Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2014 | 13:00

Volvo hættir sem styrktaraðili heimsmótsins í holukeppni

Evrópumótaröðin, sem er mun fátækari en PGA Tour í Bandaríkjunum berst nú við að halda í heimsmótið í holukeppni (ens. World Matchplay Championship)  eftir að elsti styrktaraðili mótsins, Volvo,  tilkynnti að hann myndi hætta stuðningi sínum við þetta fræga mót, sem heldur upp á 50. ára afmæli sitt í næstu viku í Kent.

Fréttin er Evrópumótaröðinni mikið áfall þar sem Volvo hættir einnig að styrkja Champions mótið sem hefir verið upphafsmót mótaraðarinnar frá árinu 2011.

Mótið átti að fara fram 2. vikuna í janúar í Durban, en nú er allt upp í loft varðandi það hvort af mótinu verður.

Missir þessa $4 milljón (£2.5milljóna) móts er mikill, en brotthvarf holukeppninnar er en meira áhyggjuefni og það er þess vegna sem Evrópumótaröðin og kynningaraðilar mótsins IMG hafa ákveðið að styðja mótið í a.m.k. 1 ár.

„IMG og Evrópumótaröðin ætla saman að standa að meistaramótinu árið 2015 og viðræður eru þegar hafnar við áhugasama varðandi það að vera fremsti styrktaraðili,“ sagði Guy Kinnings, yfirmaður IMG hvað snertir golf.

„Við þökkum Volvo fyrir stuðninginn og hlökkum til að halda upp á 50 ára afmæli á þessu sögulega móti með þeim í London Club í næstu viku.“

Mótið hóf göngu sína 1964 og þegar það var á hápunkti frægðar sinnar í Wentworth þá voru sigurvegarar í því á borð við  Jack Nicklaus, Arnold Palmer, Seve Ballesteros og Sir Nick Faldo.