Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2017 | 12:15

Westy ánægður m/ að Rory haldi loforð sem hann gaf honum í brúðkaupi Sergio Garcia

 Lee Westwood er gestgjafi á British Masters, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum og honum kom á óvart hversu margar stjörnur taka þátt, þ.á.m. Rory McIlroy og Sergio Garcia.

Tilkynnt var um þátttöku Rory fremur seint, en þátttaka hans hefir svo sannarlega vakið áhuga á mótinu, sem og þátttaka Sergio Garcia,  Danny Willett, Martin Kaymer, Graeme McDowell, Ian Poulter og Matt Fitzpatrick.

Þetta hefur mikla þýðingu,“ sagði Westy, sem fetar í fótspor Ian Poulter og Luke Donald í að vera gestgjafi á þessu £3milljóna móti.

Ég veit ekki hvort ástæðan er ég, að svo margir kylfingar taka þátt en ef svo er, er það frábært. Sergio spilar ekki oft á Bretlandi, þannig að það er mikil auglýsing fyrir mótið.“

Ég spurði Rory í brúðkaupi Sergio, eftir að við höfðum drukkið nokkur vínglös og hann sagði að ef hann tæki ekki þátt í Tour Championship myndi hann hugleiða það af fullri alvöru að spila í mótinu og það er frábært að hann tekur nú þátt. Hann er einn af fáum kylfingum í heimilinum sem ég myndi nenna að mæta á móti á til að fylgjast með.“

Þannig að Rory stóð við loforð sem hann gaf Lee Westwood í brúðkaupi Sergio Garcia.

Þetta er einn sterkasti leikmannahópur sem við höfum haft í allt ár á Evróputúrnum. Ég trúi því varla hversu góður leikmannahópurinn er,“ sagði Lee Westwood ennfremur.