Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2013 | 07:54

Viðtöl við fyrirliða Seve Trophy

Hér að neðan eru myndskeið með fyrirliðum í Seve Trophy 2013; annars vegar José María Olázabal fyrir lið Meginlandsins og hins vegar Sam Torrance sem er fyrirliði liðs Breta&Íra.

Olázabal segir m.a. að mikil pressa sé á liði Meginlandsins að vinna í ár, en ferillinn er ekkert sérlega góður í keppninni. Í þeim 7 viðureignum sem fram hafa farið frá árinu 2000 hefir lið Meginlandsins aðeins unnið 1 sinni þ.e. á opnunarmótinu árið 2000.

Í öllum öðrum viðureignum eftir það hefir lið Breta&Íra haft betur.

Til að sjá viðtal við fyrirliða liðs Meginlands Evrópu  José María Olázabal  SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá viðtal við fyrirliða liðs Breta&Íra Sam Torrance SMELLIÐ HÉR: