NGA: Ólafur Björn komst í gegnum niðurskurð á Lake Buena Vista mótinu!!!
Ólafur Björn Loftsson, NK og Alexander Gylfason, GR taka þátt í 7. móti NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series. Að þessu sinni er spilað í Disney – Lake Buena Vista, í Flórída. Mótið stendur 11.-13. desember. Þátttakendur eru 113 og aðeins 42 fóru í gegnum niðurskurð og fá að spila 3. og síðasta hring mótsins til fjár í dag.
Ólafur Björn komst í gegnum niðurskurð og fær því að spila lokahringinn í dag!!!! Fyrri hringinn lék Ólafur Björn á glæsilegum 3 undir pari, 69 höggum, fékk 1 glæsiörn, 4 fugla, 10 pör og 3 skolla. Eftir fyrri daginn var hann í 28. sæti. Í gær spilaði Ólafur Björn á 1 undir pari, 71 höggi, fékk 2 fugla, 15 pör og 1 skolla – leikið af öryggi og engir óþarfa sénsar teknir!!! Samtals spilaði Ólafur Björn á 4 undir pari, 140 höggum (69 71) og deildi 35. sætinu með nokkrum öðrum. Glæsilegt hjá Ólafi Birni!!!!
Alexander Gylfason
Alexander bætti sig um 1 högg; spilaði í gær á parinu, 72 höggum, fékk 3 fugla, 12 pör og 3 skolla. Samtals spilaði Alexander á 145 höggum (73 72) og komst því miður ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni. Spilamennska Alexanders hefir tekið miklum framförum og greinilegt að veran á mótunum í Flórída hefir haft góð áhrif. Það er eflaust bara tímaspursmál hvenær Alexander fer í gegn, en einungis munaði samtals 5 höggum á tveimur hringjum, þ.e. 2-3 högg á hring að Alexander tækist að ná niðurskurði.
Það væri óskandi að fleiri íslenskir kylfingar gætu spilað eins og strákarnir okkar hafa gert að undanförnu í Flórída, en þátttaka í mótunum og uppihald úti er mjög kostnaðarsamt.
Golf1 óskar Ólafi Birni góðs gengis í dag!!!
Til þess að sjá stöðuna á Disney – Lake Buena Vista mótinu eftir 2. dag SMELLIÐ HÉR:
- mars. 31. 2023 | 16:30 Gary Player þarf að „grátbiðja“ til að fá að spila á Augusta National
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Sigurbergsdóttir – 23. mars 2023
- mars. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Peter McEvoy og Davíð Arthur Friðriksson – 22. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore