Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2016 | 18:00

Viðtalið: Sigrún Þórarinsdóttir, GÞH

Fullt nafn:  Sigrún Þórarinsdóttir

Klúbbur:   GÞH.

Hvar og hvenær fæddistu?   29. maí 1963 á Akranesi.

Hvar ertu alin upp?  Í Grindavík.

Í hvaða starfi/námi ertu? Ég er bóndi ásamt því að vera bókari.

Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?  Ég er gift og á 2 börn og ekkert þeirra spilar golf nema ég.

Hvenær byrjaðir þú í golfi?  5 ára.

Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?   Nágrannakona mín plataði mig í golfskóla.

Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli?   Skógarvelli – af því að þar er meira logn.

Hvort líkar þér betur: holukeppni eða höggleikur?   Holukeppni – mér finnst hún skemmtilegri.

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir þinn/þínir á Íslandi?  Húsatóftavöllur.

Hefir þú spilað alla velli á Íslandi – Ef ekki nefna hversu marga af þeim 62 golfvöllum Íslands, þú hefur spilað á?  Bara 4-5 Vestmannaeyjavöllur, Hella, Hellishólar, Húsatóftavöllur.

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum (nema á Íslandi)? Bara spilað á Flórída – Ventura er uppáhalds.

Frá Ventura í Flórída - uppáhaldsgolfvelli Sigrúnar erlendis

Frá Ventura í Flórída – uppáhaldsgolfvelli Sigrúnar erlendis

Hver er sérstæðasti golfvöllur, sem þú hefur spilað á? Vestmannaeyjavöllur út af umhverfinu.

Vestmannaeyjavöllur er í uppáhaldi hjá Sigrúnu út af umhverfinu! Mynd: Golf 1

Vestmannaeyjavöllur er í uppáhaldi hjá Sigrúnu út af umhverfinu! Mynd: Golf 1

Hvað ertu með í forgjöf?  36.

Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? Það man ég ekki.

Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu?   Fuglinn á 17. á Hellishólum.

Hefir þú farið holu í höggi?  Nei.

Spilar þú vetrargolf?  Nei.

Hvaða nesti ertu með í pokanum?   Banana og orkustykki og vatn.

Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum?    Nei.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Lambakjöt Uppáhaldsdrykkur? Vatn. Uppáhaldsbók? Sjálfstætt fólk e. Laxness Uppáhaldstónslist? Reggie Uppáhaldskvikmynd?  Dumb and dumber;  Uppáhaldsgolfbók?:  Reglubókin.

Notarðu hanska, ef svo er hvaða? Nota hanska og það er Footjoy.

Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing?    Kk.: Tiger Kvk.: Signý Arnórs.

Hvert er draumahollið?  Ég og….. (nefna 3 fylla ráshópinn): Huldu vinkonu, Bjarney Kristín Sigurðar og Dagmar Jónu

Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín?     Dræver; 5-, 6- 7- 8- 9-járn;  pútter, fleygjárn og sandwedge og golfveiðistöng. Uppáhaldskylfan: 7-an.

Hefir þú verið hjá golfkennara?  Já.

Hver er besti golfkennari á Íslandi? Sigurpáll Sveinsson

Ertu hjátrúarfull? Nei.

Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu?  Hafa gaman að því.

Hvað finnst þér best við golfið?  Útiveran og að ganga úti.

Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)?    40% – mætti vera 70%.

Skemmtisaga: Þegar boltinn fór út af á 4. braut á Vestmannaeyjavelli  og skoppaði eftir veginum – var auðvitað out of bounce en skoppaði síðan inn á völlinn aftur. Þetta er eflaust lengsta dræv sem ég hef átt!

Að lokum: Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum? Ná andlegri og innri ró.