Nýju stúlkurnar á LET 2014: Nobuhle Dlamini (28/31)
Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).
Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.
Nú er aðeins eftir að kynna þær stúlkur sem urðu í 6 efstu sætunum. Byrjað verður á að kynna þær 3, sem deildu 4.-6. sætinu þ.e. þær Nobuhle Dlamini, Josephine Janson og Viva Schlasberg en þær léku allar samtals á 4 undir pari, 356 höggum, hver.
Sú sem verður kynnt í kvöld er sú síðasta af þremenningunum og sú fyrsta sem kemst á LET frá Swazilandi Nobuhle Dlamini. Dlamini varð í 4. sætinu eins og segir á 356 höggum (73 72 69 73 69).
Nobuhle Dlamini fæddist 6. nóvember 1991 og er því 22 ára. Dlamini komst fyrst á golfkortið þegar hún varð í topp-10 á Heimslista áhugamanna eftir stjörnugolfár 2012 þar sem henni tókst að vinna 6 titla. Hún var ekki einu sinni meðal topp-100 í árslok 2011 en komst hæst í 2. sætið á Heimslista áhugakylfinga. Sigurgöngu hennar á golfvöllum hélt áfram 2013 þegar hún vann m.a. Eastern Cape Amateur Championship, Kwazula-Natal Championship, North West Championships, Gauteng Amateur Championship og eins vann hún í einstaklingskeppninni í GSA 72-Hole Team Championships. Auk þess varð Nobuhle suður-afrískur meistari kvenna í höggleik 2013.
Þó Nobuhle sé frá Swaziland hefir hún búið í Suður-Afríku s.l. 8 ár, m.a. til þess að geta stundað golfíþróttina. Nobuhle er með háskólagráðu í íþróttafræðum frá háskólanum í Pretoríu. Nobuhle segir pabba sinn Johannes hafa haft mestu áhrif á golfleik sinn, en hann bæði kenndi henni að spila og hefir verið þjálfari hennar.
Aðspurð um hverjar séu fyrirmyndir hennar í golfinu segir Nobuhle að það séu Tiger Woods, Ernie Els en líka Yani Tseng og Lee-Anne Pace.
Hér má sjá viðtal fréttamanns LET við Nobuhle eftir að hún náði að verða sú fyrsta frá Swaziland til þess að spila á LET SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024