Guðbjartsdóttir, 29. nóvember 1965 (57 ára); Guy Hill, 29. nóvember 1970 (52 ára); Tonya Gill 29. nóvember 1970 (52 ára) og Danny Chia, 29. nóvember 1972 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Ann-Kathrin Lindner, 29. nóvember 1987 (35 ára – spilaði á LET) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is