WGC: Si Woo Kim setti nýtt met – 13 högg á 1 holu á Fedex St. Jude Inv.!
Si Woo Kim setti met á PGA mótaröðinni, sunnudaginn 8. ágúst sl., þegar hann var með 13 högg á par-3 11. holuna á TPC Southwind í Memphis, á lokadegi WGC-FedEx St Jude Invitational.
Kim fór við það úr samtals 5 yfir pari, í 15 yfir par á aðeins 1 holu. Bolti hans fór 5 sinnum í vatn og hann fékk vítahögg í hvert sinn fyrir og þurfti síðan 3 högg á flöt til þess að koma boltanum niður.
Hann setti met, því þetta skor hans er það hæsta á par-3 holu á PGA mótaröðinni frá a.m.k. 1983, þegar farið var að halda um svona tölfræði.
Kim lauk við hringinn á 78 höggum og var í 65. og síðasta sæti þeirra sem náðu niðurskurði á St. Jude – á samtals 13 yfir pari, 278 höggum (70 70 75 78). Þar af var lokahringurinn dýr – 8 yfir par! Hann var heilum 29 höggum á eftir þeim, sem sigraði Abraham Ancer, sem og þeim Burns og Matsuyama.
11. holan á TPC Southwind í Memphis er svipuð að hönnun og hin goðsagnakennda 17. á TPC Sawgrass, en á síðargreinda vellinum sigraði Kim þ.e. á Players Championship 2017 og ætti því að eiga góðar minningar frá svona holu, en par-3 holurnar voru eitthvað að stríða honum sl sunnudag!

- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
