Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2013 | 09:00

Wie valin í Solheim Cup lið USA!

Meg Mallon tilkynnti eftir Ricoh Opna breska risamótið að Michelle Wie og Gerina Piller væru val sitt sem fyrirliða í Solheim Cup lið Bandaríkjanna. Valið, sérstaklega á Wie kemur eflaust mörgum á óvart en hún er búin að eiga eitthvert lakasta tímabil ferils síns það sem af er árinu.

Jafnframt var tilkynnt hverjar 12 skipuðu lið Mallon í Solheim Cup sem fram fer 16.-18. ágúst n.k. í Colorado Golf Club í Parker Colorado. Þær eru:

Stacy Lewis, Paula Creamer, Cristie Kerr, Angela Stanford, Brittany Lincicome, Lexi Thompson, Jessica Korda og Brittany Lang. Jafnframt eru í liðinu Lizette Salas og Morgan Pressel og val fyrirliða: Michelle Wie og Gerina Piller.

Lið Bandaríkjanna í Solheim Cup 2013

Lið Bandaríkjanna í Solheim Cup 2013

„Ég er bara ánægð að hafa loks kynnt lið mitt,“ sagði Mallon. „Ég er með 12 leikmenn sem ég er mjög spennt að vera með í liði mínu. Þeir hafa allir leikið sig inn í hjörtu okkar s.l. 2 ár.“

„Ég er ánægð og þykir mér mikill heiður sýndur jafnframt því að vera þakklát að hafa verið valin af fyrirliðanum,“ sagði Michelle Wie. „Að spila í liði Meg og með öllum stelpunum er draumur.“