Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2014 | 14:45

Wozniacki vill verða ung móðir

Danska tennisstjarnan Caroline Wozniacki, kærasta nr.11, Rory McIlroy sagði nýlega í blaðaviðtali að hún væri tilbúin til þess að hætta í tennis til þess að stofna fjölskyldu með Rory.

Skötuhjúin trúlofuðu sig á nýársdag í Sydney og hafa tilkynnt að brúðkaup þeirra verði síðar á árinu í New York.

Í viðtalinu ýjaði Wozniacki, sem er ári yngri en Rory, þ.e. 23 ára, að hún vildi verða tiltölulega „ung móðir.“

Þannig hefir the Irish Independent eftir Wozniacki á vefsíðu sinni: „Ég vil verða tiltölulega ung móðir og ég sé ekki að það sé neitt langt undan í framtíðinni.“

Caroline er nr. 14 á lista yfir bestu tenniskonur heims og hefir unnið sér inn $15 milljónir á ferlinum (í hreint verðlaunafé).  Ríkidæmi Wozniacki er þó mun meira þökk sé góðum fjárfestingum hennar og í tölunni hér á undan er t.a.m. ekki talið fé sem hún hefir unnið sér inn vegna auglýsingasamninga, sem margfalda framangreinda fjárhæð.  Auðævi hennar(ens. net worth) einnar eru metnar á yfir  $185 milljónir.  Hún hefir m.a. fjárfest með arðbærum hætti í hlutabréfum og fasteignum auk þess sem hún er með góðan auglýsingasamning við Cover Girl Cosmetics. Caroline á nokkra veitingastaði (þ.e. “Fat Wozniacki Burger” keðjuna í Kaupmannahöfn, fótboltalið (“Odense Angels”); hún framleiðir sinn eiginn vodka  (Pure Wonderwozniacki – Denmark), hún framleiðir sitt eigið ilmvatn (With Love from Caroline)  og er með sína eigin fatalínu, m.a. nærfatalínu “the Caroline Wozniacki Seduction”.

Ekki slæmt fyrir 23 ára stúlku!