Jóhannes Ármannsson, framkvæmdastjóri GB. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhannes Ármannsson – 3. nóvember 2020

Afmæliskylfingur dagsins er Jóhannes Ármannsson. Jóhannes er fæddur 3. nóvember 1969 og er því 51 árs afmæli í dag. Hann er framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness. Jóhannes er kvæntur og á einn son, Davíð Ólaf.

Sjá má skemmtilegt eldra viðtal Golf 1 við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum með daginn hér að neðan:

Jóhannes Ármannsson. Mynd: Golf 1

Jóhannes Ármannsson – Innilega til hamingju með 51 árs afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Sue Daniels, áströlsk, 3. nóvember 1958 (62 ára); Michael Paul Springer, 3. nóvember 1965 (55 ára); Hk Konfekt (45 ára) Guðbjörg Þorsteinsd, 3. nóvember 1979 (41 árs); Laurie Canter, 3. nóvember 1989 (31 árs); UglyRock Hönnun (25 ára)….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is