Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2014 | 22:00

Viðtalið: Kjartan Páll Einarsson, GMS

Viðtalið í kvöld er við formann mótanefndar hjá Golfklúbbnum Mostra í Stykkishólmi (GMS).  Hann ásamt Ernu Guðmundsdóttur sá um að allt færi fram í sómanum á 3. móti Áskorendamótaraðarinnar, sem fram fór á Víkurvelli í Stykkishólmi 23. júní s.l.

Kjartan og Erna hjá GMS að afhenda verðlaun á Áskorendamótaröðinni. Mynd: Golf 1

Kjartan og Erna hjá GMS að afhenda verðlaun á Áskorendamótaröðinni. Mynd: Golf 1

Hér fer viðtalið:

Fullt nafn:  Kjartan Páll Einarsson

Klúbbur:   Golfklúbburinn Mostri í Stykkishólmi (GMS).

Hvar og hvenær fæddistu?   16. apríl 1956 Þórisholti í Mýradal.

Hvar ertu alin upp?  Í Þórisholti.

Í hvaða starfi/námi ertu?   Ég er útibússtjóri Arion banka í Stykkishólmi og formaður mótanefndar GMS.

Kjartan  (t.v.) er útibússtjóri Arion banka í Stykkishólmi.  Hér við undirskrift samninga. Mynd: visir.is

Kjartan (t.v.) er útibússtjóri Arion banka í Stykkishólmi. Hér við undirskrift samninga. Mynd: visir.is

Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?  Konan og 2 dætur spila golf.

Hvenær byrjaðir þú í golfi?  1999-2000.

Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?   Mér fannst golf spennandi íþrótt og  síðan var líka hvatningin frá félögunum, sem varð til þess að ég byrjaði í golfi.

Hvort líkar þér betur við skógar- eða strandvelli?   Skógarvelli.

Hvort líkar þér betur holukeppni eða höggleikur?   Holukeppni.

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir á Íslandi?  Víkurvöllur.

Frá Víkurvelli í Stykkishólmi. Mynd: Golf 1.

Frá Víkurvelli í Stykkishólmi. Mynd: Golf 1.

Hefir þú spilað alla velli á Íslandi?   Nei, en svona 20 a.m.k.

Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum?  Grande Pines i Orlando.

Frá Grand Pines golfvellinum í Orlando, Flórída

Frá Grand Pines golfvellinum í Orlando, Flórída

Hvað ertu með í forgjöf?  19,2

Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því?  Það man ég ekki.

Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu?   Að hafa fengið sæti í öldungasveit Mostra.

Hefir þú farið holu í höggi?  Nei, en það er fínt að eiga það eftir.

Spilar þú vetrargolf?   Já, á Víkurvelli þegar ekki er snjór. Það var lítið í vetur.

Hvaða nesti ertu með í pokanum?   Samloku og vatn.

Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum?   Já, ég var í blaki, knattspyrnu og  frjálsum. Blak var á tímabili mín aðalíþrótt – Ég spilaði með stúdentum og var í landsliðinu og formaður Blaksambandsins.

Kjartan Páll, formaður mótanefndar Mostra var áður í blaki. Mynd: Golf 1

Kjartan Páll, formaður mótanefndar Mostra var áður í blaki. Mynd: Golf 1

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Steiktur skötuselur  Hver er uppáhaldsdrykkur?  Vatn; Hver er uppáhaldsbókin? Golfreglurnar Uppáhaldstónslist?   Gömul íslensk músík; Uppáhaldskvikmynd? Engin sérstökUppáhaldsgolfbók:  Engin sérstök.

Notarðu hanska?  Já, venjulegan hanska.

Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing?    Kvk: Konan mín –   Kk:  Tiger.

Eiginkonan er uppáhaldskylfingur Kjartans

Eiginkonan er uppáhaldskylfingur Kjartans

Hvert er draumahollið?  Ég og…..  konan og dæturnar.

Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? Wedge-járnið.

Hefir þú verið hjá golfkennara?   Já, hjá Maríu Guðna.

 Ertu hjátrúarfullur?  Nei.

Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu?  Bara að hafa gaman og njóta hvorutveggja.

Hvað finnst þér best við golfið?   Hreyfingin og útiveran.

Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)?     60%.

Að lokum: Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum?  Koma og spila Víkurvöll og njóta umhverfisins.