PGA: Dahmen og Straka efstir e. 1. dag Valspar
Það eru nýliðinn Sepp Straka, (25 ára) sá fyrsti á PGA Tour frá Austurríki og bandaríski kylfingurinn Joel Dahmen (29 ára), sem eru efstir og jafnir eftir 1. dag Valspar Open, sem er mót vikunnar á PGA Tour og stendur frá 21.-24. mars 2019 í Innisbrook, Flórída.

Joel Dahmen
Báðir léku þeir Dahmen og Straka 1. hring á 5 undir pari, 66 höggum.
Sjá má nýlega kynningu af hinum næsta óþekkta Sepp Straka með því að SMELLA HÉR:
Dahmen hefir verið lengur að, en er líka fremur óþekkt nafn á PGA Tour en hann er á 2. ári sínu þar og má sjá kynningu Golf 1 á Dahmen með því að SMELLA HÉR:
Dahmen og Straka skilja þekktari nöfnin eftir fyrir aftan sig, m.a. í 3. sæti en þar eru Luke Donald fyrrum efsti maður heimslistans um tíma, sem ekki hefur sést lengi ofarlega á skortöflum; sem og bandaríski kylfingurinn Kevin Kisner og Russell Knox frá Skotlandi; en allir léku þeir 1. hring á 4 undirpari, 67 höggum.
Sjá má stöðuna að öðru leyti á Valspar Open með því að SMELLA HÉR:
Sjá má hápunkta 1. dags á Valspar Open með því að SMELLA HÉR:
Í aðalmyndaglugga: Sepp Straka
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
