Frá betri tíð fyrir kylfinginn Robert Allenby
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Robert Allenby – 12. júlí 2021

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski kylfingurin Robert Allenby. Hann er fæddur 12. júlí 1971 í Melbourne, Ástralíu og fagnar því 50 ára stórafmæli. Allenby gerðist atvinnumaður í golfi árið 1991. Hann hefir sigrað 4 sinnum á PGA tour og 12 sinnum á Ástralasíu túrnum og alls. Allenby hefir verið þekktari fyrir allskyns furðufréttir af sér. Minnisstæðar eru t.d. fréttir af því þegar mót fór fram í Hawaii á PGA Tour 2015, sem Allenby tók þátt í, en þar sagði hann að sér hefði verið rænt og hann rændur, sem reyndist síðan ekki rétt. Rifja má upp fréttir af því með því að SMELLA HÉR:  og SMELLA HÉR: 

Eins fréttir af því þegar Allenby var eltur af apa á golfvelli, sjá frétt þar um með því að SMELLA HÉR: og eins þykir Allenby skaphundur og hefir á ferli sínum haft 24 kaddýa, sjá með því að SMELLA HÉR: 

Paul Runyan, f. 12. júlí 1908- d. 17. mars 2002; Heimilisiðnaðarfélag Íslands Heimilisiðnaðarskólinn (108 ára); Austfirskir Sjómenn 12. júlí 1965 (56 ára); Robert Allenby 12. júlí 1971 (49 ára); Sumartónleikar Í Skálholtskirkju 12. júlí 1975 (46 ára); Alexander Norén, 12. júlí 1982 (39 ára); Sophie Giquel-Bettan, 12. júlí 1982 (39 ára); Isabella Ramsay (sænsk) 12. júlí 1987 (34 ára); Inbee Park, 12. júlí 1988 (33 ára); Tristan Arnar Beck, 12. júní 2002 (19 ára); Kristín Gunnbjörnsdóttir … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is