Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2012 | 22:00

Viðtalið: Hafdís Alda Jóhannsdóttir GHR & GK

Viðtalið í kvöld er við klúbbmeistara Golfklúbbs Hellu 2011, Hafdísi Öldu Jóhannsdóttur, en GHR fagnar 60 ára afmæli eftir tæpan mánuð þ.e. 22. júní n.k. Hafdís Alda var t.a.m. í öðru sæti í sínum flokki í fjölmennu Lancôme kvennamóti á Hellu, 6. maí 2012. Hún var með besta skor mótsins án forgjafar. Hafdís Alda spilar líka á Unglingamótaröð Arion banka, sem hófst s.l. helgi.  Hér fer viðtalið:

Fullt nafn : Hafdís Alda Jóhannsdóttir.

Klúbbur: Keilir og GHR.

Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík þann 17. desember 1997.

Hvar ertu alin upp? Í Hafnarfirði.

Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég bý hjá foreldrunum mínum í Hafnarfirði og pabbi minn hefur spilað golf alveg frá því að ég man eftir mér.

Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GHR og GK. Mynd: Í einkaeigu.

Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég byrjaði að fara á sumarnáskeið um svona 6 ára aldur en byrjaði að æfa 2007.

Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Pabbi minn skráði mig á námskeið og ég fór líka með honum.

Hvað starfar þú / Ertu í námi ef svo er hvaða? Ég er bara ennþá í Setbergsskóla og ég starfa á Hótel Cabin í sumar.

Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli? Mér finnst strandvellir skemmtilegri.

Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur? Höggleikur, en mér finnst mjög gaman líka í holukeppni.

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi? Uppáhaldsgolfvellirnir eru Hvaleyrin hjá Keili og Strandarvöllur hjá GHR.

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum? The Palmer Course í Reunion Resort Florida.

Frá Reunion Golf Resort í Flórída- uppáhaldsgolfstað Hafdísar Öldu.

Hver er sérstæðasti golfvöllur sem þú hefir spilað á og af hverju? Hamarsvöllur í Borgarnesi, út af 16. holunni.

Hvað ertu með í forgjöf? 12,2.

Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? 80 á Hvaleyrinni hjá Keili í Hafnarfirði.

Hvert er lengsta drævið þitt? Ég veit það ekki.

Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu? Ég klúbbmeistari í GHR og að ég er búin að bæta mig mikið.

Hafdís Alda Jóhannssdóttir ásamt Andra Má Óskarssyni, klúbbmeistarar GHR 2011.

Hefir þú farið holu í höggi? Nei.

Hvaða nesti ertu með í pokanum? Ég er alltaf með 1 eða 2 samlokur og svo hnetur, þurrkaða ávexti og ávexti.

Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum?  Já, ég var í handbolta og fótbolta.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn, uppáhaldsdrykkur, uppáhaldstónlist, uppáhaldskvikmynd og uppáhaldsbók? Ég elska allan mat, sódavatn, ég hlusta á alla tónlist, mér finnst mjög margar myndir skemmtilegar og uppáhaldsbókin mín er Hunger Games serían.

Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing? Suzann Pettersen og Bubba Watson.

Hvert er draumahollið?  Bubba Watson, Rickie Fowler og Ben Crane.

Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? Í pokanum hjá mér eru pútter, wedgar 52°,54°,60 ,9,8,7,6 járn, 5-tré,,hálviti og dræver og uppáhaldskylfan mín er Callaway dræverinn minn.

Hefir þú verið hjá golfkennara? Já.

Ertu hjátrúarfull? Já.

Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu? Markmiðið mitt er að komast í háskóla í Bandaríkjunum.

Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)? 40%

Að lokum: Hvað finnst þér best við golfið? Að vera úti að bara spila golf.