Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 22:00

„You´ve been Trumped“ sýnd á BBC 2 í gær og vekur andstöðu gegn Donald Trump

Heimildarmyndin um bolabrögð Donald Trump við byggingu golfvallar síns í Aberdeenshire í Skotlandi var sýnd í gær á BBC 2.

Hún ber heitið „You´ve been Trumped“ (Golf 1 fjallaði um heimildarmyndina fyrir ári síðan sjá með því að SMELLA HÉR:)

Talið er að 1,1 milljón manna hafi séð heimildarmyndina, sem er 40% yfir venjulegu áhorfi og hefir hún skapað mikla reiði í garð Trump og umfjöllun á samfélagsmiðlunum.

Umfjöllun í breskum dagblöðum um bolabrögð Trump, sem lýst er í myndinni er særandi og gróf í garð billjónamæringsins í The Guardian, meðan Neil Midgeley hjá Telegraph veltir sér mikið upp úr reiði áhorfenda, sem sáu myndina.

Myndin er gerð án samráðs við Trump eða skoska fulltrúa hans; en leikstjórinn Anthony Baxter kaus að segja söguna frá sjónarhóli íbúa í Balmedie, en bæjarbúar reyndu árum saman árangurslaust að fá heimild Trump til byggingar golfvallarins hnekkta.

Hér má sjá smá dæmi þess sem ritað var um Trump og skoska ríkið eftir að myndin var sýnd:

 

Viðbrögð rithöfundarins og fyrrum sjónvarpsgagnrýnanda Times, Caitlin Moran.

Heimild: WUP