Lee Westwood
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2019 | 08:00

Westy hæðist að því að Kisner skuli ekki hafa verið með með í bandaríska Ryder liðinu!

Nú eru 6 mánuðir síðan að evrópska Ryder bikars liðið vann lið Bandríkjanna á Le Golf National í París.

Varafyrirliði Evrópu, Lee Westwood (Westy) notaði tækifærið til að snúa hnífnum í sári Bandaríkjamanna með því að velta þeim upp úr því að hafa ekki valið Kevin Kisner í lið Bandaríkjanna.

Kevin Kisner heimsmeistari í holukeppni 2019

 

Westy gekk sjálfum ekkert sérlega vel í heimsmótinu í holukeppniog datt úr eftir leikina 3 í undanriðilinum.

En hann gat ekki orða bundist eftir frábæran hring Kisner, þar sem Kisner vann HaoTong Li frá Kína auðveldlega 6&5, en Kínverjinn er mjög góður holukeppnismaður!

Westwood fór á félagsmiðlana og skrifaði:

Kevin Kisner appears to be a very good match play player. I’ll tell you a course that would really have suited him. Le Golf National.

(Lausleg þýðing: Kevin Kisner virðist vera mjög góður holukeppnismaður. Ég veit um völl sem myndi hafa hentað honum. Le Golf National.“

Kisner þurfti á því að halda að fyrirliðinn veldi hann í liðið, þar sem honum gekk ekki nógu vel til þess að komast sjálfkrafa í liði. Bandarískai fyrirliðinn (Jim Furyk) gat valið 4 kylfinga í liðið.  Kisner var í 14. sæti á stigalistanum. Furyk valdi  Bryson DeChambeau (í 9. sæti stigalistans), Phil Mickelson (10), Tiger Woods (11) og Tony Finau (15. sæti).

Westy var svarað fullum hálsi á félagsmiðlunum og m.a. var einn sem sagði að Westy væri fljótur að hreyta fúkyrðum í bandarískt golf, en sleppti evrópskum kylfingum eins og Sergio Garcia, þegar hann hegðaði sér barnalega.

Svar Westy:

“Where exactly did I take a swipe at American golf?” I paid Kevin a huge compliment. He’s clearly made for this format and that course.”

(Lausleg þýðing: „Hvar nákvæmlega hreytti ég fúkyrðum í bandarískt golf? Ég var að hrósa Kevin. Þetta keppnisform og völlur á greinilega við hann.“)

Kisner var nærri toppnum í nákvæmni í drævum, sem var mjög mikilvægt í Parísog einnig í unnum höggum (strokes gained) í aðhöggum 2018.

Indeed, Kisner was near the top on Tour in terms of driving accuracy, which was very important in Paris, as well as strokes gained: approaching the green in 2018.

Hann hefir einnig sannað hæfni sína í holukeppni með því að sigra sjálfan Francesco Molinari í undanúrslitum og Matt Kuchar, sem var í Ryder liðinu í úrslitaleiknum.

Westy var sá sem síðast hló!!! 🙂