Viðtalið: Karl Vídalín Grétarsson
Nú í sumar mun Golf 1 aftur taka til við að taka viðtöl við íslenska og erlenda kylfinga. Fyrsta viðtal sumarsins 2016, birtist í dag, sumardaginn fyrsta og er við framúrskarandi kylfing. Framvegis munu viðtölin birtast á Golf 1, kl. 18:00 á sunnudögum. En hér fer viðtalið við Kalla, sem er ekki bara tæknilega frábær í golfi, eins og hann á ættir til, heldur líka einstaklega ljúfur og góður spilafélagi. Tja, hundurinn hans Kalla hefur bara alveg rétt fyrir sér!!!
Fullt nafn: Karl V. Grétarsson.
Klúbbur: GR.
Hvar og hvenær fæddistu? Hafnarfirði, 27/9 1961.
Hvar ertu alinn upp? Í Hafnarfirði.
Í hvaða starfi/námi ertu? Bílstjóri hjá Grayline.
Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég á konu og 3 börn. Enginn spilar golf nema ég.
Hvenær byrjaðir þú í golfi? 2004 – Sportið heltók mig strax.
Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Ég álpaðist á golfnámskeið, sem var haldið hjá vinnu konunnar.
Hvort líkar þér betur við skógar eða strandvelli? Skógarvellir.
Hvort líkar þér betur: holukeppni eða höggleikur? Holukeppni.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir þinn/þínir á Íslandi? Vestmannaeyjavöllur og Kiðjabergið.

Frá einum uppáhaldsgolfvalla Kalla
Hefur þú spilað alla 62 velli á Íslandi? Ef ekki nefna hversu marga af þeim 62 golfvöllum Íslands, þú hefur spilað á? 37 velli.
Hver er uppáhaldsgolfvöllur/vellir hvar sem er í heiminum (nema á Íslandi)? Sterling Farms golfvöllurinn í New Canaan Connecticut. (Sjá má vefsíðu Sterling klúbbsins með því að SMELLA HÉR: )

Uppáhaldsvöllur Kalla erlendis er Sterling Farms í Conneticut í Bandaríkjunum.
Hver er sérstæðasti golfvöllur, sem þú hefur spilað á? Vestmannaeyjar.
Hvað ertu með í forgjöf? 6,7.
Hvert er lægsta skorið þitt í golfi og hvar/á hvaða velli náðir þú því? 71 á Hvaleyrarvelli.
Hvert er helsta afrekið þitt til dagsins í dag í golfinu? 2. sætið í meistaramóti í 2. flokki hjá Keili.
Hefur þú farið holu í höggi? Nei.
Spilar þú vetrargolf? Já.
Hvaða nesti ertu með í pokanum? Banana og samloku á la Kalli.
Hefir þú tekið þátt í öðrum íþróttum? Já, ég hef verið í handbolta, á skíðum og seglbretti.

Karl er líka góður á skíðum.
Notarðu hanska, ef svo er hvaða? Já allrahanda hanska.
Hver er uppáhaldskylfingurinn þinn nefndu 1 kvenkylfing og 1 karlkylfing? Kvk: Annika Sörenstam Kk: Tiger Woods.
Hvert er draumahollið? Ég og….. Tiger, Obama og Pútin, gott að ræða málin í golfi.
Hvað er í pokanum hjá þér og hver er uppáhaldskylfan þín? Driver: Ping G30 stiff, 3-tré: Ping G30, Járn: Callaway apex 4p stiff; Fleygjárn: Cleveland 60°56°52°; Pútter: Scotty Cameron.
Callaway utility iron 18° er uppáhalds kylfan mín þessa dagana.
Hefir þú verið hjá golfkennara? Já, í heila 4 tíma.
Hver er besti golfkennari á Íslandi? Úlli frændi.
Ertu hjátrúarfullur? Nei
Hvert er meginmarkmið í golfinu og í lífinu? Mitt markmið í lífinu er að vera jafn frábær og hundurinn minn heldur að ég sé og verða hundheppinn og fara holu í höggi.
Hvað finnst þér best við golfið? Meira og meira félagslegi þátturinn og útiveran.
Hvað er það vandræðalegasta sem fyrir þig hefir komið í golfinu? Það var fyrir nokkrum árum að það var mikil keppni í gangi, boltinn minn lendir á bak við barð. Það var ekkert barð of hátt og ég var sko ekki að fara að fá annan skolla, sem ég hafði fengið á holunni á undan,svo ég læt vaða og fæ boltann á stað, sem karlmenn vilja alls ekki fá boltann og lá óvígur eftir!
Kanntu einhverja skemmtilega sögu af þér í golfinu? Ég var að munda mig í að slá boltann þegar kunningi minn labbar fram hjá og segir glottandi: „Kalli átt þú ekki að vera á gulum?“ Ég stend upp úr stöðunni og munda mig aftur til að slá, þá labbar annar félaginn framhjá og segir sama „Kalli átt þú ekki að vera á gulum?“ Þá hvessi ég mig og segi: „Má ég fá frið til að slá annað höggið mitt!
Hversu há prósenta af golfinu hjá þér er andleg (í keppnum)? Tæplega 100%.
Að lokum: Ertu með gott ráð sem þú getur gefið kylfingum? Ekki gefast upp á golfinu, golfið er svo skemmtilegt, það koma alltaf dagar sem ekkert gengur upp,vera meðvitaður um það, þannig er golfið.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
