Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2015 | 14:00

44 fyndnustu augnablik golfsins (29/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 15

Áður fyrr var hann þekktur sem reiði gæinn sem beyglaði pútternum um hausinn á sér.  En Woody Austin breytti ímynd sinni að eilífu árið 2007 þegar hann lenti í erfiðri stöðu og átti 1. flokks dýfu í vatnshindrun.  Hann tók þessu bara vel og mætti í gríni með kafaragleraugu á 1. teig í tvímenningsleik sínum og varð eftir það alltaf uppnefndur „The Aquaman.“

Hér má sjá myndskeið af atvikinu SMELLIÐ HÉR: