Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rocco Mediate og Hafdís Alda Jóhannsdóttir – 17. desember 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Rocco Mediate og Hafdís Alda Jóhannsdóttir.

Rocco Mediate er fæddur 17. desember 1962 og fagnar því 60 ára afmæli í dag. Mediate gerðist atvinnukylfingur 1985 og á 13 sigra í beltinu sem slíkur, þar af 6 á PGA Tour. Hann er e.t.v. þekktastur fyrir að hafa keppt í bráðabana við Tiger Woods um 1. sætið á Opna bandaríska risamótinu árið 2008. Þetta var aðeins í 3. skipti sem úrslit á Opna bandaríska hafa ráðist í bráðabana.  Tiger hafði betur en Mediate á 91. holu mótsins, en Mediate fór fyrir vikið úr 158. sætinu á heimslistanum í 47. sætið.  Mediate  er kvæntur Jessicu og eiga þau 4 börn.

Hafdís Alda er fædd 17. desember 1997 og á því 25 ára stórafmæli í dag! Hafdís Alda er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hafdís Alda er klúbbmeistari Golfklúbbs Hellu 2011, 2012 og 2013 í kvennaflokki og eins klúbbmeistari Keilis 2017. (Sjá má eldra viðtal Golf1 við Hafdísi Öldu með því að SMELLA HÉR: ) Um skeið lék Hafdís Alda í bandaríska háskólagolfinu með liði IUPUI.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hafdísi til hamingju hér að neðan

Hafdís Alda (25 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Rocco Mediate, 17. desember 1962 (60 ára ); Gunnar Þór Gunnarsson, 17. desember 1964 (57 ára); Tim Clark, 17. desember 1975 (46 ára); Tracey Boyes, 17. desember 1981 (40 ára STÓRAFMÆLI!!!); Anton Helgi Guðjónsson, 17. desember 1993 (29 ára) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is