Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2016 | 10:00

Wie fær ráð hjá Woods

Tiger Woods og Michelle Wie eiga ýmislegt sameiginlegt t.a.m. voru þau ung þegar athygli heimsins beindist að golfleik þeirra; þau voru bæði í Stanford háskóla í Kaliforníu og þau eru bæði með auglýsingasamninga við Nike.

Og þá er fátt eitt talið af því sem þau eiga sameiginlegt.

Þau hittust nú nýverið og fékk Michelle ráð hjá Tiger varðandi chippin sín.

Á Instagram skrifaði Wie:

Pretty cool hearing @tigerwoods talk about his golf game at his @twfoundation clinic today. Definitely learned some stuff! Thanks for letting me hit golf balls for you #nikefam

(Lausleg þýðing: Ansi svalt að hlusta á @tigerwoods tala um golfleik sinn í kennslustund hans í @twfoundation. Ég lærði svo sannarlega margt! Takk fyrir að leyfa mér að slá bolta með þér #nikefam)

Og Tiger virðist ekki síður vera aðdáandi Michelle en hann skrifaði á Instagram:

Had fun teaming up with @themichellewie today for @TWFoundation. Thanks for the assist. #GoStanford

(Það var gaman að hitta @themichellewie  í @TWFoundation. Takk fyrir hjálpina #GoStanford