Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Nobuhle Dlamini (57/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu;  þær fjórar sem deildu 20. sætinu og loks þær 10 stúlkur sem voru T-10.

Næst verða kynntar þær 2 stúlkur sem deildu 8. sætinu þ.e. urðu T-8, en allar spiluðu þær á samtals 2 yfir pari, 363 höggum og tryggðu sér þar með öruggt sæti og fullan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu, Ladies European Tour (skammst: LET). Þetta eru þær Casandra Danielle Hall og Nobuhle Dlamini.

Byrjað verður á að kynna Nobuhle Dlamini en hún varð uppreiknað í 9. sætinu.

Nobuhle Dlamini er fyrsti kylfingurinn frá Swaziland til þess að öðlast fullan spilarétt á LET.

Hún fæddist 6. nóvember 1991  og er því 29 ára.

Dlamini komst fyrst inn á LET árið 2014 og er því aðeins að endurnýja spilaréttindi sín.

Við það tilefni var að sjálfsögðu skrifuð kynning á henni, hér á Golf 1, sem enn er í góðu gildi og sjá má með því að SMELLA HÉR: