Birgir Leifur Hafþórsson verður með í Flórídaferðinni. Mynd: Golf 1. Birgi Leif og Ólafi Birni tókst ekki að ljúka 2. hring á Irish Creek Open mótinu
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Ólafur Björn Loftsson, NK léku í gær hluta af 2. hring á Irish Creek Open mótinu sem er hluti af eGolf Professional Tour mótaröðinni, en tókst ekki að ljúka honum.
Spilað er á golfvelli The Club at Irish Creek í Kannapolis, Norður-Karólínu. Sjá má gullfallegar myndir af iðagrænum golfvöllum Irish Creek á heimasíðu klúbbsins (ekki vanþörf á því í þessum snjó og kulda hér á Íslandi) með því að SMELLA HÉR:
Sem stendur er Birgir Leifur á samtals 3 yfir pari (eftir 13 spilaðar holur á 2. hring ) og Ólafur Björn á samtals 4 yfir pari (eftir 12 spilaðar holur á 2. hring), en talið er að niðurskurður verði miðaður við 4 yfir pari og „okkar menn“ því í línudansi á niðurskurðarlínunni.
Birgir Leifur og Ólafur Björn munu ljúka 2. hring í dag og kemur þá í ljós hvorum megin niðurskurðarlínunnar þeir lenda.
Fylgjast má með stöðunni á Irish Creek Open með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
