Andri Þór Björnsson, GR.
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andri Þór Björnsson – 10. nóvember 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Andri Þór Björnsson. Andri Þór er fæddur í Reykjavík 10. nóvember 1991 og á því 28 ára afmæli í dag. Hann er afrekskylfingur í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) og hefir reynt fyrir sér í úrtökumótum fyrir Evrópumótaröðina og spilað á mótum Nordic Golf League. Í dag komst Andri Þór áfram á lokastig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina. Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Andra Þór með því að SMELLA HÉR:

Komast má á heimasíðu Andra Þórs til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

Elsku Andri Þór Björnsson, innilega til hamingju með 28 ára afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gylfi Ægisson (72 ára); Morris Hatalsky, 10. nóvember 1951 (67 ára); Lee Cross Rinker, 10. nóvember 1960 (59 ára); Tish Certo, 10. nóvember 1964 (55 ára); Sigmundur Einar Másson, GKG, 10. nóvember 1983 (36 ára); Allt Um Ísland, 10. nóvember 1989 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!); Brian Tracy, 10. nóvember 1989 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!); Celine Boutier, 10. nóvember 1993 (26 ára); Jon Rahm, 10. nóvember 1994 (25 ára) …… og ……. Marii Fuentes

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is