Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 29. 2016 | 08:58

Wayne Rooney skuldar Rory e. sigur Frampton

Þeir Scott Quigg og Carl Framton börðust í nótt í Manchester um heimsmeistarabelti í boxi.

Ekki í frásögur færandi á golffréttasíðu nema hvað Rory nr. 3 á heimslistanum tók veðmáli fótboltagoðsagnarinnar Wayne Rooney og þeir lögðu þó nokkuð fé undir í veðmáli hvor við annan (Allt í lagi! báðir hafa vel efni á því!!!)

Rory hélt með Framton sem sigraði og má sjá tvít þeirra Rory og Rooney hér að neðan:

Wayne Rooney:  All the best @scottquigg tonight. Hope you do it mate

(Lausleg þýðing: Gangi þér sem best @scottquigg í kvöld. Vona að þú vinnir vinur)

Rory McIlroy: You’re a legend Wayne but it’s @RealCFrampton all the way! https://twitter.com/waynerooney/status/703653157772124160 …

(Lausleg þýðing: Þú ert goðsögn Wayne en það er @RealCFrampton sem fer alla leið!)

Wayne Rooney stakk upp á að þeir legðu nokkur pund undir

Rory: Sounds good to me! https://twitter.com/waynerooney/status/703657825080311809 …

(Lausleg þýðing: Líst vel á það!)

Eftir sigur Framton:

Rory: YESSSS!!!! Well done @RealCFrampton! Fought a smart fight. Get your wallet out @WayneRooney!!

(Lausleg þýðing: YESSSS!!!! Vel gert @RealCFrampton! Barðist skynsamlega. Upp með veskið @WayneRooney!!)